Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Framferði fólks í nútímanum verður oft og tíðum að sæta því að vera í opinberri umræðu. Margt af því sem áður var hulið, jafnvel falið, er nú á allra vörum. Tímarnir breytast og viðmiðin líka. Þetta á ekki síður við um fyrirtæki en fólk. Samtal við samfélagið sem fyrirtækin starfa í er orðið mikilvægara en áður. Fyrirtæki sem láta hjá líða að hegða sér með forsvar- anlegum hætti eiga á hættu að baka sér óvild og verða undir í samkeppni, ekki aðeins í sölu á vöru eða þjónustu heldur einnig í samkeppni um mannauð. Fyrirtæki innan vébanda Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi hafa nú komið sér sam- an um stefnu í samfélagsmálum. Fyrirtæki sem undirrita stefnuna hyggjast því birta ófjárhagslegar upplýsingar um umhverfismál, félagslega þætti og stjórnarhætti, þar sem stuðst er við alþjóðlega viðurkennd viðmið. Ábyrg og góð umgengni um náttúruna er skilyrði fyrir því að fiskistofnar við Ísland verði áfram nýttir með sjálfbærum hætti. Umhverfismál skipa af þeim sökum stóran sess í stefnunni. Mikið hefur áunnist í þeim efnum á umliðnum árum, en markmiðið er að gera enn bet- ur. Þá er einnig stefnt að því að birta upplýsingar um skattspor, hvar skattar eru greiddir og við- skipti við tengda aðila. Nánari upplýsingar um stefnuna má nálgast á vefsíðunni samfelag.- sfs.is. Trúverðug stefna Til að greina áhrif fyrirtækja á umhverfi, samfélag og efnahag þarf að eiga sér stað samtal við helstu hagaðila. Það þarf að hlusta og leitast við að skilja og ræða mismunandi skoðanir; samtalið skerpir skilninginn. Með þeim hætti tekst vonandi að draga fram hvað megi gera betur og hvernig. Sem hluti af samfélaginu ber fyrirtækjum að leita leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum og auka þau jákvæðu. Hluti af þeirri vinnu grundvallast á stefnu sem sækir fyrirmyndir í alþjóðlega við- urkennd viðmið, lög og venjur. Það verður með öðrum orðum að vera trúverðug stefna sem menn hyggjast fylgja. Vegferðin Til undirbúnings við setningu stefnunnar voru haldnir fjórir opnir fundir síðari hluta vetrar undir yfirskriftinni „Samtal um sjávar- útveg“ og var þar fjallað um hvernig sjávar- útvegur gæti gert betur í umhverfismálum, hvernig auka mætti gagnsæi, hvernig stuðla mætti að aukinni nýsköpun og hvernig væri unnt að auka verðmæti sjávarauðlindarinnar. Þá var haldin vinnustofa um áherslur í sam- félagsábyrgð, þar sem öllum félagsmönnum SFS var boðið að taka þátt. Því næst fóru starfsmenn SFS um landið og áttu fundi með félagsmönnum til að ræða samfélagsábyrgð og leita eftir ábendingum og hugmyndum. Niðurstaðan af þessari vinnu var síðan höfð til hliðsjónar við gerð heildstæðrar samfélags- stefnu sjávarútvegsins, sem nú hefur verið birt. Jákvætt afl í samfélagi til framtíðar Það er von mín að með þeim aðgerðum sem ráðist verður í á grundvelli þessarar stefnu verði sjávarútvegur leiðandi afl jákvæðra breytinga í samfélaginu. Stefnan, ein og sér, mun duga skammt ef fyrirtæki í greininni gera sér ekki far um að innleiða hana í allar sínar athafnir. Fyrirtæki innan SFS eru mörg og mismunandi að stærð og því mun það taka mislangan tíma og mismikla vinnu fyrir þau að ná settu marki. Það er að sjálfsögðu vel þegar einstök fyrirtæki einsetja sér að verða drifkraftur jákvæðra breytinga í samfélaginu, en ég er ekki í nokkrum vafa um að sameig- inlegur taktur heillar atvinnugreinar í þessum efnum mun leysa úr læðingi eitthvað miklu meira og stærra. Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur » Það er von mín að með þeim aðgerðum sem ráðist verð- ur í á grundvelli þessarar stefnu verði sjávarútvegur leiðandi afl jákvæðra breyt- inga í samfélaginu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Sjávarútvegur og samfélagið Fyrr á þessu ári sendi emb- ætti umboðsmanns barna bréf til allra ríkisstofnana með beiðni um þátttöku í könnun. Meg- inmarkmið hennar var að afla upplýsinga um stöðu innleið- ingar Barnasáttmálans, samn- ings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, í íslenskri stjórnsýslu og fyrirkomulag samráðs stofnana við börn. Einnig var markmiðið að fá yf- irlit yfir þekkingu og vitund starfsmanna stofnana um sáttmálann og þau réttindi sem þar er kveðið á um. Framkvæmd könnunarinnar er jafnframt liður í því að meta ávinninginn af lögfestingu Barnasátt- málans. Niðurstöður könnunarinnar liggja nú fyrir og þar með stöðumat á innleiðingu Barnasátt- málans í íslenskri stjórnsýslu. Umboðsmaður barna vill færa sérstakar þakkir til ríkisstofn- ana fyrir þátttökuna og til starfsfólks þeirra sem veittu verkefninu liðsinni sitt með því að svara könnuninni. Menntun og fræðsla um Barnasáttmálann Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hafa fáir starfsmenn stofnana fengið fræðslu um réttindi barna eða kynningu á Barnasátt- málanum. Í svörum sínum lýsti meirihluti stofnana yfir áhuga á því að fá slíka kynningu og því ljóst að meirihluti stofnana telur efni Barnasáttmálans eiga erindi til starfsmanna. Af niðurstöðunum má jafnframt ráða að eftirspurn er eftir viðeigandi fræðsluefni fyrir aðila sem vinna með börn- um, en umboðsmaður barna hyggst taka til sérstakrar skoð- unar hvernig unnt er að bæta framboð af aðgengilegu og fjöl- breyttu fræðslu- og upplýs- ingaefni fyrir starfsfólk stofnana um Barnasáttmálann og réttindi barna. Efla þarf menntun fag- stétta sem vinna með börnum en einnig þarf að huga að því hvern- ig standa megi að sífræðslu starfsfólks.. Þá þarf að taka til skoðunar hvort tilefni sé til að hrinda af stað sérstöku átaki innan stofnana um Barnasáttmálann og réttindi barna. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hafa um 37% starfsfólks stofnana fengið þjálf- un í því að vinna með og eiga í samskiptum við börn. Ef efla á samráð við börn og þátttöku þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku í mál- um sem varðar þau, þarf að hækka það hlut- fall starfsfólks stofnana sem býr yfir þessari færni. Aðgengi Af framkomnum svörum má ráða að mikill meirihluti stofnana eru staðsettar í húsnæði sem er aðgengilegt börnum. Aðgengi barna í víðu samhengi er ein af meginreglum Barna- sáttmálans en taka þarf til skoðunar hvort gátlisti fyrir barnvæna aðstöðu geti auðveldað stofnunum það verkefni þannig að börn fái þau skilaboð að ekki sé aðeins gert ráð fyrir þeim heldur séu þau jafnframt velkomin. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru einungis 11% stofnana með texta á vefsíðum sínum sem er á einföldu máli sem börn skilja. Þá hafa einungis 18% stofnana gefið út fræðsluefni sem er barnvænt. Við vinnslu og framsetningu kynningar- og fræðsluefnis sem og efnis á vefsíðum stofnana, þarf að huga að því að gera í það minnsta hluta efnisins að- gengilegt börnum. Það er liður í því að börn geti sjálfstætt og á eigin forsendum leitað sér upplýsinga um eigin réttindi, þjónustu og önn- ur tiltæk úrræði. Þá ber að líta til þess að upplýsingaefni sem er á einföldu og auðskildu máli nýtist jafnframt öðrum hópum og því getur ávinningurinn af því að setja fram efni með þessum hætti orðið margfaldur. Taka þarf til skoðunar hvernig setja megi fram leið- beiningar sem nýtast stofnunum við framsetn- ingu barnvæns kynningar- og upplýsingaefnis á fjölbreyttu formi. Mat á áhrifum á börn Samkvæmt barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna er þörf á því að meta með kerfis- bundnum hætti áhrif lagafrumvarpa og ráð- stöfun opinbers fjármagns á börn. Mat á áhrifum á börn er jafnframt liður í því að meta stöðu innleiðingar Barnasáttmálans. Tæpur helmingur stofnana svaraði því til að hafa lagt sérstaklega mat á áhrif eigin tillagna eða aðgerða á börn í íslensku samfélagi. Þeg- ar fram fer greining og mat á áhrifum ákvörð- unar á hagsmuni og réttindi barna aukast lík- urnar á að ákvörðunin sé í bestu samræmi við hagsmuni barna sem er ein af meginreglum Barnasáttmálans. Niðurstöðurnar gefa til kynna eindreginn vilja til úrbóta og áhuga á að bæta aðgengi barna og efla þátttöku þeirra í starfsemi stofnana. Tilefni er til að taka sérstaklega til skoðunar tiltekna þætti eins og fræðslu til starfsfólks og forsvarsmanna stofnana um Barnasáttmálann. Þá er einnig brýnt að efla þjálfun starfsfólks í því að vinna með og eiga í samskiptum við börn, sem er lykilþáttur í áframhaldandi innleiðingu Barnasáttmálans. Einnig er ljóst að leita þarf frekari leiða til samstarfs og samræmingar á þessu sviði og að innleiða þarf ferla og verklagsreglur sem tryggja að ávallt fari fram mat á hagsmunum barna þegar við á og að þátttaka þeirra sé tryggð í málum sem þau varðar. Embætti um- boðsmanns barna hyggst fylgja þessari skýrslu eftir með áframhaldandi samtali við stofnanir en einnig er gert ráð fyrir því að framkvæma sambærilega könnun með reglu- bundum hætti til þess að fylgjast með framþróuninni og leggja mat á nauðsynlegar aðgerðir á þessu sviði. Eftir Salvöru Nordal »Niðurstöðurnar gefa til kynna eindreginn vilja til úrbóta og áhuga á að bæta að- gengi barna og efla þátttöku þeirra í starfsemi stofnana. Salvör Nordal Höfundur er umboðsmaður barna. Innleiðing barnasáttmálans hjá opinberum stofnunum Heimsfaraldurinn hefur haft veruleg áhrif á menntakerfið okkar. Unnið er að því dag og nótt að koma skólastarfi í sem bestan farveg. Allir eru að leggja sig fram um að svo megi verða sem fyrst og forgangur stjórn- valda er menntun. Framúrskar- andi menntun er ein meginfor- senda þess að Ísland verði samkeppnishæft í alþjóðlegum samanburði. Verðmætasköpun næstu áratuga mun í auknum mæli byggjast á hæfni, hugviti, rannsóknum og nýsköpun. Þær öru tæknibreytingar sem orðið hafa síðustu ár og kenndar eru við fjórðu iðnbyltinguna munu hafa áhrif á íslenskt samfélag og efnahagslíf á næstu áratugum. Tækniframfarir hafa vakið vonir um að tækifærum til að skapa ný og betri störf muni fjölga ört og lífsgæði geti aukist á mörgum sviðum samfélagsins. Gjaldeyr- issköpun þjóðarbúsins hefur verið mikið auð- lindadrifin. Skynsamlegt er að fjölga útflutn- ingsstoðunum. Verðmætasköpun þarf í auknum mæli að byggjast á hugviti, rannsóknum og nýsköpun til að styrkja stoðir hagvaxtar til langframa. Menntun og aukin hæfni er undirstaða sjálf- bærni, framfara og aukinna lífs- gæða. Ríkisstjórn sýnir vilja í verki í fjárlagafrumvarpinu og fjárveitingar til málefna sem falla undir mennta- og menningar- málaráðuneytið hækka um 11% milli ára og verða 127,2 milljarðar kr. á næsta ári. Aukin fjárfesting í menntun og vísindum Um 40% af fjárveitingum ráðu- neytisins renna til háskóla- starfsemi, sem er stærsti einstaki málaflokkur ráðuneytisins. Framlög til háskóla- og rannsóknastarfsemi hækka um 7% milli ára, þar sem bæði er um að ræða aukinn beinan stuðning við skólastarfið og fjárveitingar til einstakra verkefna. Eitt af fyrirheitum í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar var að framlög til háskólastigsins næðu meðaltali ríkja Efnahags- og framfarastofn- unarinnar. Það hefur tekist og er það fagnaðar- efni. Aukin framlög í Nýsköpunarsjóð náms- manna nema 300 milljónum kr. og 159 milljónir kr. fara í fjölgun námsplássa í hjúkrunarfræði og fagnám fyrir sjúkraliða. Þá er gert ráð fyrir verulega auknum fjárveitingum vegna stuðn- ings við námsmenn, þar sem 2021 verður fyrsta heila starfsár nýs Menntasjóðs námsmanna. Fjárveitingar til framhaldsskólanna aukast um 3,6% milli ára og verða 36,2 milljarðar kr. Fjárfest verður í margvíslegum mennta- umbótum sem eiga að nýtast öllum skólastig- unum og framlög í rannsókna- og vísindasjóði hækka um 67% milli ára, úr 6,2 milljörðum kr. í 10,3 milljarða kr. Aukin viðurkenning á gildi menningar Umsvifin á sviði menningarmála aukast verulega milli ára. Fjárveitingar til safnamála hækka um 11%, þá nemur hækkun til menn- ingarstofnana 9% og menningarsjóðir stækka einnig um 9%. Meðal einstakra liða má nefna 300 milljóna kr. fjárveitingu vegna húsnæðis- mála Náttúruminjasafns Íslands, 200 milljónir kr. til undirbúnings vísinda- og upplifunarsýn- ingar fyrir börn og ungmenni og 225 milljóna kr. aukningu vegna tímabundinnar fjölgunar listamannalauna. Þessi tímabundin hækkun er ígildi aukaúthlutunar um 550 mánuði sem kem- ur til viðbótar við 1.600 mánuði sem almennt er úthlutað skv. lögum. Eyrnamerkt fjármagn vegna listamannalauna verður því 905,6 millj- ónir kr. á næsta ári samkvæmt frumvarpinu. Þá eru 550 milljónir kr. eyrnamerktar mark- miðum og aðgerðum í nýrri kvikmyndastefnu sem kynnt verður á næstu dögum. Áfram er haldið að efla bókasafnasjóð höf- unda, sem greiðir höfundarétthöfum fyrir af- not verka sinna, og eru fjárheimildir hans auknar um 75 milljónir kr. Þá er ráðgert að verja 25 milljónum kr. til að efla starfsemi bókasafna, og rannsóknir og þróunar- og sam- starfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýs- ingamála. Á árinu 2021 verður unnið að að- gerðaáætlun nýrrar menningarstefnu. Ég vonast til þess að hún verði hvatning og inn- blástur til þeirra fjölmörgu sem vinna á sviði ís- lenskrar menningar til að halda áfram sínu góða starfi. Fjárlagafrumvarpið í ár sýnir glögglega mikilvægi mennta- og menningar og hvernig er forgangsraðað í þágu þessa. Hugverkadrifið hagkerfi reiðir sig á framúrskarandi mennta- kerfi. Við erum að fjárfesta í framtíðinni með því að forgangsraða í þágu menntunar. Mennt- un er eitt mesta hreyfiaflið fyrir einstaklinga, þar sem tækifærin verða til í gegnum mennta- kerfið. 127 milljarða sókn í mennta- og menningarmálum Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur »Framúrskarandi menntun er ein meginforsenda þess að Ísland verði samkeppnishæft í alþjóðlegum samanburði. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmála- ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.