Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 21

Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 21
mos-brúsa og Allsorts-köku- dunk. Útilegur og sumarbú- staðaferðir. Fá að vera í bílnum hjá Samma og Gógó, standa milli sætanna og syngja hástöf- um með þeim á meðan hossast var eftir holóttum malarvegum sem við kölluðum ferðalagavegi. Gógó var miðpunkturinn í fjölskyldunni. Eina systirin í systkinahópnum. Heimili þeirra Samma var aðalsamkomustað- urinn. Alltaf var nóg pláss fyrir alla þótt íbúðin væri ekki stór enda hjartarýmið nægt og gest- risnin engu lík. Sammi kom af sjónum bókstaflega kortér fyrir jól og þá mallaði jólakötturinn í pottinum hjá Gógó, eftir því sem Sammi sagði. Það stóðst á endum að þegar hann kyngdi kattarrófunni mættu bræður Gógóar og mágkonur með börn- in sín í kvöldkaffi og það var spjallað og leikið fram á jóla- nótt. Gógó var grönn og nett, kvik og léttstíg, lágróma með nota- legan hlátur. Hún saumaði og prjónaði föt á börnin sín og annarra. Engin tók henni fram í þrifum og hreinlæti, hvergi blettur, hvergi rykkorn. Samt gerði hún alltaf boð á undan sér sem var frekar óþrifalegt. Það helltist niður. Heima hjá okkur var haft á orði ef eitthvað hellt- ist niður að nú hlyti Gógó að vera á leiðinni. Og það stóðst. Kannski af því að hún kom oft í heimsókn og á barnmörgu heimili hellist stundum niður. En við krakkarnir trúðum hinni skýringunni. Við systkinin vottum Hrönn, Dittu, Báru og öllu fólkinu þeirra okkar innilegustu samúð og kveðjum elskulega frænku okkar með þakklæti. Sjáustum síðar Gógó. Þorsteinn (Steini), Helga, Anna og Sigurjón (Nonni). Látin er Anna H. Sigurjóns- dóttir, eða Anna hans Samma eins og við kölluðum hana allt- af. Þar er fallin frá góð og ljúf kona sem alltaf tók okkur opn- um örmum þegar við komum í heimsókn. Þetta byrjaði hjá okkur, þeim elstu, þegar Anna og Sammi, Samúel Kristinn Guðnason, fluttu á neðri hæðina á Aðalgötu 3 á Suðureyri þar sem þau bjuggu í tvö ár. Þá var samgangur mikill á milli fjöl- skyldnanna og oft glatt á hjalla. Síðar þegar þau fluttu suður hélst alltaf gott samband. Við munum gönguferðirnar yfir í Vatnadal á fallegum síð- sumardögum. Deginum þá eytt við Vatnið þar sem veiddur var silungur og svo farið í berjamó. Alltaf töfraði hún Anna fram mikið og gott nesti í þessum ferðum. Við munum allar góðu mót- tökurnar þegar við fórum suð- ur. Í Ljósheimana og Fellsmúl- ann var alltaf gott að koma og vel tekið á móti okkur. Anna skutlaði manni í öll þau erindi sem voru ástæður ferðarinnar, fyrst í „Fólksvagninum“ og svo á Peugeot-bílunum sem þau áttu ætíð síðan. Sammi var yf- irleitt á sjónum og því var Anna oftast í því hlutverkinu. Samt fannst manni það nú svolítið skrítið að hún skyldi keyra bíl í Reykjavík, það voru nú ekki margar konur sem við þekktum sem gerðu það í þá tíð. Alltaf vissi maður að velkom- ið var að gista hjá þeim og enn í dag geymist í minni okkar gamla símanúmerið þeirra sem oft var hringt í þegar á þurfti að halda á þessum árum. Við viljum þakka fyrir sam- fylgdina, fyrir hlýjuna og svo fyrir alla jólapakkana. Við kveðjum góða konu með sökn- uði og sendum dætrum hennar, Hrönn, Dittu og Báru, og fjöl- skyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Fjölskyldan frá Aðalgötu 3 Suðureyri, Guðni Albert Einarsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 ✝ Gísli HelgiÁrnason fædd- ist á Sauðárkróki 17. júní 1949. Hann lést á heimili sínu 1. nóvember 2020. Foreldrar hans voru Kristín Guð- rún Eiríksdóttir, f. 8. apríl 1930, d. 2. des. 1955, og Árni Hólm Einarsson, f. 4. feb. 1925, d. 4. júlí 1990. Systkini Gísla voru tvíbur- arnir Ágúst og Einar, f. 30. maí 1947, Hlynur, f. 10. júlí 1951, og Guðrún Margrét, f. 21. okt. 1954. Árið 1967 giftist Gísli Önnu Konráðsdóttur, f. 2. nóv. 1949 á Sauðárkróki. Foreldrar hennar voru Sigríður Helga Skúladóttir og Konráð Þor- steinsson. Gísli og Anna bjuggu öll sín búskaparár á höfuðborgarsvæðinu. Börn þeirra eru: 1) Kristín Helga, f. 29. mars 1970, maki Sebastian Mikaelsson. Börn Kristínar eru a) Arnór Gísli, f. 5. júní 1987. Sonur Jökull Tinni, f. 9. jan. 2016. b) Daníel Þór, f. 20. des. 1993. Sambýliskona Ást- rós Ásgeirs. Þeirra sonur Val- týr Þór, f. 13. júní 2019. c) vann hann hjá Endurvinnsl- unni ehf. við viðhald tækja. Gísli kom töluvert að félagsmálum um ævina. Sat í stjórn Félags íslenskra kjöt- iðnaðarmanna og var formað- ur þess um hríð. Þá sat hann í prófnefnd félagsins um nokk- urra ára skeið. Við stofnun Seljasóknar ár- ið 1980 var hann kosinn fyrsti formaður safnaðarnefndar og gegndi hann því starfi í níu ár. Gísli gekk til liðs við Kiw- anishreyfinguna árið 1990 þegar kiwanisklúbburinn Höfði var stofnaður. Hann var mjög virkur í starfi hreyf- ingarinnar og var meðal ann- ars umdæmisstjóri Kiwanis- umdæmisins Ísland – Færeyjar starfsárið 2000- 2001. Árið 2004 gekk Gísli í Odd- fellowregluna en þar gegndi hann mörgum trúnaðar- störfum fyrir stúkuna sína Gissur hvíta, meðal annars sem yfirmeistari 2018-2020. Vegna veikinda hætti Gísli á vinnumarkaðnum fyrri hluta árs 2019. Hann greind- ist nokkru síðar með MND-sjúkdóminn. Útför Helga verður frá Grafarvogskirkju í dag, 13. nóvember 2020, klukkan 15. Streymt verður frá útför- inni: https://vimeo.com/475660758 Virkan hlekk á slóð má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Anna Karen, f. 19. apríl 1999. Sam- býlismaður Haf- þór Júlíusson. 2) Guðmundur Víðir, f. 8. ágúst 1973. Sambýliskona Ell- en Elíasdóttir. Sonur Guð- mundar er Tómas Bjarni, f. 30. maí 1993, dóttir Dalía Mjöll, f. 19. mars 2018, sambýliskona Tómasar Jarðþrúður Hulda Atladóttir, dóttir hennar Alda, f. 2.5. 2017, og sonur þeirra Krist- ófer Bjarmi, f. 10.10. 2020. Dóttir Guðmundar Perla Dís, f. 27. júní 2000, d. 22. sept. 2019. 3) Konráð Valur, f. 13. mars 1979. Maki Sif Sveins- dóttir. Sonur Sveinn Míó, f. 15. okt. 2013. Gísli ólst upp í Skagafirð- inum, en fluttist frá Sauð- árkróki 1965 til Reykjavíkur 16 ára að aldri. Hann hóf þá nám í kjötiðnaði hjá Kjöti og grænmeti, sem var í eigu SÍS. Eftir fjögurra ára nám starf- aði hann hjá fyrirtækinu í 23 ár. Árið 1992 sneri Gísli baki við kjötvinnslustörfum og hóf störf við eigin verktaka- rekstur. Síðustu starfsárin Elsku pabbi minn, það er svo erfitt að kveðja. Ég hélt að við hefðum nokkrar vikur í viðbót saman og færum jafnvel í sólina um jólin, en almættið ákvað ann- að. Ég get ekki lýst því hvað ég sakna þín mikið. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig. Með ást þinni kenndir þú mér að elska, með trausti þínu kenndir þú mér að trúa, með örlæti þínu kenndir þú mér að gefa. Þín dóttir, Kristín (Kiddý). Afi, mér þykir svo erfitt að skrifa hér um þig og til þín. Það er nú langt síðan en það það situr enn svo fast í huga mér að fyrir um 19 árum þegar ég vildi skrifa um hann Valla afa þegar hann féll, að það varst þú sem settist niður með mér og aðstoðaðir. Þú varst alltaf fyrstur að bjóða fram hönd þína sama hver það var. Þetta lýsir þér svo vel, hjálp- samur. Ég mun sakna þín svo mikið afi. Þú varst ekki bara afi minn, þú varst langafi hans Tinna sem oft- ar en einu sinni óskaði eftir að hitta þig og ömmu. Þú varst mér sem faðir, vinur, yfirmaður, samstarfsmaður, ferðafélagi um útlönd og lífið. Sú manneskja sem ég leit einna mest upp til. Ég á óteljandi minningar með þér og flestar ómetanlegar sem ég mun minnast þangað til ég kveð. Það er svo margt sem ég lærði af þér og er ævinlega þakklátur fyrir að hafa haft þig við hlið mér í þann tíma sem við fengum sam- an. Að tala við þig var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman þú varst svo góður, þú varst svo klár. Æ, hvað þessi söknuður verður sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég mun sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt Hann var mér svo góður, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann mæli hennar og stjórnaði hann hátíðarfundi í tilefni afmælisins af miklum virðuleik og yfivegun og var ég hreykinn af honum og stoltur að hafa fengið hann til liðs við Oddfellow. Gísli var gull af manni með skemmtilegan húmor, ég á eftir að sakna míns góða vinar og kveð hann með þakklæti og virðingu og það gera bræður í Gissuri hvíta líka. Við Anna erum þakk- lát fyrir heimsókn þeirra hjóna til okkar í sumarbústaðinn í lok júní og kaffiboðið hjá þeim stuttu áð- ur en þau fóru til Spánar. Við sendum Önnu og fjölskyldu og hinum mörgu vinum Gísla sam- úðarkveðjur. Stefán R. Jónsson. Það var sárt að fá símtal um að Gísli vinur okkar og kiwanisfélagi væri fallinn frá. Það var í apríl 1990 að ég fór út í Foldaskóla í Grafarvogi á kynningarfund um Kiwanis. Veit ekki af hverju ljós- hærði gæinn á næsta borði vakti athygli mína. Hann hlustaði íbygginn á ræðumenn kvöldsins og drap fingrunum á borðið, spurði spurninga um Kiwanis, sem mér datt ekki í hug sjálfum. Þessi gæi hlaut að vinna í fé- lagsmálum hugsaði ég, enda kom það á daginn, búinn að starfa í sóknarnefnd. Kiwanisklúbburinn Höfði var stofnaður þetta kvöld, Gísli gerð- ur að fyrsta forseta og ég ritari hans. Mikill vinskapur skapaðist á milli okkar hjóna og Gísla og Önnu, sem varað hefur í 30 ár. Gísli var mikill félagsmálamaður, það var ótrúlegt hvað hann komst yfir og tók sér fyrir hend- ur og skilaði með sæmd. Smátt og smátt urðum við nánir vinir í gegn um Kiwanis. Eitt sinn er ég fór í Gunnlaugsbúð í Grafarvogi og nálgaðist kælinn sem lamba- lærin voru geymd í sá ég mann á kafi ofan í kælinum, veltandi hverju lærinu á eftir öðru. Þá spurði ég: „Gísli minn, hvað ertu að gera hálfur ofan í kælinum, líkar þér ekki verðið á kjötinu?“ Reis þá vinurinn upp með sigur- glampa í augunum, með lamba- læri í hægri hendi og sagði: „Björgvin, þetta er læri af gimb- ur, miklu mýkra kjöt.“ Þar sem hann var lærður kjötiðnaðarmað- ur vissi hann allt um kjöt. Skagafjörðurinn var hans æskuslóð og það kom ljómi í augu hans þegar hann bar á góma. Þegar Gísli var sextugur, fyrir korteri, komu þau hjónin í húsið okkar í Tungunum. Eftir góða kvöldmáltíð á 17. júní spyr ég Gísla hvaða lag hann myndi vilja hlusta á. „Rósina,“ svaraði hann, „með Álftagerðisbræðrum.“ Er ég heyri þennan söng, enn þann dag í dag, hugsa ég til míns góða vinar og mun gera áfram. Ég gæti skrifað margt um okkar samverustundir. Ég geymi þær í kolli mínum. Elsku Anna, börn og fjölskylda, við Sig- rún vottum okkar dýpstu samúð og megi Guð varðveita ykkur. Þar sem spor þín liggja, kæri vinur, mun ég ávallt minnast þín. Björgvin Andri og Sigrún. Það er góðan félaga að kveðja þegar horft er á eftir Gísla H. Árnasyni. Manni, sem var af- skaplega gott að umgangast, vinna með og treysta á. Líka það, að hafa mátt í miklum störfum eiga dýrmæta vináttu. Fundum okkar Gísla bar fyrst saman fyrir fjörutíu árum. Báðir vorum við þá kallaðir til sameig- inlegra starfa, þar sem þörf var fyrir áhuga og starfsvilja. Gísli hafði þá verið valinn fyrsti for- maður nýstofnaðrar Seljasóknar og ég var nýkjörinn fyrsti sókn- arprestur sömu sóknar. Þar voru okkur færð í fang mikil verkefni með fleira góðu fólki að vinna allt frá grunni. Við þannig aðstæður er nauð- syn að eiga hugsjónir og vilja til starfa og að starfa saman. Þar var einstaklega gott og farsælt að starfa með Gísla. Hann hafði trausta og prúð- mannlega framkomu, kunni líka að hafa þá festu sem nauðsynleg er hjá þeim sem eru leiðtogar. Í safnaðarstarfinu er boðskap- ur heilagrar kirkju það takmark, sem setja skal hæst. Við þau störf þarf einstaklinga, sem eiga hugsjón trúarinnar á Jesúm Krist. Þá hugsjón hafði Gísli og fylgdi henni eftir. Hann átti ákaf- lega gott með að tjá þann boð- skap í orðum. Prédikaði oft eftirminnilega við samkomur og athafnir. Það er því í mörgu þakklæti og virð- ing í huga okkar, sem fengum að starfa með Gísla. Við máttum líka horfa til ljúfra áfanga og sigra í hugsjónarstarfinu. Það var mikil eftirsjá, þegar Gísli, með sinni góðu fjölskyldu, flutti í aðra sókn. En hann var alltaf mikill félagsmálamaður. Við fréttum af því, að hann hélt áfram félagsstörfum. Okkur kom það ekki á óvart, að víða var hann valinn til mestu forystustarfa og ábyrgða. Hann var líka hetja í baráttu við erfiðan sjúkdóm á síðustu árum. Það er söknuður að horfa á eftir góðum vinum, minnast margs. Á þeim stundum er dýr- mæt trúin sem Gísla var hug- sjón. Um nálægð frelsarans í lífi og í dauða. Þangað er gott að horfa á kveðjustundu. Blessuð sé minning góðs samstarfsmanns og vinar. Valgeir Ástráðsson. Með sorg í hjarta kveðjum við í dag kæran vin okkar, Gísla Helga Árnason. Það má með sanni segja að Gísli hafi leikið stórt hlutverk í lífi okkar. Gísli og Anna, uppeldissystir og frænka, tóku saman snemma á unglingsárunum og hafa verið samstíga gegnum lífið, mikill er missir Önnu. Ég er svo lánsamur að hafa fengið að fylgja þeim eft- ir frá því ég man eftir mér. Gísli var einstakur maður, hann var mér mikil fyrirmynd og mótaði mína sýn á lífið og tilveruna. Gísli var einstaklega bóngóður og ávallt tilbúinn til að aðstoða ef með þurfti. Það kom enginn ann- ar en Gísli til greina sem svara- maður þegar ég gifti mig. Gísli var menntaður kjötiðn- aðarmaður og starfaði við það um árabil. Laghentur og úrræða- góður var hann, og ófáar íbúðir og hús sem hann byggði eða breytti og þar gekk hann í öll verk og vann þau einstaklega vel. Gísli var mikil félagsvera og þótti fátt skemmtilegra en að taka þátt í félagsstörfum. Ferðalög heilluðu Önnu og Gísla og nutu þau þess að ferðast vítt og breitt um heiminn sem og innanlands. Alltaf var Gísli und- irbúinn og vel lesinn um þær ferðir sem til stóð að fara í. Það er okkur hjónum afar kært að hafa farið með þeim til Spánar núna í september þar sem Gísli naut sín í hitanum þrátt fyrir veikindin. Vertu sæll kæri vinur og þakka þér fyrir samfylgdina. Minning um góðan mann lifir í hjörtum okkar. Elsku Anna og fjölskylda, við Guðrún sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Unnar Reynisson. Stórt skarð er höggvið í vina- og félagahópinn við fráfall okkar einstaklega góða vinar og félaga Gísla Helga Árnasonar sem and- aðist 1. nóvember sl. Gísli var einn af frumkvöðlum um stofnun Kiwanisklúbbsins Höfða þann 17. apríl 1990 og var Gísli fyrsti for- seti klúbbsins. Hann var mjög virkur í öllu starfi klúbbsins í gegnum tíðina, gegndi hann nær öllum trúnaðarstörfum í klúbbn- um svo og æðstu trúnaðarstörf- um innan Kiwanishreyfingarinn- ar, m.a. umdæmisritari og umdæmisstjóri. Þegar horft er til baka rifjast upp margar minning- ar og ekki síst allar gleðistund- irnar sem við áttum saman með eiginkonum okkar hvort sem var hér á landi eða erlendis. Margar vinnustundir áttum við saman hvort sem við stóðum í fjáröflun eða sinntum öðrum störfum inn- an klúbbsins. Fyrir nokkru greindist Gísli með MND-sjúk- dóminn og tók hann því áfalli með æðruleysi en hann lét það ekki stöðva sig við að mæta á fundi hjá okkur. Gísli var mjög vandaður maður, hógvær, greiðvikinn og öðru fremur skemmtilegur fé- lagi. Hann þekkti starfsemi Kiw- anis mjög vel, fræddi hann okkur og leiðbeindi um hvernig við ætt- um að haga starfi okkar í klúbbn- um. Hann tók að sér að skrifa sögu klúbbsins og gerði hann það með miklum sóma. Það er komið að kveðjustund, það er sárt, en minning um góðan vin og félaga huggar okkur um leið og við kveðjum hann. Blessuð sé minn- ing hans. Elsku Anna og fjölskylda, mik- ill er ykkar missir og er samúð okkar Höfðafélaga hjá ykkur. F.h. félaga í Kiwanisklúbbnum Höfða Guðmundur Stefán Sigmundsson. Gísli Helgi Árnason HINSTA KVEÐJA Ég bið mína engla að bæta minn hag er bjartsýnn að morgni ég vakna, að alúð og fegurð ég öðlist í dag og einskis ég þurfi að sakna. Ég bið að þeir veiti mér einlæga ást, að aftur ég nái að kætast, að dýrðleg nú muni hér dags- birtan sjást og draumarnir fái að rætast. Ég þrái að blómstri mín viska svo virk, að veröldin muni mér hlífa. Ég þrái að finna í frelsinu styrk er fæ ég með englum að svífa. (Kristján Hreinsson) Hinsta kveðja, Sigurður Pálsson. það veit enginn fyrir víst hvað verður um þig nú, en eitt er víst. Að sá mikli fjöldi sem elskaði þig svo heitt saknar þín. Hvíl í friði elsku afi. Arnór Gísli Reynisson. Kær vinur til 35 ára er látinn eftir erfið veikindi, sem hann tókst á við af miklu æðruleysi. Við Gísli kynntumst þegar við störfuðum saman fyrir Kiwanis- umdæmið Ísland-Færeyjar. Gísli var mjög virkur í Kiwanishreyf- ingunni. Hann var forseti klúbbs síns og sinnti mörgum störfum fyrir hreyfinguna og var umdæmisstjóri Kiwanishreyfing- arinnar á íslandi og Færeyjum 2000-2001. Umdæmisþing sitt hélt hann í Færeyjum sem var í fyrsta skipti sem umdæmið hélt þing sitt þar. Um 300 Íslendingar sóttu þingið, Kiwanisfélagar og makar. Fóru flestir sjóleiðis með Norrænu, en 45 manns ætluðu með flugi. Vorum við Gísli áhyggjufullir, þegar fluginu var frestað tvisvar sinnum vegna þoku, að yfirstjórn Kiwanishreyf- ingarinnar og erlendir gestir kæmust ekki til þings. En seint á fimmtudagskvöldi kom vélin og þing var sett klukkan 9 á föstu- dagsmorgni og voru sumir þing- fulltrúar ekki búnir að jafna sig eftir ævintýralegt flug og lend- ingu, hefðu kannski þurft áfalla- hjálp. En þingstörf gengu vel undir rólegri og yfirvegaðri stjórn Gísla og var honum til mik- ils sóma. Félagar í Kiwanishreyf- ingunni kveðja Gísla núna með þakklæti fyrir vel unnin störf. Margar góðar minningar rifj- ast nú upp frá samstarfi okkar og frá ferðalögum innanlands og ut- an, í heimsóknum til klúbba úti á landi og ferðir á Evrópu- og heimsþing Kiwanishreyfingar- innar. Einnig frá ferðum með Oddfellowstúkunni. Þau hjón Anna og Gísli voru einstaklega góðir og skemmtilegir ferða- félagar. Fyrir rúmum 20 árum kynnti ég Oddfellowregluna fyrir Gísla og hvatti hann til þess að sækja um inngöngu í stúkuna Gissur hvíta, gerði hann það okkur öll- um til góðs. Hann tók strax virk- an þátt í starfi stúkunnar og gegndi hann mörgum trúnaðar- störfum fyrir hana. Gísli var yf- irmeistari stúkunnar á 20 ára af-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.