Morgunblaðið - 13.11.2020, Page 32

Morgunblaðið - 13.11.2020, Page 32
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM NÝTT Á ÍSLANDI SÆKTU APPIÐ MODULAX OG SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI. JAMES STÓLL MEÐ SKEMLI verð 149.900 PANDORA RAFSTILLANLEGUR verð 219.900 Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla. IRIS RAFSTILLANLEGUR verð 209.900 MODULAX HVÍLDARSTÓLAR HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI ZERO GRAVITY ZERO GRAVITY MODULAX • 3-mótora hvíldarstóll. • Handvirk og þægileg höfuðpúðastilling 42°. • Innbyggð hleðslu- rafhlaða. Endist 250 sinnum fyrir alla mótora. NÝTT! MODULAX MARGAR GERÐIR modulax.be BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM Á SVEFNOGHEILSA.IS FRÍR FLUTNINGUR UM ALLT LAND GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Sýning Fritz Hendriks IV, Kjarnhiti, verður opnuð í dag í Harbinger en um læsta opnun verður að ræða þar sem Harbinger-galleríinu verður lokað vegna Covid-19. Hægt verður að skoða sýninguna utan frá, í gegnum glugga gallerísins og verða hitalampar við gluggann þennan fyrsta dag sýningarinnar svo gestir geti ornað sér við innlitið. Kjarnhiti tekst á við væntingar, örlög og vonbrigði á tímum hnattrænnar hlýnunar og farald- urssjúkdóma, segir í tilkynningu og verður hægt að skoða sýninguna ut- an frá allan sólarhringinn fram að jólum. Fritz Hendrik er íslenskur myndlistarmaður og býr og starfar í Reykjavík. Í myndlist sinni hefur hann fjallað um þá meðvituðu og ómeðvituðu sviðsetningu sem ein- kennir lífið, listir og menningu. Hann fæst einnig við samband hefðar, skynjunar og þekkingar í verkum sínum. Læst opnun en hægt að skoða sýningu utan frá fram að jólum FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 318. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Íslenska U21-árs karlalandsliðið í knattspyrnu varð að sætta sig við afar svekkjandi 2:1-tap gegn Ítalíu á Vík- ingsvellinum í gær í undankeppni EM. Ísland er áfram í 4. sæti riðilins með 15 stig og verður nú að vinna Írland úti á sunnudaginn með öllum tiltækum ráðum til að eiga möguleika á að komast á EM. Ítalir eru áfram efst- ir, nú með 19 stig, en Írland og Svíþjóð koma þar á eftir. Ísland átti að mæta Armeníu á Kýpur 18. nóvember en þeim leik hefur verið frestað vegna stríðsástandsins í Armeníu og er ólíklegt að hann geti farið fram. »26 Ísland þarf að vinna Írland eftir tap gegn Ítalíu í Fossvoginum í gær ÍÞRÓTTIR MENNING tækið Norebo er í eigu eins manns. Það er hið öflugasta í Rússlandi með um 30% af bolfiskskvóta landsins og eitt stærsta sinnar tegundar í heim- inum með samtals um 600.000 tonn af bolfiski og uppsjávarfiski upp úr sjó á ári. Sturlaugur Haraldsson hef- ur unnið hjá fyrirtækinu í nær 12 ár og er framkvæmdastjóri annars sölufyrirtækis samstæðunnar, Norebo Europe, stjórnar sölumálum í Evrópu, Bandaríkjunum og að hluta til í Asíu frá skrifstofu sinni rétt vestan við London. „Venjulega eru um 22 manns á skrifstofunni í Maidenhead, en nú vinna allir nema tveir til þrír heiman frá sér og það hefur gengið ótrúlega vel,“ segir Sturlaugur. Öll samskipti, fundir, ráðstefnur og önnur samvinna, eru nánast al- farið rafræn og það er mikil breyt- ing frá því sem áður var. „Sennilega á eftir að draga mikið úr öllum ferðalögum vegna vinnunnar,“ segir Sturlaugur. Í því sambandi nefnir hann að allir stjórnendur Norebo hafi komið saman á fundum í Rúss- landi tvisvar á ári en í ár hafi þeir verið rafrænir. „Í fyrra hittust til dæmis allir framkvæmdastjórar fyrirtækisins í Petropavlovsk aust- ast í Rússlandi og ferðalag þangað tekur bæði mikinn tíma og kostar sitt, þannig að margt sparast með því að halda rafræna fundi. Samt hlakka ég til að hitta viðskiptavini og samstarfsmenn augliti til auglitis, því þrátt fyrir að rafræn samskipti verði áfram jafnast samt ekkert á við það að hitta fólk og spjalla, það mun ekki alveg hverfa.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarin ár hefur Sturlaugur Haraldsson verið á ferð og flugi um allan heim vegna atvinnu sinnar, en nú fer hann hvergi og sinnir starfinu frá heimili sínu á Englandi. Um þessar mundir reyndar frá Akranesi þar hann hefur verið innlyksa nokkrum sinnum vegna faraldurs- ins, fyrst þegar ósköpin dundu yfir og aftur nú. „Ég hef verið að bíða eftir rétta tækifærinu til þess að fara aftur til Englands og hef nýtt tím- ann og unnið hérna á meðan,“ segir hann. Um miðjan mars var Sturlaugur á leið frá Englandi til Bandaríkjanna með millilendingu á Íslandi. „Þegar ég ætlaði áfram vestur var öllu flugi þangað aflýst og engum hleypt inn í landið þannig að ég varð að afgreiða mín mál héðan,“ segir hann um fyrstu truflun faraldursins. Síðan hafi dregið hratt úr ferðum og hann aðeins farið á milli Íslands og Eng- lands. „Núna hef ég beðið í nokkra daga með að fara aftur til Englands í þeirri von að sleppa við tveggja vikna sóttkví,“ segir hann. Miklar breytingar Fyrir skömmu tók Sturlaugur þátt í pallborðsumræðum breska netmiðilsins Undercurrent News, útbreiddasta netmiðilsins um sjáv- arútvegsmál, ásamt fimm öðrum sérfræðingum á mjög fjölmennri netráðstefnu um áhrif faraldursins á stöðuhorfur alaska-ufsa í heiminum á næsta ári. Hann bendir á að um 7,5 milljónir tonna veiðist af hvítfiski ár- lega og þar af um 3,6 milljónir tonna af alaska-ufsa, en talsverð óvissa sé um framhaldið. Mikið magn af heil- frystum alaska-ufsa hafi farið í vinnslu í Kína, en Kínverjar fari nú gaumgæfilega yfir alla fragt og finn- ist einhver merki um veiru á umbúð- unum séu vörurnar endursendar. Mikil vinnslugeta sé í Kína og nú vanti hráefni. „Kína hefur verið „verksmiðja“ heimsins og ef fram heldur sem horfir er líklegt að vinnslan færist að einhverju leyti annað á næstu árum, meðal annars til Evrópu. Athyglisverðar breyt- ingar gætu því verið fram undan.“ Rússneska sjávarútvegsfyrir- Tölvan þarfasti þjónninn  Sturlaugur Haraldsson með heiminn undir á Akranesi  Fjarfundir í stað ferðalaga spara tíma og peninga Ljósmynd/Haraldur Sturlaugsson Í pallborðsumræðum Sturlaugur Haraldsson hefur aðstöðu hjá bróður sín- um þar sem áður var byggingavöruverslun HB við Bárugötu á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.