Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Page 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020
Kötturinn minn er algjört skaðræði. Og frekja. En alltaf yndislegur oggóður við mig. Bara ekki endilega aðra! Við eigum okkar daglega rit-úal. Hann hoppar upp á vaskborðið og fylgist með tannburstun, geng-
ur þar fram og aftur og heimtar smá kossa. Rekur rassinn framan í mig og
reynir að éta eyrnalokkana mína, sem ég bjarga úr kjafti hans með herkjum. Á
meðan húsfreyjan hendir sér í sturtu sest hann þolinmóður fyrir utan, mjálmar
og rýnir inn í gegnum móðuna og bleytuna sem streymir niður sturtuglerið.
Síðan er haldið í eldhúsið þar sem hann fær nýja mjólk og kíkir á matinn sinn,
sem hann hefur takmarkaðan áhuga
á. Sem er ekkert skrítið þar sem
hann virðist vera í fullu fæði úti í bæ,
en komum að því síðar. Dagurinn
hans fer í að valsa um hverfið og sam-
kvæmt rándýru staðsetningartæki
sem ég keypti, auk þess að borga
átján þúsund í ársgjald fyrir appið, sé
ég að Gullbrandur gengur um sjö
kílómetra á dag.
Kötturinn er alinn upp í hesthúsi,
sem skýrir að mörgu leyti af hverju
hann getur ekki verið til friðs; af
hverju hann kann ekki almenna
mannasiði eða kannski öllu heldur
kattasiði. Ég fékk hann tveggja ára,
fyrir um tveimur árum, og er að siða hann til smátt og smátt. Hann fer til að
mynda aldrei upp á borð, tja, að minnsta kosti ekki heima hjá sér. Þegar ég
kem heim úr vinnu eldum við saman. Hann heimtar að fá stól sem er stillt upp
nálægt eldavélinni og þar situr hann stilltur og fylgist með. Ég á enn eftir að
framleiða þættina Eldað með Gullbrandi, en skoða öll tilboð frá framleið-
endum. Eftir matinn fer hann í kvöldgöngu til tíu en kemur þá inn mjálmandi,
hleypur upp stigann, inn í herbergið mitt og upp í rúmið. Þá malar hann og
knúsar mömmu sína áður en hann leggst til svefns. Verst er að hann sporar allt
rúmið út og skilur eftir sig slóð af sandi og drullu. Ég sé núna eftir að hafa látið
sanda bílaplanið í sumar. Ég sef nefnilega í sandkassa.
Og eins blíður og hann getur verið er hann alveg eins og Dr. Jekyll og Mr.
Hyde og á sér aðra hlið. Hann laumar sér nefnilega inn til nágranna, fer þar
upp á borð og étur mat frá skíthræddum kisum sem hann hvæsir bara á.
Reglulega birtast myndir á Garðabæjarsíðunni af þessum fræga gulbröndótta
ketti og spurt er: Hver á þennan kött? Ég lauma einu hjarta við færsluna en
þori varla að viðurkenna eignarhaldið því ég óttast hvað hann hafi nú gert af
sér. En fólk er farið að þekkja hann. Ókunnugt fólk svarar fyrir mig: Þetta er
hann Gullbrandur í Löngumýrinni.
Sofið í sandkassa
með Gullbrandi
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’ Verst er að hann spor-ar allt rúmið út ogskilur eftir sig slóð af sandiog drullu. Ég sé núna eftir
að hafa látið sanda bíla-
planið í sumar. Ég sef
nefnilega í sandkassa.
Kasia Katarzyna
Allt í lagi núna. Mér fannst erfitt
fyrst að anda, en er að venjast því.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
líður þér
með
grímu?
Róbert Ólafsson
Það tekur svona tuttugu mínútur að
venjast henni og þá gleymist hún.
Ásta Ágústsdóttir
Illa. Ég er að kafna með hana.
Alan Rubi
Allt í lagi. Hún er frekar óþægileg
en nauðsynleg.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SNÆFRÍÐUR INGADÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Útlönd inn
í stofu
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Ferðaþátturinn Vegabréf, í umsjón fjölmiðlakon-
unnar Snæfríðar Ingadóttur, fer í loftið miðvikudag-
inn 4. nóvember á N4. Í þáttunum fær Snæfríður til
sín góða gesti sem segja sögur af ferðalögum.
Er grundvöllur fyrir ferðaþætti í miðjum
Covid-faraldri?
Ég held að það sé full þörf á því að fólk fái smá útlönd inn í
stofu. Eins og ástandið er núna er fólk farið að þyrsta í ferða-
lög. Þátturinn Vegabréf mun slá á ferðaþrána, eða kannski ýf-
ist hún bara upp! Flestir eiga skemmtilegar ferðasögur í far-
teskinu. Og ferðalög eru svo miklu meira en ferðin sjálf. Það
er undirbúningurinn og svo er hægt að rifja upp minningarnar
aftur og aftur.
Við hverja ertu búin að ræða?
Ég talaði til dæmis við mann sem hefur búið í Sambíu og giftist
fyrstu konunni sem hann talaði við þar. Svo ræði ég við konu
sem hefur ferðast gríðarlega mikið, en hún er sjálf ferðaþjón-
ustubóndi. Hún ferðast alltaf bara með handfarangur, hefur farið
út um allt og lent í endalausum ævintýrum. Ég talaði líka við
mann sem ferðast rosalega mikið í huganum.
Voru þetta allt góðar sögur?
Þetta eru bæði góðar og vondar sögur. Líka hrakfallasögur.
Það er nú oft þannig að best lukkuðu ferðalögin lifa ekki endi-
lega í minningunni. Oft er það vesen og vandræði sem gerir
ferðina eftirminnilega. Einn viðmælandi segir til að mynda frá
mjög misheppnaðri Parísarferð, sem átti að vera bæði óvænt og
rómantísk en var hvorugt.
Er þig farið að þyrsta í útlönd?
Já, heldur betur! Á ég að segja þér hvað ég gerði um dag-
inn? Ég borðaði jólamatinn af því ég er svo bjartsýn á að
komast út til Kanaríeyja um jólin! Hamborgarhryggur og
alles.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is