Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 11

Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 BELLA NÁTTSETT Efnið er blanda af perúskri pima bómul og módal alveg ólýsanlega mjúkt Stærðir S-XL Verð 29.990,- allt settið Hlýrabolur með góðu haldi fyrir brjóstin, buxur og sloppur. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Árleg Umhverfisverðlaun Ferða- málastofu sem veitt voru nú í vikunni komu í hlut Þingeyjarsveitar fyrir uppbyggingu innviða við Goðafoss. Þar hefur margvísleg aðstaða verið byggð upp á síðustu árum; stígar lagðir, settir upp útsýnispallar og bílastæði flutt fjær fossinum til að draga úr skarki á fallegum stað. „Leiðarljós við umhverfisbætur er jafnan að vernda náttúruna og ganga frá mannanna verk- um þannig að þau falli vel inn í um- hverfið, auki ör- yggi ferðafólks og séu þannig útbúin að upplifun verði sterk,“ segir Þráinn Hauksson lands- lagsarkitekt. Hann er í forsvari fyrir Landslag ehf., en þar og hjá Glámu- Kím arkitektum var aðstaðan við Goðafoss hönnuð og þróuð. Skipulag auðveldaði Goðafoss í Skjálfandafljóti, sem er nærri Ljósavatnsskarði og í mynni Bárðardals, er 9-17 metra hár eftir því hvar mælt er og 30 metra breiður. Fossinn er formsterkur og mynd- rænn. Klettar á skeifulaga brún greina fossinn í tvo meginála sem steypast fram af hraunhellu, skáhallt andspænis hvor öðrum. Ætlað er að um 500 þúsund manns komi að foss- inum á ári hverju, sem er við Hring- veginn því sem næst mitt á milli Ak- ureyrar og Mývatns. Endurbæturnar við Goðafoss byggðust frá upphafi á góðri sam- vinnu heimamanna og fagfólks. Verk- efnið hófst árið 2013, þegar Þingeyj- arsveit hlaut fyrst styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2013 vegna vinnu við deiliskipu- lag og landslagshönnun. Stuðningur fékkst síðan í næstu sex árin þar á eftir til stíga- og pallagerðar, merk- inga, bílaplans og uppgræðslu. „Að í upphafi væri til staðar gott og heild- stætt deiliskipulag skipti sköpum í þessu verkefni. Það auðveldaði alla vinnuna og gaf tóninn fyrir meg- indrættina, þótt framkvæmdir þróist alltaf eitthvað út frá áætlunum eftir því sem fram vindur,“ segir Þráinn. Vinsæll myndatökustaður Lengi var aðkoma flestra að Goða- fossi úr vestri, það er beint frá Hring- veginum inn á bílastæði skammt frá gljúfri og fossi. Nú hafa þau stæði sem fyrr segir verið flutt og fleiri ný útbúin sunnan við verslunina að Fosshóli, sem er á austurbakka Skjálfandafljóts. Þaðan var síðan lagður gangstígur með gljúfurbarm- inum austanverðum nánast alveg að fossinum þar sem útbúinn var pallur. Þar er gott sjónarhorn að fossinum fagra, að sögn Þráins, og vinsæll myndatökustaður. Umhverfisverðlaun Ferðamála- stofu hafa verið veitt frá 1995 og eru hvatning til ferðaþjóna um að huga vel að umhverfismálum í skipulagi og framkvæmd. Verðlaunin voru nú veitt í fimmta sinn fyrir verkefni sem hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða – en í öllum þeim til- vikum þykir hafa tekist sérstaklega vel til. Falli að umhverfinu  Vel gert við Goðafoss  Umhverfisverðlaun frá Ferða- málastofu  Upplifunin verði sterk  Gott sjónarhorn Þráinn Hauksson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Goðafoss er um 30 metra breiður og formfagur. Fremst á myndinni sést nýr útsýnispallur á austurbakkanum sem er vinsæll myndatökustaður. Ljósmyndir/Aðsent Aðstaða Horft af vesturbakka Skjálfandafljóts í átt að Fosshóli, þar sem er verslun. Um hálf milljón ferðamanna kemur á ári hverju að Goðafossi. Umboðsmaður Alþingis segir fjár- veitingar til embættisins ekki nægja til að hægt sé að sinna frumkvæð- isathugunum og verði þær því lagðar til hliðar. Þetta kom fram þegar Tryggvi Gunnars- son, umboðsmað- ur Alþingis, gerði grein fyrir árs- skýrslu embættis- ins fyrir árið 2019 á fundi stjórn- skipunar- og eftir- litsnefndar Al- þingis í vikunni. Tryggvi sagði embættið hreinlega ekki hafa bol- magn til þess að sinna frumkvæðisat- hugunum miðað við fjárlagafrum- varp ársins 2021 og fyrirliggjandi fjármálaáætlun. Þingmenn þyrftu að svara því hvort þeir teldu nausynlegt að þessari þjónustu yrði sinnt. „Nú eru þær aðstæður uppi í starfi umboðsmanns að ég hef fengið tæki- færi til að stíga aðeins til hliðar, ætla að sinna hér viðfangsefni sem hefur verið hjartans mál mitt, þ.e.a.s. fræðsluefni fyrir starfsfólk stjórn- sýslunnar. Ég mun hins vegar nota tímann nú fram að áramótum og pakka saman hér eldri málum og m.a. að pakka þessum frumkvæðismálum sem við höfum hreyft, væntanlega annaðhvort í bréf sem send verða út eða í pappakassa,“ sagði Tryggvi á fundinum. Á skrifstofu umboðsmanns Alþing- is hefur verið starfandi forstöðumað- ur frumkvæðismála, sem ásamt því að sinna yfirstjórn og aðstoða við OP- CAT-eftirlit með fangelsum landsins hefur haft umsjón með frumkvæðis- málum. Með honum hefur starfað einn lögfræðingur. Tryggvi sagði þetta ekki duga til þess að sinna málaflokknum. Sagði Tryggvi á fundinum að hann hafi gert það að tillögu sinni við vinnslu fjármálaáætlunar að starfs- manni yrði bætt í þessa deild árið 2021 og öðrum árið 2024. Ekki sé útlit fyrir að fjárveitingar fáist fyrir þeim mannskap. Þá hafi komið spurningar frá fjár- mála-og efnahagsráðuneytinu um hvort einhver áhætta væri fólgin í því að frumkvæðisathuganir yrðu ekki framkvæmdar. Tryggvi svaraði því þannig að heimild umboðsmanns til þessara athugana sé til staðar til þess að leiða til umbóta í stjórnsýslu. Verði þeim ekki sinnt, verði ekki téð- ar umbætur. Samkvæmt ársskýrslu umboðs- manns fyrir árið 2019 var ekkert nýtt frumkvæðismál tekið til athugunar árið 2019 en einu máli lokið. Þá var sjö málum, sem áður höfðu verið tek- in til athugunar, enn ólokið við árslok 2019. karitas@mbl.is Morgunblaðið / Hari Aþingi Stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd fjallar árlega um skýrslu umboðs- manns Alþingis. Umræða fyrir skýrslu ársins 2019 fór fram á miðvikudag. Ekki unnt að sinna frumkvæðismálum  Umboðsmaður segir fjármagn ekki nægt Tryggvi Gunnarsson Umhverfisstofnun veitti Hafnar- fjarðarbæ nýverið leyfi til þriggja daga vinnu þriggja starfsmanna við frágang bílastæðis sem gert var við hellinn Leiðarenda nú í haust. Hell- irinn er innan Reykjanesfólkvangs og er jarðrask þar óheimilt nema með leyfi stofnunarinnar. Helga Ingólfsdóttir, formaður um- hverfis- og framkvæmdaráðs í Hafn- arfirði, segir að það sé vilji bæjaryf- irvalda að aðkoma sé sem best að hellinum og því hafi verið ráðist í gerð bílastæða fyrir 17 bíla og tvær rútur auk annarra framkvæmda. Leiðarendi sé um margt áhugaverð- ur sem fræðsluhellir fyrir Íslendinga sem og útlendinga, en þoli ekki mikið álag. Vildu tímabundna lokun Hún segir að fylgst sé með fjölda gesta á svæðinu og á síðustu árum hafi dregið úr heimsóknum. Það megi einkum skýra með bættu að- gengi að Raufarhólshelli við Þrengslaveg, en einnig sé hann auð- veldari yfirferðar heldur en Leiðar- endi við Bláfjallaveg. Fyrir fjórum árum óskaði um- hverfis- og framkvæmdaráð Hafnar- fjarðarbæjar eftir því við Umhverf- isstofnun að Leiðarenda yrði lokað tímabundið vegna álags og hættu á skemmdum á viðkvæmum dropa- steinum. Þá var einnig rætt um hóf- lega gjaldtöku af ferðamönnum. Að sögn Helgu varð af hvorugu, enda hefur dregið úr fjölda gesta, og tekur Hafnarfjarðarbær hvergi gjald af ferðamannastöðum innan bæjarfélagsins. Einn slíkur staður er Seltún við Krýsuvík og segir Helga að þar hafi verið rætt um gjaldtöku á bílastæðum líkt og gert hefur verið í þjóðgarðinum á Þing- völlum. Hún segir að slíkt sé þó ekki komið á dagskrá. aij@mbl.is Lagfæringar við Leiðarenda  Dregið hefur úr fjölda ferðamanna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Leiðarendi Hellirinn er langur gangur og alls einn kílómetri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.