Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2020, Qupperneq 29
enskum bókmenntum sem væri á bekk með þeim allra bestu. Þess ut- an hafi hann verið heillandi, ljúfur og örlátur við sig og svo marga aðra. Vann hjá leyniþjónustunni Le Carré fæddist árið 1931 og hét réttu nafni David John Moore Corn- well. Hann réð sig til bresku leyni- þjónustunnar meðan hann lærði þýsku í Sviss undir lok fimmta ára- tugarins. Cornwell kenndi um tíma í hinum virta skóla Eton en gekk síð- an í raðir utanríkisþjónustunnar í Lundúnum og hafði það hlutverk að finna, ráða og fylgjast með njósnur- um handan járntjaldsins. Starfs- bróðir hans hjá MI5, rithöfundurinn John Bingham, veitti honum inn- blástur og hann byrjaði að skrifa og gefa út spennusögur undir dulnefn- inu John le Carré. Forleggjaranum leist rétt mátulega á dulnefnið og hvatti hann til að halda sig á engil- saxneskum miðum og kalla sig til dæmis Chunk-Smith. Okkar maður ansaði því ekki. Sem betur fer. Söguhetjan í fyrstu bók le Carrés, sem kom út 1961, var byggð á téðum Bingham sem mun hafa verið „átak- anlega venjulegur maður … riðvax- inn og hæglátur í fasi“. Hann sá þó við austurþýskum kollega sínum í Call for the Dead og átti að sönnu framhaldslíf fyrir höndum enda þótt hann væri andhverfan við glæsi- mennið James Bond. Nafnið var Smiley, George Smiley. Önnur skáldsagan, A Murder of Quality, kom ári síðar og fékk enn betri dóma en eftir að þriðja bókin, The Spy Who Came in from the Cold, kom út 1963 var le Carré á allra vörum. Smiley er í aukahlutverki í þeirri bók en söguhetjan, Alec Leamas, dregur ekki upp fallega mynd af stétt njósnara; segir þá hálfgerða bjána, svikara, sadista og fyllibyttur sem fari í kúreka- og indíánaleik til að lífga upp á rotna tilvist sína. „Besta njósnasaga sem ég hef lesið,“ er haft eftir rithöfundinum Graham Greene. Sá vinsældirnar ekki fyrir Le Carré sá vinsældirnar alls ekki fyrir né heldur viðbrögðin. Leyni- þjónustan hafði gefið grænt ljós á útgáfuna enda væri sagan uppspuni frá rótum sem ógnaði ekki með nein- um hætti öryggi Bretlands. „Heims- pressan sá það ekki þannig,“ sagði le Carré í viðtali við breska blaðið The Guardian árið 2013. „Hún var á einu máli um það að bókin væri ekki að- eins sönn heldur fælust í henni ein- hvers konar uppljóstrandi skilaboð úr herbúðum andstæðinganna. Sjálfur gat ég ekki annað en setið opinmynntur og fylgst með þegar bókin rauk upp metsölulistann og kom sér makindalega fyrir á toppn- um meðan hver sérfræðingurinn af öðrum hampaði henni á þeim for- sendum að hún væri ósvikin.“ Le Carré naut áfram mikilla vin- sælda á áttunda áratugnum, ekki síst fyrir Tinker, Tailor, Soldier, Spy sem kom út 1974 en þar var Smiley aftur í forgrunni. „Um hvað í ósköpunum ætlar þú að skrifa núna?“ spurðu aðdáendur le Carrés þegar kalda stríðið leið undir lok. Hann var þó hvergi af baki dottinn enda horfði le Carré alltaf á njósnir í stærra samhengi en bara sem rimmu milli austurs og vesturs. Hafði engan skilning á því að fall Berlínarmúrsins markaði ein- hver endalok í sögunni eða fyrir njósnastarfsemi í heiminum. Hann hélt ótrauður áfram og í The Night Manager, sem kom út 1993, beinir hann sjónum sínum að vopna- viðskiptum. Í The Constant Garde- ner, frá 2001, setur hann lyfsölu á oddinn og í Absolute Friends, sem gefin var út 2004, var hryðjuverka- váin til umfjöllunar. John le Carré lagaði sig að breyttri heimsmynd. Smiley settist heldur ekki í helgan stein en le Carré hermdi síðast af honum í A Legacy of Spies árið 2017 – og lokaði þar með hringnum. Í endurminningum sínum viður- kennir le Carré að skrifin hafi verið stóra ástin í lífi sínu. „Ég hef reynt að gera leyniheim- inn sem ég þekkti einu sinni að sjón- arspili fyrir stærri heiminn sem við búum í. Fyrst ímyndar maður sér eitthvað, því næst kemur leitin að veruleikanum. Þá hleypir maður ímyndunaraflinu aftur að við skrif- borðið sem ég sit við núna.“ Blessuð sé minning Johns le Car- rés. Verk hans munu lifa svo lengi sem njósnað verður á byggðu bóli … John le Carré naut vin- sælda í sex áratugi; sendi síðast frá sér bók í fyrra. AFP 20.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 jólagjafa hjálparinn 3.429 manns sögðu okkur hvað þau langar að fá í jólagjöf. Skoðaðu niðurstöðurnar á: aha.is/jol ENGIN UMFERÐ, ENGIN RÖÐ, ENGIN GRÍMUSKYLDA SÓTT Gunnar Nelson hefur bland- að sér í umræðuna um viðbrögð vegna kórnuveirufaraldursins í Bandaríkjunum og lagt til að slegin verði skjaldborg um fólk í áhættu- hópum meðan aðrir geti lifað sem eðlilegustu lífi. Þetta kom fram í samtali sem Baol Bardot Bulsara átti við kappann í hlaðvarpi sínu. Til að forðast misskilning þá erum við ekki að tala um okkar besta mann í búrinu, heldur alnafna hans sem er í rokkbandinu Nelson ásamt tvíburabróður sínum, Matthew. Vill meira frelsi til athafna Gunnar Nelson, söngvari og gítaristi. AFP BÓKSALA 7.-13. DESEMBER Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson 2 Þagnarmúr Arnaldur Indriðason 3 Bráðin Yrsa Sigurðardóttir 4 Vetrarmein Ragnar Jónasson 5 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 6 Orri óstöðvandi – bókin hennar Möggu Messi Bjarni Fritzson 7 Spænska veikin Gunnar Þór Bjarnason 8 Útkall – á ögurstundu Óttar Sveinsson 9 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir 10 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson 11 Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir 12 Lára lærir að lesa Birgitta Haukdal 13 Krakkalögin okkar Jón Ólafsson, Úlfur Logason o.fl. 14 Fjarvera þín er myrkur Jón Kalman Stefánsson 15 Undir Yggdrasil Vilborg Davíðsdóttir 16 Una – prjónabók Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld 17 Dauðabókin Stefán Máni 18 Kökur Linda Ben 19 Lára fer í leikhús Birgitta Haukdal 20 Eldarnir – ástin og aðrar hamfarir Sigríður Hagalín Björnsdóttir Allar bækur Þessa dagana er ég þjappa skýrslum í skylduskilakjallara Amtsbókasafnins. Rýma til fyrir fleirum. Þar kennir ýmissa grasa. Sumar skýrslunar falla ekki að sérviskulegum smekk mínum, en ef vel er að gáð leynist þar eitt og annað bita- stætt, og inn á milli glitra hrein- ustu perlur. Þessa dagana litast náttborðið nánast alfarið af þessum starfa mínum. Mér er bæði ljúft og skylt að draga nokkrar af mínum eftirlætis- skýrslum fram í dagsljósið. Þetta bókmenntaform hefur leg- ið óbætt hjá garði um alltof langt skeið. Það er einlæg ósk mín að þessi stutti pistill verði þess valdandi að lesendur Morgunblaðsins gefi skýrslum meiri gaum. Fyrst ber að nefna Vindmæl- ingar við Kolvið- arhól veturinn 2003-2004 eftir Hrein Hjartar- son, Veðurstofa Íslands gaf út. Mjög fróðleg skýrsla í alla staði. Ég er allavega ýmsu nær. Ég vissi ekki einu sinni hvar þessi hóll var. Og svo komu niður- stöðurnar mér algjörlega í opna skjöldu. Ég hef alltaf verið með „soft spot“ fyrir árframburði, þess vegna þóttist ég hafa himin höndum tekið þegar ég hnaut um Niðurstöður aurburðarmæl- inga í Skaftá árið 2002 eftir Jór- unni Harðardóttur og Svövu Björk Þorláksdóttur. Orkustofn- un gaf út. Virkilega vel stíluð. Knappur og hnitmiðaður texti. Enginn orðavaðall. Engir loftfim- leikar. Engar málalengingar. Bara aurburðarmælingar í sinni tærustu og fegurstu mynd. Næst á blaði eru Geimvarnir: Áætlanir risa- veldanna og áhrif þeirra eftir Albert Jónsson. Öryggis- málanefnd gaf út árið 1987. Albert dregur upp eftir- minnilega og martraðarkennda mynd af heimi á barmi kjarn- orkustyrjaldar. Vakti undirrit- aðan til umhugsunar um fallvelti tilverunnar. Að endingu má ég til með að nefna Samantekt um fé- lagslæknisfræðilega þætti í Hóp- rannsókn hjartaverndar 1967- 1987 – Helstu niðurstöður um atvinnu, hús- næði, lífshætti, mannfræði og heilbrigðisþjón- ustu eftir Ólaf Ólafsson. Land- læknisembættið gaf út. Áður en þessi öndveg- isskýrsla varð á vegi mínum vissi ég lítil deili á hóprannsóknum hjartaverndar á síðari hluta seinustu aldar. Svo er ég til- tölulega nýbyrjaður á Magn- esíumsilikaútfellingum í hitaveit- um eftir Hrefnu Kristmann- sdóttur. Fyrsti kaflinn lofar mjög góðu. ÞÓRÐUR SÆVAR JÓNSSON ER AÐ LESA Þórður Sævar Jónsson er bókavörður. Með „soft spot“ fyrir árframburði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.