Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 22
22 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
Fulltrúastarfið ekki hugsað sem framtíðarstarf
Lengi vel hófu lögmenn feril sinn í lögmennsku sem full-
trúar og þegar þeir höfðu öðlast næga reynslu fóru þeir
í sjálfstæðan rekstur. Fæstir fulltrúar sjá sig til framtíðar í
því starfi þrátt fyrir að vísbendingar séu um breytt viðhorf
en 10% (13 af 136) fulltrúa hafa meira en tíu
ára starfsreynslu. Þá eru 22% (30 af 136) með
6-10 ára starfsaldur og 68% (93 af 136) með
innan við fimm ára starfsreynslu.
Viðhorf fulltrúa til starfs síns endurspeglast
í því að einungis 6% þeirra (8 af 138) geta
hugsað sér að starfa sem slíkir allan sinn starfs-
feril en 73% (101 af 138) geta ekki hugsað sér
það. Ætla mætti að allir vildu verða sjálfstætt
starfandi lögmenn en svo er ekki því einungis
40% fulltrúa (56 af 138) stefna að því. Hins
vegar vildi tæplega helmingur fulltrúa (66 af
138) helst starfa hjá fyrirtækjum eða félaga-
samtökum.
Þá taldi tæplega helmingur þátttakenda (56 af 117) sig eiga
möguleika á að komast í eigendahóp lögmannsstofunnar
sem þeir störfuðu hjá en 17% (20 af 117) töldu það ekki
í boði. Voru ástæðurnar m.a. þær að eignarhald byði ekki
upp á það, þeir hefðu ekki fjármagn til að kaupa sig inn
í reksturinn eða að það stæði einfaldlega ekki til boða.
Flestir fulltrúar eru í ráðgjöf, málflutningi og samningagerð
Þátttakendur voru spurðir út í helstu verkefni sem þeir
sinntu á lögmannsstofunni. Átta af hverjum tíu (113 af
138) sögðust vera í ráðgjöf og sjö af hverjum tíu (98 af
138) í málflutningi. Þar af flytja fjórir af tíu (40 af 96) þrjú
til fimm mál á ári. Þá voru sex af hverjum tíu (79 af 138) í
samningagerð, fjórir af tíu (51 af 138) unnu fyrir erlenda
aðila og þriðjungur (42 af 138) var í innheimtum.
Í 1. tbl. Lögmannablaðsins 2016 var fjallað um könnun sem gerð var á
meðal fulltrúa lögmannsstofa í febrúar sl. Þar kom m.a. fram óútskýrður
8% kynbundinn launamunur. Hér verður haldið áfram að rýna í könnunina
og horft til annarra atriða. Til dæmis líta 73% fulltrúa ekki á starf sitt sem
framtíðarstarf og 15% fulltrúa eru hvorki í stéttarfélagi né með slysa- og
sjúkratryggingar.
FULLTRÚAR
FULLIR STREITU
Raddir fulltrúa
„Álag og ábyrgð fulltrúa er oft á tíðum of mikil
miðað við reynslu, stuðning eigenda og laun.
Samkeppnin er mikil sem gerir að verkum að
fulltrúar sætta sig við verri hag en ella. Í kringum
mig er ungt fólk að hætta í lögmennsku í stórum stíl
vegna þessa, ungar konur eru þar í miklum meiri-
hluta. Þetta tel ég mjög slæma þróun.”