Morgunblaðið - 13.11.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.11.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt NETVERSLUN gina.is Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi 12500 St. 10-24 netverslun gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander Hybrid. Flottasta typa með öllum búnaði. Til sýnis á staðnum í nokkrum litum með og án króks. Langt undir Tilboðsverði umboðsins Verð: 5.890.000,- - www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Seltjarnarnes Engin dagskrá á vegum félags og tómstundastarfsins er í dag föstudag. Vonum að tilefni verði til tilslakana bráðlega. Förum varlega og munum persónulegar sóttvarnir. Góða helgi. Björn Arnar Bergsson var fæddur í Borgar- nesi, bjó í Reykja- vík nær tuttugu ár eftir starfs- lok en var fyrst og fremst Skagamaður. Á Akranesi ólst hann upp, stofnaði sína fjöl- skyldu, ól upp sín börn og skil- aði sínu farsæla ævistarfi þar og þaðan. Starf hans sem rafmagnseft- irlitsmaður í Borgarfirði var á flestan hátt brautryðjendastarf en um leið einyrkjastarf fyrsta áratuginn þar sem hann vann jöfnum höndum við línulagnir, hústengingar og viðgerðir ásamt mælalestri og skrif- Björn Arnar Bergsson ✝ Björn ArnarBergsson fæddist 13. júlí 1935. Björn lést 22. október 2020. Útför Björns fór fram 3. nóvember 2020. finnsku í framhald- inu. Mest krefjandi hefur eflaust verið samfelld bakvakt og baráttan við náttúruöflin þar sem slitnar og slig- aðar línur og ís- brynjaðar spenni- stöðvar ógnuðu oft öryggi heimila og fyrirtækja jafnt í hversdegi og á jól- um. En með vönum línumönnum, vaxandi reynslu og ráðum undir rifjum voru málin leyst. Enn þá er búið að þeim ráðum sem Bjössi og hans menn beittu við ísingarvarnir fyrir áratugum. Þegar ég spurði hann út í þetta nýlega sagðist hann bara hafa lesið um þetta einhvers staðar fyrir mörgum árum en ekki fundið þetta upp hjá sjálfum sér. Þetta var dæmigert svar og lýsandi fyrir manninn og passaði um leið við persónulýs- ingu og heilræði Hallgríms Pét- urssonar: Lítillátur, ljúfur, kátur, leik þér ei úr máta. Varast spjátur, hæðni, hlátur, heimskir menn sig státa. Ein sterkasta sameiginlega minning okkar Bjössa var þeg- ar ég naut þess heiðurs í einu jólafríinu að aðstoða hann og aka með honum um Borgar- fjörð og tengja og kveikja fyrstu rafmagnsljósin á bæjun- um í Hvítársíðunni. Á ónefnd- um bæ kveikti Bjössi fyrsta ljósið í eldhúsinu eftir tengingu. Húsmóðirin, öldruð kona, fórnaði höndum í fögnuði og undrun og bauð okkur síðan til veislu sem var soðið heilagfiski, líklega það mesta og besta ný- meti sem hugsast gat svo langt frá sjó. Enda tilefni, loks var komið rafljós í bæinn eftir þúsund ára bið. Fleiri minningar eru kærar eins og þegar við ókum um bæ- inn að dreifa lakkrís í búðir, ég sjö ára og hann rúmlega tvítug- ur í aukavinnu. Í sæluvímu með metralanga marsípanlengju á milli okkar í framsætinu gleymdi ég alveg að ég átti að fara í ljós hjá skólalækninum og var það lík- lega í fyrsta skipti sem ég gleymdi einhverju og hugsaði mikið um það hvernig hægt væri að gleyma einu skyldu sinni í hinum einfalda heimi sem þá var. Rólyndi Bjössa, ljúft viðmót, frjótt hugmyndaflug og hnyttn- ar athugasemdir, allt var þetta vel metið í okkar fjölskyldu frá fyrsta degi og öll þau 65 ár sem hafa liðið síðan Inga elsta systir okkar kynnti hann fyrir fjöl- skyldunni. Fyrir okkur krakkana var það sjálfgefið en um leið merki- legt síðar að Bjössi og reyndar þau bæði hann og Inga hafa aldrei skammað nokkurt okkar systkina á þessari löngu leið. Þeirra börn hafa væntanlega svipaða sögu að segja og eru enda sérlega samheldinn hópur sem hefur reynst foreldrum sínum afar vel þegar heilsu þeirra hnignaði og þrekið dvín- aði. Fyrir hönd okkar systkin- anna færi ég Ingu og öllum af- komendum og aðstandendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Góður maður er geng- inn. Megi Björn Arnar Bergs- son hvíla í friði. Magnús Ingólfsson. ✝ Gunnar Sig-urðsson fædd- ist í Reykjavík 19. apríl 1943. Hann lést á gjörgæslu- sjúkrahúsi í Las Palmas á Gran Can- aria 2. október 2020. Foreldrar Gunn- ars voru þau Sveinn Sigurður Hannsson, fæddur á Eskifirði 28. apríl 1910, látinn 4. sept- ember 1951, og Sigríður Þor- björnsdóttir, fædd í Reykjavík 6. janúar 1916, látin 8. júlí 1980. Gunnar var næstelstur fjögurra systkina sinna, Þorbjörn, f. 1938, d. 1984, Sigþór, f. 1949, d. 2020, Sigríður Rebekka, f. 1951, búsett í Hafnarfirði. Gunnar lætur eft- ir sig tvo syni, Svein Sigurð Gunnarsson, f. 1962, móðir Alda Sigurjónsdóttir, f. 1944, d. 2002, og Gunnar Inga Gunn- arsson, f. 1974, móð- ir Ingibjörg Jóns- dóttir, f. 1942, d. 2016, ásamt stjúp- dóttur, Sigrúnu Pedersen, f. 1972, móðir Ingi- björg Stefánsdóttir, f. 1939, d. 1993. Sveinn á eina dóttur, Öldu Björgu Sveinsdóttur, f. 1983, og barnabörn, þau Töru Sif, f. 2011, og Ísak Mána, f. 2016. Gunnar Ingi á eina dóttur, Valborgu Laugardagurinn 19. septem- ber líður mér seint úr minni. Þá fékk ég tilkynningu um að Gunn- ar bróðir minn hefði fengið al- varlegt hjartaáfall kvöldið áður og lægi á sjúkrahúsi á Gran Canari, ástandið reyndist mjög alvarlegt og komst hann aldrei til meðvitundar. Kanaríeyjar voru honum mjög hjartfólgnar og vildi hann hvergi annars staðar vera yfir veturinn. Hann og Fríða hans dvöldu þar marga undanfarna vetur, en seinnipart vetrar 2019 veiktist Fríða og lést 26. júní 2019. Sökn- uður Gunna var mikill eða eins og hann sagði sjálfur að bestu ár ævi sinnar átti hann með Fríðu. Það var undurfallegt að sjá þau saman, gagnkvæm virðing og væntumþykja. Á Kanarí eignuðust þau marga góða vini. Gunni bróðir var mikill áhugamaður um skot- fimi og keppti bæði hér heima og eins á Kanarí. Hann byrjaði ung- ur að vinna eins og títt var í þá daga, hann var í sveit og undi sér vel. Sjórinn heillaði, hann var bæði á fiskiskipum og milli- landaskipum. Aldrei gleymast ferðirnar sem við systkinin fór- um saman með mökum til Te- nerife, ég vissi að þeir bræður vildu heldur fara til Kanarí en gerðu það fyrir litlu systur að koma til Tenerife. Já, lífið er undarlegt, ég hefði ekki trúað, þegar við kvöddumst eftir jarðarför Sigþórs bróður okkar, að það yrði í síðasta sinn sem við hittumst - þú á leiðinni á sólskinseyjuna þína - en lífið kemur manni stöðugt á óvart. Ósanngjarnt, já ég held að mér hafi fundist það, að taka ykkur með svo stuttu millibili frá okk- ur. Bið ég góðan guð að styrkja börnin þín og fjölskyldur. Þótt ég kveðji þig með sorg í hjarta lít ég á tímann okkar saman með hlýju og brosi. Þín systir, Sigríður Rebekka (Beggý) og fjölskylda. Betri mann en Gunnar hef ég ekki þekkt. Nú þegar ég horfi yfir farinn veg og rifja upp stundir okkar saman þá átta ég mig á því að þær minningar sem ég á með Gunnari eru hinar glaðlegu minningar bernskunn- ar. Þessar minningar sem maður hefur alltaf tekið sem sjálfsögð- um hlut en eru ekki á allra kosti, þessar minningar sem Gunnar gaf mér. Ég minnist þeirra, ekki vegna atburða þeirra, heldur vegna kátínunnar sem býr í þeim öllum. Kátínunnar sem bjó alltaf í Gunnari. Hann kom mér í afa stað þegar ég var enn mjög ungur og því hef ég aldrei þekkt lífið án hans Gunnars. Ég hef aldrei þekkt lífið án hlátraskallanna, án brossins, án gleðinnar sem í honum bjó. Við- horf hans til lífsins var nefnilega alltaf eins, að það væri gott og fagurt, og sama hvað ég reyndi sem prakkaragjarn strákur gat ég ekki umturnað því. Gunnar var nefnilega alltaf jafningi minn og verð ég helst að þakka honum fyrir það; að leyfa mér að vera barn í heimi fullorðinna með því að sýna mér að í öllum býr nefni- lega barn. Ef það var ekki ég sem gerði prakkarastrikin þá var það Gunnar. Þær voru ófáar rusla- tunnurnar á Hlemmi sem fengu að finna fyrir spörkum okkar. Hann hafði endalausa þolin- mæði, hvort sem það var uppi á fjalli að elta tófu eða niðri í fjöru að tína saman þara með litlum dreng að spinna sögur um sæ- skrímsli. Hlýjan sem bjó í hjarta hans var þrotlaus og beindist hún til allra sem fengu að kynn- ast honum en þá sérstaklega gagnvart henni ömmu minni Fríðu. Sambandi þeirra var á þann veg háttað að aldrei sló í brýnu milli þeirra. Gunnar var þrotlaus brunnur af þolinmæði og gleði og ég get ekki ímyndað mér fjölskyldu mína án hans. Enda er hann partur af henni. Sú ást sem hann sýndi til ömmu minnar og allra hennar afkom- enda er eitthvað sem ég mun hafa sem leiðarstef í gegnum líf- ið, hvernig á að miðla ást og gleði, ég lærði það nefnilega fyrst hjá Gunnari. Mikið sem ég á eftir að sakna hans, vikulegu símtalanna (að minnsta kosti), hlátursins, bross- ins og ástarinnar. Minn allra besti vinur, jafningi minn síðan ég var barn, sá sem sýndi mér hina glaðlegu ásýnd barns í full- orðnum líkama. Hann er farinn á brott til ástar sinnar eftir stutta fjarveru en hann skilur eftir sig ljóstíru. Ljóstíru sem mun halda áfram að lifa í mér og öllum þeim sem hann snerti. Því kveð ég Gunnar, jú, vissulega með sorg en einnig með hinni mestu sátt. Því sem barn og ungur maður átti ég rækilega góðan vin. Vin sem sýndi mér allt hið góða sem lífið býður upp á. Ef mitt eina markmið í þessu lífi verður að halda uppi viðhorfi og gleði Gunnars til heimsins þá veit ég það vera hið besta mark- mið og mun ég reyna mitt allra besta til þess að halda minningu hans á lofti. Með brosi og hlátri mun ég reyna að lifa, því sá besti maður sem ég nokkurn tímann kynntist lifði þannig, og hann lifði vel. Hvíl í friði, vinur minn. Þórir Freyr Höskuldsson. Leiðir okkar Gunnars lágu fyrst saman fyrir rúmum 20 ár- um þegar þau Guðfríður Her- mannsdóttir móðir og tengda- móðir fóru að búa saman. Á fyrstu árum okkar kynna bjugg- um við Elsa ásamt börnum í Frakklandi þar sem Gunnar og Fríða dvöldu hjá okkur um nokkurra vikna skeið. Fjölskyldan myndaði fljótlega mjög góð tengsl við Gunnar sem styrktust með árunum. Sérstak- lega náðu yngstu börn okkar góðu sambandi við Gunnar en þar spilaði persónuleiki hans vel inn í því hann hafði einstakt lag á að ná til þeirra. Samskiptin voru mikil á þessu árum og margar góðar minning- ar koma upp í hugann. Minn- ingin um góðan dreng sem gott var að leita til situr sterk eftir. Gunnar var úrræðagóður, handlaginn og bjó að mikilli reynslu af alls kyns störfum og iðju sem hann hafði tekið sér fyrir hendur í sínu lífshlaupi. Mikill og flinkur veiðimaður sem unun var að sjá hvernig bar sig að við að renna fyrir fisk. Gunn- ar hafði einnig mikið dálæti á skotveiði og skotfimi en hann kenndi og keppti á því sviði með miklum og góðum árangri jafnt innanlands sem erlendis. Oft kom hann með björg í bú og naut fjölskyldan þess að fá bráðina vel til reidda eftir að Gunnar var búinn að meðhöndla hana af sinni fagmennsku. Á síðustu árum dvöldu Gunn- ar og Fríða oft veturlangt á Kanarí. Við Elsa áttum því láni að fagna að heimsækja þau í nokkur skipti og var virkilega gaman að finna hversu vel þau undu hag sínum. Hjálpaði þar til að þau höfðu myndað sterkan og náinn vinahóp Íslendinga. Það var eftirtektarvert að sjá hvað Gunnar var orðinn hagvanur á staðnum, þekkti hvern krók og kima og greiddi götu okkar af mikilli eljusemi. Það var ánægjulegt að upplifa í gegnum árin hversu samrýnd Gunnar og Fríða voru og nutu samvista hvort annars. Í veik- indum Fríðu var aðdáunarvert að sjá hversu vel Gunnar ann- aðist hana af mikilli ósérhlífni. Fríða féll frá á síðasta ári. Við Elsa minnumst Gunnars með mikilli hlýju og þakklæti. Við vottum börnum Gunnars og fjölskyldu hans innilega samúð. Elsa Þórisdóttir. Höskuldur Ásgeirsson. Gunnar Sigurðsson Lilju, f. 2007. Sigrún á þrjú börn,þá Sigurjón, Gest og Styrmi. Sambýliskona Gunnars til 20 ára var Guðfríður Hermanns- dóttir f. 2. apríl 1931, d. 26. júní 2019. Gunnar ólst upp í Vesturbæn- um í Reykjavík og fór ungur að stunda sjó. Þegar árin færðust yfir fór Gunnar í land og starfaði lengst af sem húsvörður í Aust- urbrún 4 ásamt því að starfa sem prófdómari og leiðbeinandi í skotfimi. Bálför Gunnars fer fram frá Digraneskirkju í dag, 13. nóv- ember 2020, og hefst athöfn kl. 13. Vegna Covid verður útförinni streymt og er fólk beðið að halda sig heima. Streymi á útför: https://youtu.be/ORhlFEXT2cw Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Bæði hér heima og erlendis var Már sérstaklega mikils metinn í störfum sínum á sviði flutn- inga en hann hafði í áratugi yf- irumsjón með stórflutningum hjá Nesskipum. Vegna þess víðtæka trausts sem hann naut, má með sanni segja að hann hafi verið goð- sögn í flutningageiranum. Fjöl- mörg innlend og erlend fyrirtæki nutu þannig um langt árabil góðs af þekkingu hans, reynslu og út- sjónarsemi á sviði stórflutninga og vegna hins víðtæka trausts sem hann naut varð hann vinamargur jafnt innan sviðs starfa sinna sem utan. Már var miðpunktur gleð- innar í góðra vina hópi og hann var í senn hógvær maður og litríkur. Hann fylgdist vel með íþróttum og stundaði sjálfur langhlaup vel fram yfir miðjan aldur. Hann var alltaf gegnumheill Valsmaður, en hann hafði líka sterkar taugar til Gróttu, sem var heimaliðið síðustu áratugina. Það var alltaf gaman að skella sér á kappleik með Mása, en ef hann einhverra hluta vegna Már B. Gunnarsson ✝ Már fæddist21. febrúar 1945. Hann lést 12. október 2020. Útförin fór fram 12. nóv- ember 2020. komst ekki á mikil- vægan leik, þá var viðkvæðið jafnan: „Þú sérð bara um þetta!“ Már var traustur veiðifélagi og af- burðagóður laxveiði- maður sem gat lesið rétt í óvenjulegar að- stæður á veiðistað á þann hátt sem aðeins fáum veiðimönnum er gefið. Minningarnar úr veiðiferðunum eru margar og þær eru sterkastar frá veiðitúrun- um í Kjarrá og Þverá í Borgar- firði, en þær perlur þekkti Már vel. Mikilvægur hluti veiðiferð- anna var að njóta skemmtilegrar frásagnarlistar hans, en hann var einstaklega minnisgóður og óþrjótandi sagnabrunnur. Það var mér og fjölskyldu minni mikið lán að fá að þekkja Má. Vinskapur okkar var mikill og góður alveg frá því við kynntumst gegnum störf okkar um miðjan 9. áratug síðustu aldar. Auk allra góðu minninganna frá daglegum samskiptum okkar, minnist ég sérstaklega ótal tónleika sem við sóttum saman. Ég kveð minn góða vin með söknuði. Dætrum, tengdasonum og fjölskyldunni allri sendum við Brynja okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Árni Benedikt Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.