Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 2

Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 2
Fjarnámið þjálfar aga og sjálfstæð vinnubrögð Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Það er útilokað að bera saman nám í eðlilegu skólastarfi og fjarnám. Það tekur á að sitja við tölvuna heima all- an daginn og þurfa að halda ein- beitni og athygli þegar þreytan tek- ur yfir. Þá er heilsuspillandi að sitja fyrir framan tölvuskjá allan daginn,“ segir Una Margrét Lyngdal Reynis- dóttir, inspector scholae við Mennta- skólann í Reykjavík. Fela sig á bak við tölvuskjáinn Sem formaður skólafélagsins er Una Margrét í stöðugum sam- skiptum við nemendur skólans, sem eru nú um 670. Margvíslegar ráð- stafanir í sóttvarnaskyni eru í gildi í MR. Öll kennsla hefur verið á netinu síðan í lok september. Aðeins einn nemandi hefur horfið frá skólanum nú á haustönn og almennt telja stjórnendur skólans starfið á ágætu skriði þótt þungt sé fyrir fæti. Hugs- anlegt sé að einhverjir nemendur dragist aftur úr í námi sínu þó heild- armyndin sé enn ekki skýr. „Að stunda nám byggist alltaf að hluta til á félagslegum tengslum og þegar svo mikilvægan þátt vantar býður slíkt heim hættu á félagslegri einangrun. Að fela sig á bak við tölvuskjáinn er auðvelt,“ segir Una Margrét sem finnst róðurinn nú á haustönn þyngri en í vor. Þá var kennslan við MR, eins og aðra fram- haldsskóla landsins, færð yfir á netið um miðjan mars. Þá var ekki reikn- að með öðru en að mál kæmust aftur í lag innan skamms. Ekkert mætt frá 29. september „Í haust voru sóttvarnir í MR þannig útfærðar að helmingur bekkja í senn mætti í skólann, en aðrir sátu heima. Svona var þessu skipt frá degi til dags. Svo voru regl- ur hertar frekar og nú höfum við ekkert mætt í skólann frá 29. sept- ember. Því vantar að geta borið saman bækur sínar við aðra nem- endur eða rökrætt við kennarana í tímum,“ segir Una Margrét sem tel- ur sömuleiðis mikið vanta þegar ekkert sé félagslífið í skólanum; leik- sýningar, dansleikir og fleira slíkt. „Sjálf er ég vel sett, því ég á fjölda vina sem ég hitti reglulega. Svo eru aðrir krakkar sem eiga fáa vini en fá við eðlilegar aðstæður félagsskap í skólanum, sem nú vantar. Þá er staða nýnema mjög erfið, þeirra sem byrjuðu í haust. Þau mæta ekki í skólann; eru í litlum tengslum við kennara og samnemendur. Eru í raun í lausu lofti.“ Í samt lag að nýju Una Margrét er í 6. bekk MR og stefnir á stúdentspróf í vor. „Auðvit- að er eðlilegt að sumu í náminu sé sleppt í þessum fordæmalausu að- stæðum, sem getur síðan haft áhrif í frekara námi. Andleg líðan og að fé- lagsleg tengsl vanti er þó meira áhyggjuefni. Samt vil ég trúa því að þetta sleppi til, því ef maður nær takti í námi á netinu er slíkt lær- dómsrík þjálfun í aga og sjálf- stæðum vinnubrögðum. Ég kýs því að horfa á jákvæðu hliðarnar, þó að við þráum öll að lífið komist í samt lag að nýju,“ segir Una Margrét Lyngdal Reynisdóttir, inspector scholae, að síðustu.  Félagsleg tengsl vantar, segir inspector scholae í MR Morgunblaðið/Sigurður Bogi Inspector Við þráum öll að lífið komist í samt lag að nýju,“ segir Una Margrét Lyngdal Reynisdóttir. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Þetta var frábær kvöldstund sem heppnaðist vel,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, dagskrárgerð- armaður á K100, sem brá sér í hlut- verk bingóstjóra ásamt henni Evu Ruzu í gær, og tóku tugþúsundir manna þátt í beinni útsendingu á mbl.is og rás 9 hjá Símanum. „Fjöldi manns spilaði bingó og svo setti Jón Jónsson punktinn yfir i-ið,“ segir Sigurður eða Siggi Gunnars eins og hann er oftast kall- aður. „Það er sama hvar Jón kemur fram, hann geislar alltaf af svo mik- illi gleði sem smitar út frá sér,“ seg- ir Siggi. Vinningarnir voru ekki af verri endanum, en heildarverðmæti þeirra var metið á 1.851.000 krón- ur. Siggi segir að þeir hafi nánast flogið út, svo mikil var þátttakan í bingóinu. „Þetta var allt frá hár- vörum og legókubbum yfir í þyrlu- ferðir og sjónvörp og allt þar á milli,“ segir Siggi. Hann vill að lokum þakka þeim sem tóku þátt kærlega fyrir og bendir á að bingógleðin verður aft- ur á dagskrá kl. 19 næsta fimmtu- dag. „Ég held að bingóið sé bara komið til að vera næstu fimmtu- dagskvöldin.“ Ógleymanleg kvöld- stund í bingói K100  Dró út vinninga upp á 1,8 milljónir kr. Morgunblaðið/EAÁ Bingó Siggi Gunnars stýrði velheppnuðu bingókvöldi í gær. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það virðist vanta upp á þekkingu hjá seljendum á þeim reglum sem snúa að rétti neytenda til að hætta við kaup,“ segir Matthildur Sveins- dóttir, sérfræðingur hjá Neytenda- stofu. Neytendastofa hefur gert fimm verslunum að gera úrbætur á vefsíð- um sínum innan tveggja vikna. Ef verslanirnar verða ekki við tilmæl- um Neytendastofu verða lagðar 20 þúsund króna dagsektir á þær þar til úrbætur verða gerðar. Umrædd- ar verslanir eru Úngfrúin góða, Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar, Penninn, Skór.is og Húrra Reykjavík. Þessar aðgerðir Neytendastofu eru afrakstur samræmdrar skoðun- ar Evrópusambandsins á vefsíðum verslana sem selja fatnað, húsgögn eða raftæki. Skoðun þessi er fram- kvæmd á hverju ári en misjafnt er hvers konar verslanir eru skoðaðar hverju sinni. Um 20 íslenskar vefsíð- ur voru teknar til skoðunar og kann- að var hvort fram kæmu með nægi- lega skýrum hætti upplýsingar um þjónustuveitanda, vörur og þjón- ustu, verð og samningsskilmála á vefsíðunum, að því er segir á heima- síðu Neytendastofu. Einhverjar athugasemdir voru gerðar við allar 20 síðurnar, svo sem að skýrari upplýsingar vantaði fyrir neytendur um þjónustuveitanda, heildarverð og rétt til þess að falla frá kaupum. Þá vantaði í mörgum tilvikum upplýsingar um fram- kvæmd og meðferð kvartana og lög- bundin úrræði neytenda vegna galla. Áðurnefndar fimm verslanir þóttu ekki hafa gert fullnægjandi lagfæringar í kjölfar athugasemda. Matthildur segir í samtali við Morg- unblaðið að forvarsmenn verslan- anna hafi flestir haft samband í kjöl- farið og lofað bót og betrun. Hraðri þróun um að kenna Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að breytingar á verslun hafi orðið með ófyrirsjáan- legum hraða í kjölfar áhrifa kórónu- veirunnar. „Það sem menn sáu fyrir sér að myndi gerast á tveimur árum er að gerast á tveimur mánuðum,“ segir hann og bendir á að fyrir vikið sé kannski ekki búið að slípa allt til í vefverslun. „En ég er sannfærður um að öll þessi fyrirtæki muni bregðast skjótt við og laga þessa hluti. Það vilja allir hafa sína starf- semi í lagi.“ Netverslanir gætu sætt dagsektum  Úrbóta krafist hjá fimm verslunum  Skerpa þarf á skilarétti kaupenda Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslun Húrra Reykjavík er meðal verslana sem þurfa að bæta vefsíðu sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.