Morgunblaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020
UNDANKEPPNI EM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik átti erfitt uppdráttar þeg-
ar liðið mætti Slóveníu í gær í fyrri
leiknum af tveimur sem til stendur
að liðið spili á Krít í Grikklandi.
Slóvenía tók völdin á vellinum strax í
fyrsta leikhluta og vann öruggan
sigur 94:58. Leikið er í Grikklandi
vegna þeirra áhrifa sem kórónu-
veiran hefur haft á mótshaldið. Liðin
voru því á hlutlausum velli en hefðu
átt að mætast á Íslandi ef allt hefði
verið eðlilegt.
Lið Slóveníu er mun hærra skrif-
að en lið Íslands og úrslitin ef til vill
nokkuð eftir bókinni. Enda hefur
Slóvenía unnið alla þrjá leikina til
þessa í riðlinum en Ísland hefur tap-
að fyrstu þremur leikjunum. Grikk-
land og Búlgaría eru einnig í A-
riðlinum og Grikkir höfðu betur í
viðureign þeirra í gær.
Leikurinn í gær var erfiður fyrir
íslensku landsliðskonurnar eins og
sjá má á úrslitunum sem og upplýs-
ingum um fráköst sem sjá má í kass-
anum sem fylgir greininni. Líkam-
legir burðir þeirra slóvensku eru
meiri og þær eiga fleiri leikmenn
sem eru sterkir nærri körfunni. Ís-
land saknaði sinna bestu leikmanna,
Helenu Sverrisdóttur sem er í barn-
eignarfríi og Hildar Kjartansdóttur
sem er meidd á fingri.
Aðdragandi leiksins var heldur
ekki skemmtilegur fyrir íslensku
leikmennina. Tvo leikmenn vantaði
hjá Slóveníu sem smituðust af kór-
ónuveirunni í vikunni. Smit komu
upp í herbúðum allra hinna þriggja
liðanna sem leika í riðlinum á Krít en
þó ekki í íslenska hópnum. En vænt-
anlega er ekki aðlaðandi tilhugsun
að mæta leikmönnum sem nýlega
hafa verið innan um smitaða ein-
staklinga.
Það hefði ekki breytt miklu varð-
andi úrslitin þar sem Slóvenía er í
mun hærri gæðaflokki en Ísland um
þessar mundir en sýnir að þessar að-
stæður sem íslenska liðið var sett í
eru ekki merkilegar. Forráðamenn
KKÍ, og Benedikt Guðmundsson
landsliðsþjálfari, hafa heldur ekki
legið á gagnrýni vegna þessa fyrir-
komulags sem Körfuknattleiks-
samband Evrópu greip til.
Þótt úrslitin hafi verið slæm þá
náðu samt nokkrar landsliðskonur
að sýna ágætar hliðar gegn sterkum
andstæðingi. Sara Rún Hinriks-
dóttir átti stórleik og skoraði 23 stig
af 58 hjá Íslandi. Hún tók einnig 7
fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Sara
tók mun meira af skarið en í leikj-
unum fyrir ári og það er góðs viti
fyrir liðið. Leikstjórnandinn Þóra
Kristín Jónsdóttir lék einnig vel og
skoraði 10 stig.
Bríet Sif Hinriksdóttir og Lovísa
Henningsdóttir áttu fína innkomu af
bekknum. Bríet skoraði 8 stig og
Lovísa lét til sín taka í vörninni.
Ljósmynd/FIBA
Krít Teja Gorsic sækir í gær en Lovísa Henningsdóttir er til varnar.
Erfitt innan
vallar sem utan
Öruggur sigur Slóveníu gegn Íslandi
verður vart komist
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Vonbrigði Viðbrögð Guðlaugs Victors Pálssonar og Sverris Inga Ingasonar á þessari mynd segja allt sem segja þarf um andrúmsloftið í leikslok.
Heraklion Grikklandi, Undankeppni
EM kvenna, 12. nóvember 2020.
Gangur leiksins: 11:15, 17:30, 26:40,
31:57, 36:63, 48:77, 58:94.
Ísland: Sara Rún Hinriksdóttir 23
stig/7 fráköst, Þóra Kristín Jóns-
dóttir 10, Bríet Sif Hinriksdóttir 8,
Lovísa Björt Henningsdóttir 5/1 varið
skot, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6,
Hallveig Jónsdóttir 4, Ísabella Ósk
Sigurðardóttir 2 stig/5 fráköst/1
varið skot.
Fráköst: 28 í vörn, 5 í sókn.
Slóvenía: Annamaria Prezelj 23 stig,
Shante Evans 21, Aleksandra Kroselj
16, Teja Oblak 12, Eva Lisec 7/15 frá-
köst, Lea Debeljak 7, Tina Cvijanovic
3, Merisa Dautovic 3, Maurice Senic-
ar 2.
Fráköst: 39 í vörn, 19 í sókn.
Dómarar: Ciprian Stoica Rúmeníu,
Maxime Boubert Frakklandi, Nir
Meirson, Ísrael.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
Ísland – Slóvenía 58:94
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir Englandi í Þjóðadeild
UEFA hinn 18. nóvember og leikurinn
mun fara fram á Wembley í London
þrátt fyrir umræðu um annað. Ísland
mætir Danmörku í Þjóðadeild UEFA
hinn 15. nóvember og ferðast svo til
Englands en ferðabann er frá Dan-
mörku til Bretlandseyja vegna kór-
ónuveirusmits sem upp kom í minkum
í Danmörku.
Það hefur því verið í umræðunni að
leikur Englands og Ísland myndi fara
fram í Albaníu og jafnvel Þýskalandi.
Enska knattspyrnusambandið sótti
um undanþágu frá breskum stjórn-
völdum til þess að leikurinn gæti farið
fram á Wembley og fékk knattspyrnu-
sambandið það samþykkt í gær.
Hinn 37 ára gamli Goran Pandev
reyndist hetja Norður-Makedóníu þeg-
ar liðið heimsótti Georgíu á Boris
Paichadze-völlinn í Tbilisi en hann
skoraði eina markið í 1:0-sigri á 56.
mínútu. Er þetta í fyrsta sinn sem
Norður-Makedónía kemst í lokakeppni
EM en landið var hluti af gömlu Júgó-
slavíu og tók þátt í nokkrum stórmót-
um undir fána hennar en síðasta stór-
mót Júgóslavíu í knattspyrnunni var
HM 1990. Skotar og Slóvenar tryggðu
sér einnig sæti í lokakeppninni á
næsta ári ásamt Makedónum og Ung-
verjum.
Arnór Ingvi Traustason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, greindist með
kórónuveiruna en hann fór ekki með
landsliðinu til Ungverjalands þar sem
grunur lék á að hann gæti hafa smit-
ast. Arnór sagði frá veikindum sínum í
viðtali á Stöð 2 í gær. Sú ákvörðun að
Arnór færi ekki með landsliðinu í leik-
inn mikilvæga gegn Ungverjalandi og
leikina í Þjóðadeildinni sem eru fram-
undan reyndist því skynsamleg.
Joe Gomez, miðvörður Englands-
meistara Liverpool í knattspyrnu,
meiddist illa á hné á æfingu enska
landsliðsins á miðvikudag. Gekkst
hann undir aðgerð í gær í London sem
gekk vel eftir því sem fram kemur í til-
kynningu frá FC Liverpool. „Gomez
gekkst undir aðgerð þar sem sinar í
hné hans voru lagfærðar.“
Englendingurinn Paul Casey tók
forystuna í gær þegar Masters-mótið í
golfi hófst í Georgíuríki í Bandaríkj-
unum. Mótið er síðasta risamót ársins
en er vanalega hið fyrsta á ári hverju.
Það fer iðulega fram í apríl en var
frestað á árinu vegna kórónuveirunnar
og áhrifa hennar. Af þeim sem lokið
höfðu leik þegar blaðið fór í prentun
hafði Casey leikið best en hann átti
frábæran hring. Skilaði inn skori upp á
65 högg og er á sjö höggum undir pari
Augusta National-vallarins.
Casey er orðinn 43 ára og hefur aldrei
sigrað á risamóti. Hann hefur hins
vegar oft leikið mjög vel á Masters og
hefur hafnað í 4. sæti á mótinu og þrí-
vegis verið í 6.
sæti. Sigur-
vegarinn í
fyrra, Tiger
Woods, lék á
68 höggum
og hefur
aldrei átt
betri hring á
fyrsta keppn-
isdegi Masters.
Eitt
ogannað