Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 17
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 17
styrkja þær. Staðreyndin væri sú að
FKL hefði haft raunveruleg áhrif á
stöðu kvenna í lögmennsku og skipti
miklu máli, ekki hvað síst til þess að
efla tengslanet kvenna. Jafnframt væri
nauðsynlegt að beita rödd félags ins
þegar standa þyrfti vörð um sér stök
hags muna mál kvenna innan stétt-
ar inn ar. Í því samhengi taldi hluti
fundar kvenna að framkomnar til lögur
LMFI hefðu ekki sérstök áhrif á konur
í lögmennsku umfram karla á meðan
aðrar bentu á það mikill meiri hluti
hæsta réttar lögmanna væru karlar
og nýju tillögurnar gætu gert það
að verkum að enn lengra yrði þar til
jafnrétti yrði náð í stéttinni. Þá kom
fram það sjónarmið að rödd kvenna
heyrðist síður innan LMFÍ og því væri
nauðsynlegt að FKL beitti sér í málum
sem þessum. Fram komu sjónarmið
um að það væri fagnaðarefni að
stjórnvöld væru nú farin að senda
félaginu frumvarp til laga til umsagnar
til að leita álits kvenna í lögmannastétt.
Um miðjan september var boðað
til annars félagsfundar hjá FKL þar
sem nýjar konur voru kosnar í stjórn
í stað þeirra sem sögðu sig úr henni.
Ný stjórn var kjörin á fundinum og
nú skipa stjórnina þær Kristrún Elsa
Harðar dóttir hdl., formaður, Anna
Linda Bjarnadóttir hdl., varaformaður
og ritari, Kolbrún Garðarsdóttir hdl.,
gjaldkeri, Þorbjörg Inga Jónsdóttir
hrl., meðstjórnandi og Ingi björg
Ingva dóttir hdl., meðstjórnandi. Í
varastjórn eru Sigríður Vilhjálmsdóttir
hdl. og Ragnhildur Rorí Ólafsdóttir
hdl.
Eyrún Ingadóttir.
Vinstri: Ný stjórn FKL. Sigríður Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Inga Jónsdóttir,
Ragnhildur Rorí Ólafsdóttir, Anna Linda Bjarnadóttir, Kristrún Elsa Harðardóttir
og Kolbrún Garðarsdóttir. Á myndina vantar Ingibjörgu Ingvadóttur.
Hægri: Aldís Geirdal Sverrisdóttir, Ragnhildur Rorí Ólafsdóttir og Kristrún Elsa
Harðardóttir.
Bergþóra Ingólfsdóttir og Marta Margrét Rúnarsdóttir.