Morgunblaðið - 13.11.2020, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2020
Límtré
• Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré
• Hægvaxið gæðalímtré
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Breiðskífan Tendra með samnefndri
hljómsveit kom út í byrjun nóvem-
ber á netinu, á geisladiski og vínyl-
plötu. Tendru skipa Mikael Máni og
Marína Ósk en þau hafa komið víða
fram á undanförnum misserum sem
dúett og einkum flutt djass og þjóð-
lagatónlist eftir aðra. Bæði eru
djassmenntuð, Mikael gítarleikari
og Marína söngkona, en á Tendru
kveður við annan tón því hún er ekki
djassplata.
Mikael segir
þau Marínu
hafa stofnað
Tendru til að
skilja sig frá
dúettinum
Marínu og
Mikael og
þjóðlaga- og
djasstónlistinni. „Þetta er meira
svona „alternative pop“ og „singer/
songwriter“ tónlist,“ segir hann um
Tendru og mögulega muni Tendra
taka algjörlega við af Marínu og
Mikael.
Mikael og Marína hafa unnið sam-
an í sex ár og fyrir þremur árum
gáfu þau út plötu saman, Beint
heim, undir nafninu Marína & Mika-
el og var það dægurlaga- og djass-
plata. Platan var tilnefnd sem djass-
plata ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum árið 2018 og hafa
Marína og Mikael einnig verið til-
nefnd hvort í sínu lagi, Marína í tví-
gang nú í ár í opnum flokki fyrir
plötu sína Athvarf, fyrir plötu og lag
ársins og Mikael sem lagahöfundur
ársins í djassflokki fyrir plötuna
Bobby.
Mystísk blæja
Mikael er beðinn um að lýsa tón-
listinni frekar. „Þar sem þetta er
fyrsta platan okkar leyfðum við okk-
ur að vera mjög leitandi þannig að
þetta er ekki endilega í einum stíl
sem er svolítið gaman og maður fær
kannski bara svona „leyfi“ til að
gera þetta á fyrstu plötu,“ segir
Mikael. „Við Marína ákváðum að
gera þessa plötu að mestu sjálf og
gera tilraunir þannig að ég spila eig-
inlega inn öll hljóðfærin en tveir
snillingar voru með okkur. Við erum
með selló í nokkrum lögum sem
Heiður Lára Bjarnadóttir leikur á
og Kristofer Rodriguez Svönuson
leikur á slagverk,“ bætir Mikael við.
„Á fyrri hlið plötunnar sér-
staklega myndi ég lýsa tónlistinni
eða sándinu þannig að mystísk
blæja væri yfir því. Það er bæði raf-
sánd og svona hljómborðssánd eins
og úr Rhodes sem virkar eins og
hljóðmynd, dálítið eins og þú sért í
kvikmynd og þau lög eru mjög
„visual“,“ útskýrir Mikael. Fyrir
honum sé útkoman ævintýraleg.
Hönnunin mikilvæg
Blaðamaður nefnir að langt sé síð-
an hann heyrði ungan tónlistarmann
tala um „aðra hlið“ plötu þar sem
allt sé meira og minna stafrænt í
dag. Í „gamla daga“ hafi þetta verið
heilmikið mál, A- og B-hlið vínyl-
platna, hvað væri á hvorri, í hvaða
röð og hvert væri upphafs- og loka-
lag hvorrar hliðar. Mikael hlær að
þessu og segist allt frá unga aldri
hafa spáð í hvaða hlið höfðaði mest
til sín á vínylplötum. Hann nefnir
Electric Ladyland með Jimi Hend-
rix, hina tvöföldu vínylplötu. „Fjórða
hliðin, D, er uppáhalds,“ segir Mika-
el sposkur en á henni má m.a. finna
„Voodoo Child“ og „All Along the
Watchtower“.
Mikael er spurður að því hvort
miklu hafi skipt þau Marínu að gefa
út á vínyl og geisladiski. Já, hann
segir svo vera, miklu skipti þau
hvernig platan sé hönnuð, hvernig
hún líti út. „Það kemur ekki fram á
digital formi og tími fólks sem er að
hlusta er líka svo mikilvægur og ef
það hlustar á plötuna af vínyl er
upplifunin miklu dýpri en ef hlustað
er í tölvunni,“ útskýrir Mikael. Þau
Marína hafi í heildina fullunnið 14
lög en ákveðið að stytta plötuna nið-
ur í níu svo fólk gæti kynnst þeim
hægt og rólega. Í tilkynningu er tal-
að um „early-bítlaplötulengd“.
Vildu gera sem mest sjálf
Textana semja bæði Mikael og
Marína og segir Mikael að platan sé
sú fyrsta með textum eftir hann.
Hann hafi til þessa verið mest í því
að leika tónlist án söngs en á plöt-
unni Tendra skiptast þau Marína á
sem textahöfundar. „Þetta er mjög
gaman fyrir mig því uppáhalds-
tónlistarmaðurinn minn er Bob Dyl-
an, ég hef hlustað mest á hann af
öllu tónlistarfólki,“ segir Mikael um
Nóbelsskáldið góða og að þar séu
textarnir afar mikilvægir.
Textarnir á Tendra fjalla um
„mjög hversdagslega hluti; idolíser-
ingu, lata morgna, söknuð og sjálfs-
leit – frá allskonar skrítnum sjón-
arhornum,“ eins og segir í tilkynn-
ingu og Mikael segir ákveðið flæði
að finna í textunum sem minni á
hugarflæðisskrif í bland við ljóð.
„Það rímar líka við það sem er
fjallað um á plötunni,“ útskýrir
Mikael.
Tónleikahald liggur nú að mestu
niðri vegna fjöldatakmarkana og
ætlar Tendra því að gefa út seríu
stuttmyndbanda í stað þess að halda
útgáfutónleika. Mun tvíeykið gefa út
fjögur myndbönd sem verða eins
konar örtónleikar og það fyrsta mun
líta dagsins ljós í febrúar 2021. Í
myndböndunum mun Tendra flytja
eigin lög í bland við önnur íslensk og
þjóðþekkt.
Hversdagsleg umfjöllunarefni
við ævintýralegan hljóm
Marína og Mikael snúa sér að poppi og söngvaskáldatónlist sem dúettinn Tendra og gefa út plötu
Tendra Marína Ósk og Mikael
Máni eru samstilltur dúett.
Helgi Björnsson, tónlistarmaður og
leikari með meiru, tók við gullsmá-
skífu í gær fyrir lagið „Það bera sig
allir vel“ þar sem því hefur nú verið
streymt yfir 500 þúsund sinnum.
„Ég hafði svo sem trú á þessu lagi,
að það hefði kjörgengi,“ sagði
Helgi í samtali við Morgunblaðið í
gær, „en svo sem ekkert fram yfir
það, í sjálfu sér.“
Helgi segir algjörlega frábært að
lagið hafi fengið svo mikla hlustun
og spurður hvort lagið verði mögu-
lega táknlag Covid-19 segir hann
sposkur að hætt sé við því. Lagið
hafi þó ekki verið samið um kófið
eitt og sér. „Það var búið að vera
svo svakalega ömurlegt veður,
endalaust stormur og leiðindi frá
nóvember, desember síðasta vetur
og áfram fram í janúar og febrúar,“
segir Helgi. Boðskapur lagsins sé
sá að þrátt fyrir leiðindin beri sig
allir vel, hafi það kósí heima og
gleðjist yfir því litla í lífinu.
Þegar kófið verður rifjað upp
munu eflaust margir muna eftir
kvöldvökum Helga og Reiðmanna
vindanna en nýjasta afurð þeirra er
sænska tökulagið „Saman (höldum
út)“ sem Helgi og Salka Sól syngja.
Helgi segist hafa verið heppinn í
kófinu að því leyti að hafa nóg að
gera. „Mér hefur tekist að gera eitt-
hvað í þessu ástandi öllu,“ segir
hann. helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gull Helgi tók við gullsmáskífu úr hendi Sölva Blöndal hjá Öldu Music.
Helgi fékk gullskífu