Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Síða 32
SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 2020
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
NÝTT MOKKA ESPRESSO
kanna fyrir span
4 bolla 5.990,-
6 bolla 6.990,-
MOKKA KITTY
kanna fyrir span
6 bolla 5.990.-
10 bolla 7.990,-
NÝTT
MOKKA ESPRESSO kanna
3ja bolla 3.990,-
6 bolla 5.990,-
9 bolla 6.990,-
18 bolla 9.990,-
PRESSUKÖNNUR frá 1.990,-
BRIKKA
kanna
frá 4.990,-
MJÓLKURFLÓARI
rafmagns 8.990,-
PANNA fyrir span
hellur 1.990,-
KAFFIKVÖRN
3.990,-
MJÓLKURKANNA
frá 1.490,-
Jólagjöf
KAFFIUNNENDA
No Cover eða Engar ábreiður nefnist ný tónlistarkeppni í sjón-
varpi sem Hit Parader stendur að. Svo sem nafnið gefur til
kynna verður ekki um ábreiðusöng að ræða, eins og tíðkast í
vinsælum þáttum á borð við American Idol og The Voice, heldur
mæta listamennirnir með frumsamið efni. Sigurlaunin verða
meðal annars plötusamningur við Sumerian Records, umboðs-
maður og aðgangur að stórum tónleikahátíðum. Skráning stend-
ur nú yfir á nocovershow.com og fer fram þvert á öll landamæri í
heiminum. Spurning hvað íslensk bönd gera?
Dómarar verða tónlistarfólkið Alice Cooper, Bishop Briggs,
Gavin Rossdale, Lzzy Hale og Tosin Abasi en flutningur kepp-
enda verður tekinn upp í hinum goðsagnakennda tónleikasal
Troubadour í Vestur-Hollywood, þar sem listamenn á borð við
Bob Dylan, Joni Mitchell og Metallica tóku sín fyrstu skref. Þá
verða viðbótartökur á Sunset Marquis-hótelinu.
Alice Cooper er
eldri en tvævetur
í bransanum.
AFP
Engar ábreiður leyfðar
Bresk-bandaríska poppsöngkonan Bishop mun
ekki liggja á sínum skoðunum og ráðum.
AFP
Hit Parader efnir til tónlistarkeppni í
sjónvarpi með áherslu á frumsamið efni.
Í Dagbók Morgunblaðsins fyrir
réttum eitt hundrað árum, 2.
nóvember 1920, kom fram að
smáþjófnaðir hefðu verið alltíðir
hér í bænum um þær mundir.
„Segli var stolið úti í eyju um
daginn og ýmsu öðru víðsvegar
um bæinn. Menn ættu aldrei að
draga stundinni lengur að til-
kynna það lögreglunni, ef þeir
verða þess varir, að stolið hefir
verið frá þeim. Því aðeins er
nokkur möguleiki til þess, að
lögreglan nái í sökudólginn,“
stóð í Dagbókinni.
Þar kom einnig fram að snjór
allmikill væri kominn á Hellis-
heiði. „Ætlaði bifreið yfir hana í
fyrradag, en varð að hverfa frá.“
Ennfremur sagði: „Hjúkrunar-
félagið „Líkn“ sendi nú síðast
með Botníu ungfrú Oddnýju
Guðmundsdóttur hjúkrunar-
konu til Danmerkur, til þess að
kynna sér þar hjúkrun berkla-
veikra barna. Þegar hún kemur
heim aftur, verður hún í þjón-
ustu félagsins í baráttunni gegn
berklaveikinni.“
Loks kom fram að nýtrúlofuð
væru ungfrú Inga Ágústsdóttir í
Stykkishólmi og síra Sigurður
Lárusson sama stað.
GAMLA Á BAKINU
Smáþjófn-
aðir alltíðir
Snjóþungt var á Hellisheiðinni fyrir heilli öld og bíll sem hugðist fara þar yfir
varð frá að hverfa, að sögn Dagbókar. Þessi mynd er tekin svolítið síðar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sólveig Ólafsdóttir
upplýsingafulltrúi
Hanna Styrmisdóttir
prófessor við LHÍ
Ann Eleonora Jørgensen
dönsk leikkona