Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 24
24 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/16
Tæplega helmingur fulltrúa (63 af 138) finnur fyrir tals-
verðri streitu en þeir eru flestir með laun yfir 700 þúsund
krónum. Fulltrúar vinna líka langan vinnudag en alls 67%
þeirra (93 af 138) vinna 41-50 tíma á viku og 16% (22 af
138) vinna meira en 50 tíma á viku að jafnaði.
15% hvorki í stéttarfélagi né með tryggingar
Það vekur sérstaka athygli að alls 21 fulltrúi af 137, eða 15%,
er hvorki í stéttarfélagi né með sjúkra- eða slysatryggingu á
vegum vinnuveitanda. Þetta þýðir að ef fulltrúi veikist eða
slasast þá er hann launalaus að lokinni þriggja mánaða
greiðslu vinnuveitanda. Þeir sem eru í stéttarfélagi eða
með sjúkra- og slysatryggingu fá hins vegar greiðslu allt
upp í eitt ár. Þá er rúmlega helmingur fulltrúa, eða 58%
(80 af 137), í stéttarfélagi en þar af eru sex af hverjum tíu
(47 af 77) í Stéttarfélagi lögfræðinga og þrír af hverjum
tíu (26 af 77) í VR.
Flestir með fjölskyldu
Einungis 9% (12 af 138) þeirra sem
svöruðu könnuninni eru einhleypir
en 62% (85 af 138) eru með maka
og börn. Þá eru 25% fulltrúa (34 af
138) með maka en barnlausir og 5%
þeirra (7 af 138) eru með börn en
maka lausir.
Þeir sem voru með maka og börn voru
spurðir hvort þeir næðu að samræma
fjölskyldulíf og vinnu og verja jöfnum
tíma á við maka sinn við rekstur heim-
ilis ins. 54% (45 af 84) svöruðu því
játandi en 40% (34 af 84) neitandi. Fleiri konur en karlar
sögðust ná því að samræma fjölskyldulíf og vinnu.
Raddir fulltrúa
„Þrátt fyrir að ég sjálfur sé nokkuð sáttur með mín kjör, þá get ég ekki
annað en verið ósáttur við þá almennu stöðu sem fulltrúar á lögmannss-
tofum eru í. Vegna þess hve háskólar útskrifa marga lögfræðinga er stétt
fulltrúa löngu gjaldfallin. Eigendur á lögmannsstofum geta leyft sér að
greiða fulltrúum lág laun þar sem samkeppnin um hverja fulltrúastöðu er
allt of mikil og óeðlilega mikil. Ég get ekki fallist á það að það sé eðlilegt
að héraðsdómslögmaður með starfsreynslu sé með litlu hærri laun en
verkamaður. Sérstaklega í ljósi þess að vinnuvika fulltrúans er miklu
lengri heldur en vinnuvika almennings. Sú staða sem upp er komin er
alfarið á ábyrgð háskólasamfélagsins að mínu mati.”
Raddir fulltrúa
„Vegna offramboðs í stéttinni er samningsstaða
manns mjög léleg og þar af leiðandi geta vinnu-
veitendur haldið launum mjög lágum.”
Eyrún Ingadóttir.