Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 4
4 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
ÞYRÍ STEINGRÍMSDÓTTIR HRL.
RITSTJÓRI
Tímarnir breytast og Lögmannablaðið með. Blaðið kemur nú út í upp færðu útliti
og að einhverju leyti í uppfærðum efnistökum. Á undanförnum árum hefur blaðið
þróast nokkuð en ávallt hefur áhersla verið lögð á að skoða og fjalla um málefni
lögmanna sem efst eru á baugi hverju sinni, ásamt aðsendum greinum. Hið nýja
útlit er enn í þróun og mun væntanlega taka frekari breytingum í næsta blaði.
Breytinga-
stjórnun
Það virðast miklar breytingar í kortunum fyrir okkur
lögmenn. Lögmannablaðið hefur fjallað um hið nýja
millidómstig sem mun hafa í för með sér miklar breytingar
á starfsumhverfi lögmanna. Í þessu tölublaði er fjallað
ítarlega um tillögur stjórnar LMFÍ um breytingu á
lögmannalögum vegna millidómstigsins og þau áhrif sem
tillögurnar og fundurinn sem hann var kynntur á hefur
haft að undanförnu. Í blaðinu er einnig viðtal við stofnanda
starfsmannaleigu fyrir lögmenn sem mögulega er vísir að
breytingum á hinu hefðbundna (og e.t.v. íhaldssama)
fulltrúakerfi hjá lögmönnum og lögmannsstofum.
Jafnframt er fjallað um það í blaðinu að fulltrúastarfið
sé ekki framtíðarstarf þeirra sem því sinna en að mati
þeirra fulltrúa sem svöruðu könnun blaðsins er um afar
streituvaldandi starf að ræða með lélegum kjörum. Ein
skýringin á því er offjölgun í stéttinni sem er gríðarleg
breyting frá því sem áður var.
Hvort við lögmenn getum stjórnað þeim breytingum sem
framundan eru verður að koma í ljós. Sumir streitast á
móti meðan aðrir fagna.
Einn lögmaður umfram aðra hefur verið ötull við að
koma gagnrýni sinni og athugasemdum á framfæri í
Lögmannablaðinu. Það er Mörður lögmaður sem skrifar
nú sinn síðasta pistil í blaðið. Hann hefur ákveðið að snúa
sér að glæpasagnaritun eftir nokkrar hremmingar vegna
færslu á Facebook eins og hann lýsir sjálfur í pistli sínum.
Pistill Marðar hefur borist skrifstofu LMFÍ í brúnu ómerktu
umslagi að næturlagi svo lengi sem elstu lögmenn muna.
Hann hefur barið sér á brjóst, flestum til ánægju en sumum
ekki og eflaust munu einhverjir fagna þessari breytingu.
Samkvæmisleikurinn hver er Mörður? hefur ávallt verið
vinsæll á Lagadeginum sem og á öðrum samkomum
lögmanna og á kaffistofunum. Verður því talsverð breyting
á ásýnd og innihaldi Lögmannablaðsins fyrir vikið.
Og talandi um ásýnd og innihald þá getur sú sem
þetta skrifar ekki lengur orða bundist yfir heimasíðu
Lögmannafélagsins. Sú síða var forrituð einhvern tímann
á síðustu öld og hefur litlum ef einhverjum breytingum
tekið síðan þá. Raunar telst síðan á mörkum þess að vera
á internetinu enda varla nothæf í spjaldtölvunni eða í
símanum, sem eru þau tæki sem helst eru notuð til að
skoða síður sem þessar. Ég vil nota þetta tækifæri og skora
á stjórn LMFÍ að ráðast í löngu tímabærar breytingar á
síðunni. Það er í það minnsta breyting sem ég tel að allir
myndu fagna.