Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 6
6 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
Við fall Sovétríkjanna urðu vatnaskil í þróun alþjóðamála. Fjöldi nýrra þjóðríkja var
stofnaður og, a.m.k. í þeim vestlægari, gerðist þetta á grundvelli frelsis og
lýðræðis.
Þróun
heimsmála
Ísland tók virkan þátt í þessari þróun með viðurkenningu
Eystrasaltsríkjanna fyrir aldarfjórðungi síðan. Frá þeim
tíma hafa lýðræðisleg vinnubrögð rutt sér þar til rúms.
Fyrir átta árum fór fram árlegur fundur formanna norrænu
lögmannafélaganna á Íslandi. Þá tóku Eystrasaltsþjóðirnar
í fyrsta skipti þátt í þessum fundum og hafa þær gert það
síðan. Í sumarlok var aftur komin röðin að Íslandi að halda
fundinn og hittist vel á að liðinn væri, nánast upp á dag,
aldar fjórðungur frá hinni upphaflegu viðurkenn ingu
Íslands á sjálf stæði ríkjanna. Að þessu var sérstaklega vikið
á fund inum og minnst með hlýju.
Þjóðir Eystrasaltsríkjanna öfluðu sér sjálfstæðis í stórri
lýðræðisbylgju sem flæddi yfir heiminn. Dæmalausir gæfu-
tímar hafa fylgt í okkar heimshluta og lýðræði hefur skotið
rótum í frjóum jarðvegi Mið- og Austur-Evrópu. Frelsi til
orðs og æðis hefur aukist á öllum sviðum samfélagsins,
velferð hefur aukist og alþjóðaviðskipti hafa sprungið út.
Mann réttindadómstóll Evrópu hefur verið í fararbroddi
um vernd mannréttinda, bæði í hinum nýfrjálsu ríkjum
sem og öðrum ríkjum álfunnar. Eins hafa kjósendur í
mörgum ríkjum kallað eftir breytingum í frjálsræðisátt og
löggjöf hefur lagað sig að slíku. Betur er búið að þeim sem
minna mega sín.
Nú er svo komið að lög innanlands og alþjóðlegir sáttmálar
vernda borgaraleg, stjórnmálaleg og félagsleg réttindi fólks
óháð kynþætti, trúarskoðunum, kynhneigð, uppruna,
o.s.frv. Við okkur, sem slitum barnsskónum á tímum Kalda
stríðsins, blasir því önnur og jákvæðari heimsmynd en á
fyrstu æviárunum. Til mikils er vinnandi að framhald verði
á og almenn sátt ætti að vera í samfélaginu um þetta.
Því miður háttar hins vegar svo til að alla jafnan er lítill
gaumur gefin að grundvallarforsendu þess að svo geti
orðið. Þannig er tómt mál að tala um öll þessi réttindi ef
ekki eru til staðar sjálfstæðir lögmenn sem geta, án afskipta
ríkisvalds, lagt mál fyrir sjálfstæða og óvilhalla dómstóla til
að knýja á um að efndir fylgi orðum.
Tillögur um að hola út trúnað lögmanna og afnema þagn-
ar skyldu þeirra í þágu stundarhagsmuna grafa undan
þessari forsendu. Mikilvægt er að stjórnmálamenn skilji
þetta.
Nú sjást því miður á lofti blikur um að sú lýðræðis- og
frelsisbylgja sem hófst fyrir aldarfjórðungi sé að fjara út.
Margvíslegar fréttir benda til að alræðisöfl sæki í sig veðrið.
Fréttir berast af fjöldahandtökum dómara, vítalausri inn-
limun stórra landsvæða í önnur ríki og stórkostlegum
land flótta vegna stríðsátaka, svo fátt eitt sé nefnt.
Sumir sækja huggun í að þetta gerist einkum í fjarlægum
löndum sem við berum okkur lítt saman við. Slíkt getur
þó reynst skammgóður vermir enda sýna dæmin að sókn
REIMAR PÉTURSSON HRL.
FORMAÐUR
Bí
la
bú
ð
Be
nn
a
ás
ki
lu
r
sé
r
ré
tt
til
b
re
yt
in
ga
á
n
fy
rir
va
ra
á
v
er
ði
o
g
bú
na
ði
.
*Ríkulegur búnaður: 8 gíra sjálfskipting með skiptingu í stýri, Porsche ferðahleðslustöð leðurinnrétting með Alcantara áklæði í miðju sæta, upplýstir sílsalistar, rafdrifin GTS sportsæti, hiti í framsætum, Porsche merki greipt
í höfuðpúða, sjálfvirk birtustilling spegla, stillanleg fjöðrun (PASM ),Bi-Xenon ljós, 20” RS Spider Platinum felgur, felgumiðjur með Porsche logo í lit, BOSE® 665 watta hljóðkerfi, skjár, PCM, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
Porsche Connect Plus, Privacy glass (litað gler), tvöföld sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, rafdrifinn afturhleri, samlitir brettakantar, ytra birði með háglans svörtum útlitspakka, skriðstillir (Cruise Control) o.m.fl.
Porsche Cayenne S E-Hybrid
416 hestöfl | 590Nm tog
Hröðun 5.9 sek. 0-100 km/klst.
Porsche Cayenne S E-Hybrid Platinum Edition
Verð: 12.950 þús. kr.*
Verið velkomin í reynsluakstur.
Nýr rafmagns Porsche - Platinum Edition!
Porsche hefur hlotið titilinn besta bílamerkið (Corporate Brand) í Evrópu í flokki sportbílaframleiðenda.
Að baki því liggur sú frumkvöðlamenning sem er rótgróin hjá verkfræðingum Porsche. Á síðustu árum
hefur þróun á Plug-In E-Hybrid vélum hjá Porsche vakið heimsathygli og lausnir þeirra skipað þeim í
fremstu röð á þessu sviði. Nú hefur Cayenne S E-Hybrid, Platinum Edition, litið dagsins ljós í nýrri
rafmagns útgáfu og ber hann orðstír Porsche fagurt vitni. Hann er bókstaflega hlaðinn búnaði og
býðst á sérlega hagstæðu verði.
Porsche á Íslandi | Bílabúð Benna
Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000
porsche@porsche.is | www.benni.is
Opnunartími
Virka daga frá 9:00 til 18:00
Laugardaga frá 12:00 til 16:00