Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2020, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.10. 2020 LESBÓK FRÆGÐ „Mér var einu sinni tjáð að ég væri frægari fyrir að vera frægur en fyrir nokkuð sem ég hef gert á sviði leiklist- arinnar. Þarna var ég tilfinningalega eggjaður. Ég meina, ég hef gert býsna margt, þið skiljið. Ég hef alltaf lagt mig fram sem leik- ari en samt fæ ég að heyra að ég sé frægur vegna þess að ég sé frægur,“ segir bandaríski leikarinn Kevin Bacon í samtali við breska blaðið The Independent. Sjálfur kveðst hann líta á sig sem leikara en ekki kvikmyndastjörnu. Í samtalinu viðurkennir Bacon að hann eigi ekki Mynd með stóru emmi, eins og svo margir leik- arar, sem hann verði um aldur og ævi tengdur við enda þótt dans- og söngvamyndin Footloose frá níunda áratugnum komist næst því. „Samt er ég ekki einu sinni viss um það.“ Bacon eggjaður Kevin Bacon. AFP LIÐSAUKI Útlitið var ekki bjart hjá bras- ilíska þrass/dauðarokks-bandinu Nervosa, sem eingöngu hefur verið skipað konum, í vor þegar gítarleikarinn Prika Amaral var ein eftir í bandinu eftir brotthvarf bassaleik- arans og söngvarans Fernanda Lira og trym- bilsins Luana Dametto. Nú hefur Amaral á hinn bóginn safnað um sig liði og það af dýr- ari gerðinni. Engin önnur en Diva Satanica sér nú um sönginn, Mia Wallace (ekki þessi úr Pulp Fiction) plokkar bassa og Eleni Nota lemur húðir. Þannig skipað hefur bandið hljóðritað sína fjórðu hljóðversplötu, Perpe- tual Chaos, sem koma mun út í janúar. Diva Satanica til liðs við Nervosa Prika Amaral var ekki lengi kona einsömul. AFP Tommy gamla Lee er ekki skemmt. Aftur til móðurlandsins PÓLITÍK Synd væri að kalla Tommy Lee, trymbil Mötley Crüe, mesta aðdáanda Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Hann hefur ítrekað lýst andúð sinni á forset- anum á kjörtímabilinu og þegar breski miðillinn The Big Issue spurði hvað hann hygðist fyrir næði Trump endurkjöri svaraði Lee: „Lagsi, ég sver til Guðs, gerist það kem ég til Bretlands í heimsókn. Ég bíð ekki boðanna. Síðan fer ég aftur til móðurlandsins, til Grikklands, og kem mér upp húsi á einhverri eyjunni. [Hann á gríska móður og fæddist í Aþenu.] Það sem svíður sárast er að mér finnst við verða að athlægi; að Evrópa og aðrir hugsi með sér: Hvað í andskotanum eruð þið að pæla? Hættið að kjósa frægt fólk og fáið einhvern sem kann til verka til að stjórna landinu.“ Það eru presthjónin séra Jó-hannes og maddama Elísabetsem eru í forgrunni í Vegum drottins. Hann er risinn í sínu nær- umhverfi, fljúgandi mælskur, eins konar eldklerkur, heillandi og klár en hefur sína djöfla að draga. Stutt er í hnefann ef honum misbýður og undir kraumar greinilega djúpstæð angist. Þegar við kynnumst Jóhann- esi heldur hann við fiðluleikara sem starfar í kirkjunni. Það kemst upp og Elísabet launar honum lambið gráa; heldur fyrst við konu (sér og ekki síður Jóhannesi til mikillar furðu) og síðan karl. Engin viðhengi eru lengur í hjónabandinu en því fer fjarri að líf þeirra hjóna sé slétt og fellt enda þótt það virðist mjakast í rétta átt. Jóhannesi gekk um tíma bölvanlega að girnast spúsu sína en sá vítahringur virðist nú vera rofinn. Eins gott því hjónunum er af þeim vitnisburði sem fram er kominn að dæma fyrirmunað að slíta sig hvort frá öðru. Elísabet býr að meira jafnaðar- geði en Jóhannes en lætur karlinn þó ekki eiga nokkurn skapaðan hlut inni hjá sér. Þau minna um margt á stórveldin á tímum kalda stríðsins, þar sem gagnkvæm fæling var beitt- asta vopnið. Og hverri Kúbudeilinni af annarri er afstýrt – gjarnan á ell- eftu stundu. Hjónin eiga um sárt að binda eftir Klerkur í ham við matar- borðið: Frá vinstri: Krist- ján, Elísabet, Jóhannes, Ágúst og Emilía. Geistleg gífurmál Það gengur ekki lítið á í dönsku dramaþáttunum Vegum drottins, sem Ríkissjónvarpið sýnir um þessar mundir; dauði, trúarnúningur, framhjá- hald, lyfjafíkn, geðveiki og Guð má vita hvað. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Elísabet stolt með ömmudrenginn Anton sem Ágúst skildi eftir sig. Valinn maður er í hverju rúmi í Vegum drottins. Frægastur er Lars Mikkelsen, stóri bróðir hjar- taknúsarans Mads, sem fer með hlutverk Jóhannesar, en við mun- um eftir honum úr ýmsum dönsk- um seríum, svo sem Krónikunni og Glæpnum, auk þess sem hann lék Rússlandsforseta í bandarísku þáttunum Spilaborg með Kevin Spacey og Robin Wright um árið. Ann Eleonora Jørgensen, sem leikur Elísabetu, er þekktari sem sviðsleikkona í Danmörku en hefur einnig leikið í myndum og þátt- um, svo sem Glæpnum. Bæði unnu þau til verðlauna í heimalandinu fyrir leik sinn í Vegum drottins. Simon Sears leikur Kristján en hann mun vera tengdasonur Ís- lands. Einn af mörgum. Fanny Louise Bernth túlkar Emilíu og Ca- milla Lau Amíru. Joen Højerslev leikur Svein og Morten Hee And- ersen lék Ágúst meðan hans naut við í þáttunum. Aðalhöfundur Vega drottins er Adam Price. Valinn maður í hverju rúmi Simon Sears og Camilla Lau. - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.