Morgunblaðið - 13.11.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.11.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 VINNINGASKRÁ 392 12752 23107 34120 45686 55565 64417 73620 547 13127 23191 34148 45919 55743 64473 74074 556 13309 23448 34442 46106 55858 64728 74247 966 13461 23735 34563 46442 56121 64791 74277 1140 13883 23876 35625 46472 56333 66530 74351 1208 14647 24598 36339 46567 56805 66808 74359 1612 14757 25001 36505 46727 57056 66936 74380 1877 15025 25682 36577 47417 57078 66997 74936 1972 15403 26079 36951 47625 57130 67119 75104 2070 15489 26645 37019 47671 57183 67587 75111 3028 15698 26776 37066 47690 57248 67767 75195 3123 16686 26870 37263 47793 58356 68151 75822 3124 17196 27397 37309 47826 58590 68482 76018 4048 17455 27461 37426 47832 59010 68498 76507 4166 17624 27984 38012 48097 59296 68711 76560 4367 17673 28083 38342 48580 59555 68741 76692 4412 17762 28155 38434 49055 59584 68783 77071 4478 17795 28608 38695 49526 59661 69168 77316 4514 17851 28749 38750 49637 59709 69323 77500 4605 17909 29151 39727 50753 60535 69619 77706 6682 18170 29224 39774 50937 60807 69849 78019 7009 18644 29870 39910 51253 61094 69920 78431 7478 18768 30742 40367 51421 61128 70215 78619 7753 18899 30899 40397 51572 61345 70255 78626 8922 19127 31369 41080 52682 61666 70282 78868 9345 19591 31761 41896 52820 61704 70483 78887 9497 20245 31923 41905 53733 61715 70872 78983 9530 20548 32089 42528 53752 62033 70958 79310 10099 20568 32364 43224 53818 62615 71868 79538 10132 20928 32629 43243 54027 62937 71910 79545 10763 21049 32754 43385 54038 63129 72048 79736 10985 21077 32886 43423 54343 63194 72190 11118 21477 32955 44936 54481 63600 72454 11137 22215 32995 44987 54645 63683 72518 11248 22618 33309 45111 54646 63953 72868 11904 22989 33398 45430 54774 64025 72886 12485 23088 34047 45603 55016 64301 73285 144 9093 19028 32017 42521 53635 61691 75056 494 9485 19604 32411 42640 53848 62575 75108 865 10255 19987 33408 43110 54142 63467 75298 1968 11101 21751 34265 44399 54361 64687 76150 3293 11668 23006 34519 45026 55080 65234 77530 3315 12580 23332 34685 45048 55341 66580 78969 3687 14582 24553 34793 46159 56230 67282 79517 4242 14624 24963 36319 46588 56617 68874 79540 5557 16673 24984 36360 48071 57577 68919 79840 5580 16850 28055 36805 48305 57878 71682 5638 16871 28253 41798 48458 59516 73048 8453 17944 28324 41799 49777 60868 74534 8677 18231 31581 41920 53625 61081 74544 Næstu útdrættir fara fram 19., 26. nóv & 3. desember 2020 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 21149 28570 32358 69781 78210 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2325 15959 39100 44513 65084 71504 3376 20704 40642 56725 66400 74941 6857 35816 41638 57247 66874 75894 9149 36116 41929 60350 67765 77440 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 3 7 7 1 28. útdráttur 12. nóvember 2020 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það hristi hressilega upp í borgar- kerfinu þegar dr. Tryggvi Þór Her- bertsson lýsti því yfir í Viðskipta- Mogganum á miðvikudag að Tan Sri Vincent Tan hefði enn fullan hug á að reisa 40 milljarða króna Four Sea- sons-hótel á Miðbakka í Reykjavík. Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður stjórnar Faxaflóahafna, brást við á Twitter og sagði málið einkennast af „draumórum“ og að útilokað væri að hann fengi heimild til að taka Mið- bakkann undir þessa starfsemi. For- stjóri Faxaflóahafna hefur ekki látið ná í sig og enn er beðið viðbragða Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Benti Tryggvi Þór á að hótel af þess- ari stærðargráðu, sem hægt væri að reisa og koma í starfsemi á fyrri hluta árs 2023, myndi skila borginni u.þ.b. 600 milljónum króna í fast- eignagjöld á ári. Sá tækifæri í hamborgurum En hvaða maður er þetta sem Tryggvi talar fyrir? Hver hefur svo djúpa vasa að geta ráðist í 40 millj- arða hótelframkvæmdir mitt í því ástandi þar sem ferðaþjónusta heimsins er nær öll á hausnum? Það er malasískur kaupsýslumað- ur sem nú þegar hefur fjárfest í einni stærstu hótelkeðju Íslands (félag sem hann stýrir á 75% hlut í Ice- landair Hotels) og hefur því orðið verulegra hagsmuna að gæta hér á landi. Það er hins vegar ekki Vincent Tan sjálfur sem stendur í þessum fjárfestingum, heldur félag sem hann stofnaði og hefur stýrt nær óslitið frá árinu 1984. Berjaya Corporation Berhad er skráð í kauphöllina í Kuala Lumpur og er markaðsvirði þess 230 milljarðar dala, jafnvirði 32 þúsund milljarða króna. Auður hans er hins vegar ekki jafn mikill, og samkvæmt nýjasta lista Forbes yfir auðugustu menn Malasíu vermir hann 23. sætið á listanum með áætlaðar persónulegar eignir upp á 750 milljónir dollara, jafnvirði 103 milljarða króna. Hann kemst því ekki á lista yfir milljarðamæringa tíma- ritsins, mælt í dollurum, þótt hann hafi um miðjan síðasta áratug átt þar sæti. Á þessum lista sitja nú hvorki meira né minna en 2.250 einstakling- ar og því varhugavert að halda því fram að Vincent Tan sé í hópi auð- ugustu manna veraldar. En það er fyrrnefnt Berjaya sem gerir hann óvenju áhrifamikinn og slagkrafturinn sem fylgir ákvörðun- um hans er slíkur að ekki er ósenni- legt að 150 herbergja Four Seasons- hótel verði risið í miðborg Reykjavík- ur innan fárra ára ef honum og samverkamönnum hans tekst að telja meirihlutanum í borgarstjórn hughvarf. Afar breið fjárfestingarlína Berjaya á fjölda dótturfélaga og hefur fjárfest á breiðu sviði, allt frá fjarskiptafélögum til fjárhættuspila, fasteignaþróunarverkefna til hótel- reksturs, í menntastofnunum og fjár- málafyrirtækjum og þá hefur hann einnig haslað sér völl á markaði skutlþjónustu og bílasölu. Til marks um fjölbreytileika fjáfestinga félags- ins þá keypti það árið 2016 HR Owen, sem er stærsti söluaðili lúx- usbíla á borð við Ferrari, Lamborg- hini og Bentley í heiminum. Yfir fé- lagið setti Vincent Tan Ken Choo, sem fram að þeim tíma hafði stýrt hótelum og spilavítum á Seychelles- eyjum og var einnig um tíma fram- kvæmdastjóri Cardiff City, velska fótboltaliðsins sem hann keypti hlut í árið 2010. Það er þó ekki eina íþrótta- liðið sem orðið hefur á fjárfesting- arleið Tan því Berjaya hefur einnig í safni sínu fótboltaliðin FK Sarajevo í Bosníu-Hersegóvínu, K.V. Kortrijk í Belgíu og Los Angeles Football Club. Vincent Tan er fæddur árið 1952 og hlaut ekki silfurskeið í munni í heimanmund. Líkt og Tryggvi Þór nefndi í fyrrnefndu viðtali í Við- skiptaMogganum hefur hann verið drifinn áfram af miklum metnaði frá unga aldri og sá snemma tækifæri í því að laða alþjóðleg fyrirtæki til Malasíu. 17 ára gamall hóf hann feril sinn sem óbreyttur bankastarfsmað- ur en það var árið 1980 sem stóra tækifærið kom. Þá fékk hann rekstr- arleyfið fyrir McDonalds í heima- landi sínu. Mikið barnalán Vincent hefur ekki aðeins verið atorkusamur í alþjóðlegum viðskipt- um. Hann er kvæntur og á 11 börn. Meðal þeirra er samfélagsmiðla- stjarnan Chryseis Tan, sem árið 2018 gekk í það heilaga með viðskiptajöfr- inum Faliq Nasimuddin. Náði at- höfnin, sem var hin glæsilegasta í alla staði, augum pressunnar, bæði í heimalandinu og einnig í Bretlandi. Yngri bróðir Vincents Tan er Danny Tan Chee Sing. Hann er einn- ig í hópi ríkustu manna Malasíu og eru eignir hans metnar á 665 millj- ónir dollara, jafnvirði 91 milljarðs króna. Auður þeirra bræðra á sér hins vegar ekki sömu uppsprettur. Danny hefur í áratugi byggt upp byggingarfélagið Tropicana Cor- poration sem verið hefur á almenn- um hlutabréfamarkaði í heimaland- inu frá árinu 1992. AFP Litríkur Vincent Tan vakti mikla athygli í kjölfar kaupanna á Cardiff City og er gjarnan áhorfandi á leikjum liðsins. Með fjárfestingar- veldi á bak við sig  Ókrýndur hótelkonungur Íslands með mörg járn í eldinum Í Kyoto í Japan á Berjaya Four Sea- sons hótel sem tekið var í notkun fyrir fjórum árum. Það er reist í jaðri 800 ára gamals tjarnargarðs sem setur mikinn svip á umhverfi byggingarinnar. Kostnaður við framkvæmdina nam 53 milljörðum króna. Í því eru 123 herbergi ásamt 57 lúxus- íbúðum sem seldar voru í lok fram- kvæmda en Four Seasons leigir út þegar eigendur eru ekki á svæð- inu. Íbúðaverðið var ekki á sömu slóðum og íslenskur fasteigna- markaður hefur kynnst og hljóp fermetraverð íbúðanna á 7,4-8,9 milljónum króna. Berjaya vinnur nú að framkvæmdum við Four Sea- sons-hótel í Okinawa í Japan og á teikniborðinu er annað í Yoko- hama. Allt í allt stefnir fyrirtækið á að byggja 10 hótel undir sömu merkjum í Japan. 800 ára garður í Kyoto MIKIL REYNSLA AF BYGGINGU DÝRRA HÓTELA Byggingin í Kyoto er afar glæsileg. Ljósmynd/ Four Seasons Kyoto Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.