Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 11

Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16 11 reynslu af ástundun málflutnings. Góðir siðir í málflutn ingi lærast aðeins við ástundun. Málflytjandi getur vissulega leitað í smiðju sér eldri og reyndari manna og tileinkað sér vís dóm úr bókum um málflutning. En aðeins við ástundun þroskast hæfi leikinn til að setja mál fram af heiðarleika, sanngirni og hæfilegri eindrægni. Þannig virðist óhjá- kvæmilegt að ríkari kröfur séu gerðar til lögmanna um reynslu eftir því sem ofar dregur í dómskerfinu,“ sagði Reimar. Prófmál kölluðu fram hið besta í lögmönnum, fælu í sér hvatningu til þeirra að bæta málflutning sinn og mörkuðu hátíðleg kaflaskil á ferlinum. Farsæl eða fjölbreytt starfsreynsla? Framundan er skipun 15 landsréttardómara og er fyrir - sjáan legt að hluti þeirra komi úr röðum starfandi héraðs- dómara. Reimar sagði að dómarahópurinn mætti ekki vera einsleitur og mikilvægt væri að skipun þeirra færi fram með nýjum hætti: „Núgildandi reglur verðlauna fjöl- breytilega starfsreynslu en ekki farsæla. Farsælir lögmenn eða farsælir dómarar, sem hafa helgað sig fagi sínu án þess að sinna öðrum störfum svo heitið getur, standa höll um fæti gagnvart þeim sem víða hafa komið við,“ sagði hann. Í hópi dómara yrðu að vera konur til jafns við karla, fyrrum farsælir lögmenn til jafns á við fyrrum farsæla héraðs- dómara. Þá sagði Reimar að stofnun Landsréttar gerði tækni væð ingu dómskerfisins enn brýnni og að horfa þyrfti til þarfa lögmanna við hönnun húsnæðis Landsréttar. Verkefnin framundan Ólöf Finnsdóttir dró í lokin saman helstu atriði fundarins og sagði að verkefnin framundan væru ærin. Gott væri að heyra viðhorf ráðherra til fjármögnunar sem hefði verið helsta áhyggjuefnið við stofnun millidómstigs. „Mann- aflaþörfin, skipan dómara, húsnæðismálin, innviðirnir, málaskrár, heimasíða og fleiri verkefni bíða og það er mjög mikilvægt að vel takist til,“ sagði hún. Eyrún Ingadóttir. Reimar Pétursson, Skúli Magnússon og Ólöf Nordal.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.