Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 19

Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 ✝ Guðrún Ing-ólfsdóttir fæddist á bænum Stóradal í Eyja- firði 12. september 1932. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarhlíð á Akureyri 3. nóv- ember 2020. For- eldrar hennar voru hjónin Ingólfur Ás- björnsson, f. 21. apríl 1907, d. 26. júlí 1993, og María Guðmundsdóttir, f. 23. desember 1915, d. 31. mars 1995. Guðrún giftist hinn 11. sept- ember 1954 Inga Hólmari Jó- hannessyni, f. 21. júní 1933. Foreldrar hans voru Jóhannes Sigurðsson, f. 4. júlí 1910, d. 14. sept. 1998, og Laufey Sig- urpálsdóttir, f. 23. des. 1913, d. 12. maí 1999. Börn Guðrúnar og Inga eru: 1) María, f. 9. apríl 1953, maki Daníel Guðjónsson, f. 30. júní 1952. Börn Maríu eru: a) Hjört- ur Ingi Eiríksson, f. 19. feb. 1972, maki Erla Baldvinsdóttir, f. 21. okt. 1973, og eiga þau börnin Höllu Maríu, Söru Hlín, Sóldísi Erlu og Baldvin Rökkva. b) Harpa Rún Eiríks- dóttir, f. 5. sept. 1977, og á hún Þór Sigurðsson, f. 15. okt. 1964. Börn þeirra eru: a) Íris, f. 29. des. 1989, maki Haraldur Pálsson, f. 26. apríl 1989, og eiga þau tvíburana Þórarin Inga og Aron Gísla. b) Birta, f. 6. des. 1993, í sambúð með Arnari Kára Guðjónssyni, f. 25. des. 1989. c) Atli, f. 13. feb. 1996. Guðrún ólst upp í Stóradal hjá foreldrum sínum við al- menn bústörf. Hún fór í Hér- aðsskólann á Laugum í Reykja- dal í S-Þingeyjarsýslu og síðan í Húsmæðraskólann á Lauga- landi í Eyjafirði. Fyrstu árin eftir að hún giftist bjuggu þau Ingi í Stóradal í félagsbúi með foreldrum hennar. Árið 1965 hættu þau búskap og fluttu til Akureyrar í nýja íbúð sem þau byggðu í Skarðshlíð 18, nú Skarðshlíð 14. Þar bjuggu þau meðan heilsan leyfði og hún varð vegna heilsubrests að fara á hjúkrunarheimilið Skógar- hlíð, Akureyri. Eftir að þau fluttu til Akureyrar vann Guð- rún fyrstu árin á gæsluvöllum bæjarins við barnagæslu en hóf síðan störf á verksmiðjum SÍS á Gleráreyrum við saumaskap þar sem hún vann þar til hún fór á eftirlaun. Jarðsett verður frá Akureyr- arkirkju í dag, 13. nóvember 2020, klukkan 13.30. Streymt verður frá útförinni: https://tinyurl.com/yybfk6f4 Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlat börnin Ólaf Jón Guðjónsson og Bjarna Snæbjörn Þórðarson. c) Aron Freyr Ólason, f. 16. sept. 1991. 2) Laufey, f. 8. mars 1955, maki Krist- ján Viðar Krist- jánsson, f. 23. sept. 1963. Börn Lauf- eyjar eru: a) Guð- rún Erna Rúd- ólfsdóttir, f. 22. des. 1973, maki Steingrímur Steinarsson, f. 22. nóv. 1974. Þau eiga dæturnar Laufeyju og Þóreyju. b) Pétur Birgisson, f. 18. sept. 1976, maki Dagný Friðbjörnsdóttir Möller, f. 14. sept. 1978. Þau eiga börnin Tönju Möller, sem á dótturina Karitas, Sunnevu Möller og Núma Möller. 3) Bryndís Sæunn, f. 28. maí 1958. Hennar sonur er Einar Þor- steinn Pálsson og á hann börn- in Köru Sól, Eyvöru Elvu og Pétur Jökul. 4) Ingibjörg, f. 21. apríl 1961, maki Bergþór Aðal- steinsson, f. 2. feb. 1962. Sonur Ingibjargar er Heiðar Örn Óm- arsson, f. 25. jan. 1979, maki Lína Rut Olgeirsdóttir, f. 14. júní 1986, og eiga þau börnin Rakel Yrsu og Eyrúnu Önju. 5) Agnes, f. 16. okt. 1965, maki Minningarbrot um mömmu. Það var mikill kærleikur og gott að alast upp á heimilinu okk- ar í Skarðshlíðinni. Minningar mínar frá æskuárum einkennast af áhyggjulausu og kærleiksríku lífi og upplifði ég mikla væntum- þykju. Mamma var róleg kona með mikið jafnaðargeð, hún var við- kvæm og mátti ekkert aumt sjá né vita. Mamma gerði allt vel sem hún tók sér fyrir hendur og lagði mik- ið á sig til að hafa fallegt heimili, góðan mat, vera í fallegum fötum og að okkur skorti ekkert. Mamma var einstaklega lagin með ýmiss konar handavinnu. Eftir hana liggja ótal falleg verk víða hjá fjölskyldunni. Hún hafði fíngerðan smekk og handavinnan bar þess merki. Hér áður þegar við systur vorum yngri þá saum- aði hún á okkur fötin, ein jólin vorum við allar fimm í heima- saumuðum skokkum. Eins og tíðkaðist í þá daga var mamma heimavinnandi lengi vel meðan við systur vorum yngri en svo kom að því að hún fór að vinna utan heimilis. Ég held að það hafi gefið henni mikið, þar átti hún góða vinnufélaga og fór að taka meiri þátt í félagslífi og hugsa meira um eigin þarfir og langanir. Ég fór ung að heiman og flutti til Reykjavíkur. Fjarlægðin var oft erfið en þá var gott að hafa símann og við mæðgur töluðum mikið saman. Ég þurfti að fá ráð varðandi heimilishaldið, barna- uppeldið og svo þurftum við að sjálfsögðu að ræða málefni líð- andi stundar og þá lá hún ekki á skoðunum sínum. Við Þór kynntumst 1987, það var yndislegt að sjá hvernig mamma tók honum strax frá fyrstu kynnum, hún sá strax hvað hann var gott mannsefni fyrir mig. Hún dáðist mjög að hand- lagni hans og dugnaði og síðar hvað hann var góður eiginmaður og faðir. Alltaf var tilhlökkun hjá okkur fjölskyldunni að koma norður í frí til mömmu og pabba og um leið ömmu og afa. Mömmu var mjög umhugað um börnin mín og sýndi þeim mikla væntumþykju. Hún dekraði við þau og var búin að birgja sig upp af alls kyns mat og fíneríi sem hún vissi að myndi gleðja þau. Mamma og pabbi keyptu sum- arbústað í Vaðlaheiðinni. Hann færði nýja vídd í líf þeirra og ekki síður fyrir okkur fjölskylduna. Þær eru ófáar yndislegu sam- verustundirnar með þeim þar og yfirleitt var efnt til stórveislu þegar við komum norður sem enduðu oft með góðu ættarmóti. Svo kom sá tími að veikindi, bæði líkamleg og andleg, fóru að hafa áhrif á líðan mömmu. Þessi tími var erfiður fyrir alla fjöl- skylduna og áttuðum við okkur lengi ekki á að það var hægfara heilabilun að hrjá hana. Pabbi sinnti mömmu einstaklega vel og var það erfið ákvörðun fyrir hann og okkur systurnar að fá inni á hjúkrunarheimili fyrir hana. Þar fékk hún góða aðhlynningu. Oft hef ég hugsað um þessa kveðjustund og reynt að búa mig undir hana, en mikið er þetta sárt. Elsku mamma, takk fyrir allar okkar yndislegu stundir, fyrir allt það sem þú hefur gefið mér og mínum í gegnum tíðina, hér eftir get ég alla vega yljað mér við góðar minningar um þig. Elsku pabbi, allir afkomendur, vinir og samferðafólk mömmu, innilegar samúðarkveðjur til ykkar, minning um góða og fal- lega konu mun lifa með okkur. Hvíl í friði elsku mamma. Þín Agnes. Nú þegar Guðrún tengdamóð- ir mín hefur kvatt þessa jarðvist langar mig að minnast hennar með fáeinum orðum. Ég kom nokkuð seint inn í líf Guðrúnar sem mannsefni Maríu, elstu dótt- urinnar. Er mér ofarlega í huga hversu vel hún tók mér þegar María kynnti mig til sögu. Frá þeim tíma var ég samofinn lífi hennar og þessarar stóru og sam- heldnu fjölskyldu sem samanstóð af fimm systrum ásamt Ellu frænku þeirra og fjölskyldum þeirra. Guðrún var sveitastúlka og al- in upp á bænum Stóradal í Djúpadal í Eyjafirði. Hún var af þeirri kynslóð þar sem húsmóð- urstörf voru í hávegum höfð og talin til gildis. Hún hafði verið á Héraðsskólanum á Laugum í Reykjadal og Húsmæðraskólan- um á Laugalandi í Eyjafirði. Hún var því vel undirbúin til að hugsa um sína stóru fjölskyldu en dæt- urnar urðu fimm. Hún saumaði, prjónaði og heklaði á börnin og seinna barnabörnin og allt lék þetta í höndum hennar. Hún var vakin og sofin yfir fjölskyldunni og velferð hennar. Sjálf var hún alltaf vel tilhöfð og hafði gaman af að klæða sig upp á. Fínleg, flott kona. Miðpunktur fjölskyldunnar var heimili þeirra hjóna og þar hélt tengdamamma um alla þræði og var límið sem öllu hélt saman. Í hugann koma margar skemmtilegar stundir. Jólaboðin í Skarðshlíðinni á jóladag eru sér- staklega minnisverð en þar kom öll fjölskyldan saman og alltaf var nóg pláss þótt fjölskyldan stækkaði á hverju ári. Þarna var húsmóðirin í essinu sínu og stjórnaði öllu með sínu lagi. Mat- ur og góðgjörðir svo aldrei sá högg á og um kvöldið var tekið í spil. Spilakvöldin voru svo fjölda- mörg því bæði hún og Ingi, tengdafaðir minn, höfðu gaman af að spila. Fjölskylduþorrablótin voru ár- leg og þar söng fólk mikið og skemmti sér en Guðrún hafði yndi af söng. Stefán Íslandi var móðurbróðir hennar og því stutt að sækja í sönggleðina. Það er því margs að minnast. Guðrún hafði gaman af útileg- um og ferðalögum innanlands og þau Ingi stunduðu einnig stang- veiði um árabil. Var þá jafnan farið í efri hluta Laxár í Aðaldal og veiddur urriði og að Hrauni í Fljótum. Þótt hætt væri veiði var áfram farið í útilegur. Árlega var farið í eina fjölskylduútilegu þar sem allir sem vettlingi gátu vald- ið mættu börn og barnabörn. Þau Ingi áttu lítið hjólhýsi sem alltaf var miðpunktur útilegunnar og þar var Guðrún eins og unga- mamma með nóg af bakkelsi og góðgæti fyrir alla. Á kvöldin var grillað og sungið fram á nótt. Þau Ingi áttu sumarbústað í Kotabyggðinni gegnt Akureyri. Þar undu þau sér flest sumur og plöntuðu trjám, yrktu jörðina og ræktuðu blóm. Var bústaðurinn þeirra sælureitur og jafnframt samkomustaður fjölskyldunnar á sumrin. Það er því margs að minnast þegar litið er yfir farinn veg og er ég þakklátur fyrir að hafa verið um tíma hluti af tilveru Guðrúnar Ingólfsdóttur. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdamóður minni fyrir allt það góða er í minning- unni lifir og óska henni velfarn- aðar á þeim vegum sem hún nú hefur lagt út á hvar svo sem þeir eru. Daníel Guðjónsson. Hvíldu í friði elsku amma mín. Þú varst mér mikil fyrirmynd. Takk fyrir alla hlýjuna, umhyggj- una og góðu stundirnar. Minn- ingar eins og sumarkvöld með ykkur afa í bústaðnum verða mér alltaf afar kærar. Birta Þórsdóttir. Þær voru óteljandi ferðirnar norður, skíði um páska, vikudvöl að sumri, jól eða hefðbundið sum- arfrí með mömmu og pabba, Birtu og Atla. Það var alltaf dásamlegt að keyra inn á Akureyri með fyrsta stoppi í Skarðshlíðinni þar sem okkar beið After Eight-kakan, brauðtertan, kleinurnar og auð- vitað engiferkökurnar sem voru alltaf í mesta uppáhaldinu hjá mér. Besta lambalæri í heimi fékkst í eldhúsinu þínu og mun mig dreyma um það áfram um ókomna tíð. Þegar ég kom ein norður hvarf ég svolítið inn í gamla tímann, gufan í útvarpinu eða Álftagerð- isbræður í plötuspilaranum, afi að fá sér súrt slátur og þú, hús- freyjan sem þú ætíð varst, að bjóða mér að borða og settist svo og horfðir á. Ég veit enn þann dag í dag ekki hvort og þá hvenær þú borð- aðir, þú settir alltaf gestkomandi í forgang, lifðir eftir gömlum gildum og varst umfram allt ein- staklega stolt húsmóðir. Spilastokkurinn var aldrei langt undan og voru það með skemmtilegri stundunum með þér og afa. Mér eru líka mjög minnisstæð kvöldin þegar þú lag- aðir fyrir mig heitt kakó rétt fyrir svefninn og því fylgdu að sjálf- sögðu engiferkökur og svaf ég líklega aldrei betur en þær næt- ur. Það var aldrei neinn asi í kringum þig, rólegheit og hlý- leiki, sitjandi inni í eldhúskrókn- um að tala um allt dásamlega fólkið þitt sem þú varst svo stolt af. Ég fann stoltið svo sterkt þeg- ar strákarnir mínir komu í heim- inn. Þú varst svo góð amma og langamma og það sáu allir langar leiðir. Þessir ömmutöfrar sem ekki er hægt að setja í orð, þessi yfirvegun í kringum börn og þessi hlýja sem þú sýndir öllum jafnt. Elsku amma mín, mér fannst svo sárt og erfitt þegar minnið fór að bregðast þér og get ég ekki ímyndað mér hvað það hefur ver- ið erfitt fyrir þig. Ég hitti þig minna seinustu árin þín og hringdi sjaldnar í asa lífsins en ég hugsaði samt svo ótaloft til þín. Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir að hafa getað hitt þig í júní, á milli Covid-bylgja þar sem heimsóknir voru leyfðar á dvalarheimilin, að hafa hitt þig á góðum degi þar sem þú barst þig ágætlega. Það var þó erfitt að sjá hvað þú varst fjarræn og lífskrafturinn búinn að dvína svo mikið og þú líklega farin að hugsa til sumar- landsins að handan. Ég fann að þú þekktir mig, ég fann að þú treystir mér og vildir hafa mig hjá þér þótt þú kæmir því kannski ekki í orð. Ég átti svo erfitt með að halda aftur af tár- unum. Svo kom að kveðjustund og þegar ég var að hjálpa þér í sætið var svo óvænt þegar þú stóðst aftur upp til að gefa mér faðmlag, svo hlýtt og gott faðm- lag. Það var eins og þú hefðir vakn- að í eitt augnablik og værir að þakka fyrir tímann okkar saman og jafnframt að kveðja í hinsta sinn. Ég nánast vissi að þetta væri í síðasta skiptið sem ég myndi þig augum líta á minni ævi. Elsku amma mín, ég tek með mér áfram inn í lífið svo ótal- margt sem þú kenndir mér og held uppi þinni minningu, umvaf- inni hlýju og ást. Þín ömmustelpa Íris Þórsdóttir. Guðrún Ingólfsdóttir Við þökkum af öllu hjarta fyrir hlýhug, samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁSGEIRS INGA ÞORVALDSSONAR múrarameistara. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og vináttu. Guðfinna Sveinsdóttir María Nsamba Ásgeirsdóttir Martin Nsamba Þorvaldur Tolli Ásgeirsson Ásdís Gréta Hjálmarsdóttir Sveinn Ásgeirsson Sigrún Alda Ómarsdóttir Borgþór Ásgeirsson Birgitta Sif Jónsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SKAGFJÖRÐ STEFÁNSSON, Gauksstöðum, Skaga, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 14. nóvember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd. Streymt verður frá athöfninni á facebook-síðu Sauðárkrókskirkju. Stefán Jónsson Sveinfríður Jónsdóttir tengdabörn, barnabörn og langafabörn Við þökkum samúð og hlýhug við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KJARTANS T. ÓLAFSSONAR, sem lést 2. nóvember. Jökull Veigar Kjartansson Ólafur Helgi Kjartansson Þórdís Jónsdóttir Skúli Kjartansson Nancy Barish Hjálmar Kjartansson Guðný Anna Arnþórsdóttir Bergdís Linda Kjartansdóttir Þórður Kristjánsson barnabörn og langafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, RAGNAR GUÐMUNDUR JÓNASSON, fyrrverandi slökkviliðsmaður, lést laugardaginn 7. nóvember á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför auglýst síðar. Guðrún Árnadóttir Hannes Arnar Ragnarsson Halldóra S. Lúðvíksdóttir Jónas Ragnarsson Ragnhildur Sigurðardóttir Guðmundur Ingi Ragnarsson Sigrún Kristjánsdóttir Hermann Ragnarsson Sóley Víglundsdóttir Halldór Karl Ragnarsson Sigurður Vignir Ragnarsson Valdís I. Steinarsdóttir Unnar Ragnarsson María Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR J.N. INGÓLFSSON málarameistari, Fornastekk 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Fossvogi, aðfaranótt þriðjudagsins 10. nóvember. Útför verður auglýst síðar. Þorsteinn V. Sigurðsson Hrefna G. Magnúsdóttir Ingólfur Sigurðsson Sigríður Þóra Þorsteinsdóttir Pétur Þór Guðjónsson Fanney Rut Þorsteinsdóttir Bjarki Heiðar Sveinsson Kristín Nordal Ingólfsdóttir Rakel Ósk Jóelsdóttir Jónas Birgir Jónasson Magnús Hlífar Jóelsson Frederik Ingólfsson Kristófer, Sunneva, Pétur, Tristan, Eva, Natalía, Logi, Viktoría og Lovísa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.