Lögmannablaðið - 2016, Qupperneq 14
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
Kristín Edwald, sem var formaður
nefndar sem undirbjó frumvarpið um
milli dómstig, rifjaði upp að vegna þess
starfa hefði hún rætt við margt fólk
úr réttarkerfinu. Hún lýsti yfir mikilli
ánægju með tillögurnar, sem hún taldi
vel útfærðar.
Kristrún Elsa Harðardóttir, formaður
Félags kvenna í lögmennsku, sagði
stjórn FKL gera ýmsar athuga semd-
ir við tillög urnar. Það væri of flókið
og ógagn sætt að hafa þrenns konar
mis mun andi réttindi til mál flutnings
fyrir dómi auk þess sem tillögur
LMFÍ væru í engu samræmi við það
hvernig réttinda öflun til málflutnings
væri háttað á Norður lönd un um.
Kristrún Elsa setti fram til lögur FKL
um breytingar á lögunum sem annars
vegar fela í sér skilyrði um starfs reynslu
áður en þreytt er próf til héraðs dóms -
lög manns réttinda og hins vegar að til
öflunar réttinda fyrir Hæsta rétti þurfi
3-5 ára starfs reynslu á lægri stigum,
auk flutnings tveggja próf mála fyrir
Hæstarétti.
Þá sagði Kristrún Elsa að fyrirhugaðar
breytingar á lögmannalögunum væru
þess eðlis að það þyrfti að flýta sér hægt
enda væri um að ræða mikilvægt mál
fyrir réttarkerfið og samfélagið. Undir
þetta tók Björn Líndal, sem sagðist
þeirrar skoðunar að mikilvægt væri að
stíga varlega til jarðar þegar ákvarðanir
um atvinnuréttindi manna væru undir
og að hættulegt væri að taka slíkar
ákvarðanir á fundi sem haldinn væri
eingöngu viku eftir að tillögurnar
hefðu borist félagsmönnum.
Borgar Þór Einarsson taldi tillögurnar
heilt yfir skynsamlegar en gerði þó
athuga semd við þann hluta sem sneri
að því að afnema aðgreiningu á heitum
lög manna. Jóhannes Karl Sveinsson,
sem á sæti í vinnu hópnum sem vinnur
að heildarendurskoðun laganna, lýsti
hins vegar þeirri skoðun sinni að
aðgrein ing á heitum lögmanna væri
gamal dags og að lögmenn væru ekkert
ómerki legri þó þeir væru ekki að
vinna við dómstóla alla daga. Þá kvað
hann að vinnuhópurinn hefði talið
prófa fyrir komulagið fyrir Hæstarétti
úrelt og loks að tillögurnar hefðu
verið unnar með það að mark miði að
reyna að tryggja að almenningur hefði
ein hvern hag af þeim einkarétti sem
lögmenn hefðu til flutnings mála fyrir
dómstólum.
Helga Vala Helgadóttir kvaðst vera
sammála því að prófafyrirkomulagið
í Hæstarétti væri úr sér gengið. Hún
gerði hins vegar þá athugasemd að
yrðu tillögurnar að veruleika fengi
fyrsti nýi hæsta réttar lögmað ur inn
ekki réttindi fyrr en árið 2021, en
þessi sama gagnrýni kom einnig fram
hjá Krist rúnu Elsu. Þá tók Helga
Vala undir þá skoðun stjórnar FKL
að einkenni legt væri að hér lend is
væri öflun réttinda til málflutnings
fyrir Hæsta rétti með öðrum hætti en
gerðist á öðrum Norðurlöndunum.
Gunnar Jónsson, sem einnig á sæti
í títtnefndum vinnuhópi, kvað ljóst
að ekki væri raunhæft að heildar-
endur skoðun kæmist til umræðu á
yfirstandandi þingi, þrátt fyrir vilja
LMFÍ. Því stæðu lögmenn frammi fyrir
vali á milli þess að bregðast við nú með
algjörlega nauðsynlegum breytingum,
líkt og lagðar voru fram á fundinum,
eða láta málið framhjá sér fara. Vinna
við endurskoðun lögmannalaganna
héldi áfram, en það væri hins vegar
ekki verkefni fundarins.
Atkvæðagreiðsla
Eftir fjörlegar umræður, þar sem lög-
menn skiptust á skoðunum um kosti
og galla tillögu stjórnar félagsins um
breyt ingar á lögmannalögum, fór
fram atkvæðagreiðsla með handa-
upp réttingu. Varð niðurstaðan sú að
tillaga stjórnar LMFÍ var samþykkt
með yfir gnæfandi meirihluta þeirra
60 félagsmanna sem sátu hann.
Eva Halldórsdóttir.
RÚM
Svíf þú inn í svefninn
...í rúmi frá okkur!
Dalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is | rbrum.is
Rúm, springdýnur, sængurver, púðar & rúmteppi, gjafavara!
...við erum með þetta allt og meira til!
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum
stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum.
Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Við bjóðum mismunandi stíeika á dýnum, allt eftir þyngd þeirra sem á
dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr.
ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA