Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 3

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 3
3 Nú haustar að og kólnar, hið árlega tímarit okkar iðjuþjálfa að koma út og tími til að “hygge sig” með teppi og gott te ásamt blaðinu okkar góða. Við lítum yfir farinn veg á þessu starfsári. Það hafa orðið nokkrar breytingar á ritnefndinni, en Linda Björk Óladóttir fór í frí frá ritsjórastörfum og Erna Sigmundsdóttir leysti hana af. Við fengum tvo nýja nefndarmeðlimi, Lindu Ósk Þorvaldsdóttur og Arndísi Jónu Guðmunds- dóttur. Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir tók sér hlé í kjölfarið. Ritnefnd þakkar Ástu samstarfið og óskar henni góðs gengis í framtíðinni. Þakka ber öllum þeim iðjuþjálfum sem sendu inn efni í blaðið, þó að verkefni hversdagsins séu ærin og ekki mikill tími afgangs þegar daglegu amstri hefur verið sinnt. Árið 2018 var viðburðarríkt og ber þar hæst Heimsráðstefna WFOT í Cape Town, Suður- Afríku. Tæplega 80 iðjuþjálfar lögðu leið sína þangað og hlustuðu á fyrirlestra um fjölbreytt málefni ásamt því að fara í heimsóknir á ýmsa staði sem bjóða upp á iðjuþjálfun. Á ráðstefnunni hittu tveir rit- nefndarmeðlimir Karen Jacobs og hún var tilbúin í viðtal sem við birtum í blaðinu. Að sækja ráðstefnur og námskeið verður seint ofmetið í starfi iðjuþjálfa og er faginu til framdráttar. Einnig eru góðir sjóðir hjá BHM sem hægt er að sækja í þegar þurfa þykir. Meðal efnis í blaðinu er ritrýnd grein um iðjuþjálfun í ljósi gagnrýnna sjónarhorna, grein um endurhæfingu í heimahúsi ásamt greinum um þróunarverkefni meðal ung- menna og frumkvöðlastarf svo eitthvað sé nefnt. WFOT ráðstefnunni eru einnig gerð góð skil með myndum og texta. Nú eins og áður hvetjum við iðjuþjálfa að taka sér penna í hönd og leyfa okkur að fylgjast með því frábæra starfi sem stéttin er að sinna, nær og fjær. Nýir iðjujálfar sem eru að taka sín fyrstu skref í faginu fá víðari sýn á starfið með lestri fjölbreyttra greina blaðsins og viðtala. Það er einlæg ósk ritnefndar að veturinn fari vel með ykkur kæru lesendur og fagið okkar blómstri áfram sem fyrr. Ritnefnd Iðjuþjálfans ritnefnd.ii@bhm.is Stjórn IÞÍ: Ósk Sigurðardóttir, Formaður Sigurbjörg Hannesdóttir, varaformaður Sigríður Pétursdóttir, gjaldkeri Erna Sveinbjörnsdóttir, ritari Sæunn Pétursdóttir, meðstjórnandi Stefán E. Hafsteinsson, varamaður Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, varamaður Umsjón félagaskrár: Þjónustuskrifstofa SIGL Ritstjóri (ritnefnd.ii@bhm.is) Erna Sigmundsdóttir Ritnefnd: Arndís Jóna Guðmundsdóttir Gullveig Ösp Magnadóttir Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir Linda Ósk Þorvaldsdóttir Fræðileg ritnefnd: Sonja Stelly Gústafsdóttir Gunnhildur Jakobsdóttir Sara Stefánsdóttir Prófarkarlesari: Bjarni Björnsson Forsíðumynd: Gullveig Ösp Magnadóttir Umbrot og prentvinnsla: Litróf – Umhverfisvottuð prentsmiðja Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta og færa til betri vegar. Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið. KÆRU LESENDUR IÐJUÞJÁLFINN Formannspistill ...................................... 4 Siðaregla 4.4 ........................................... 5 Iðjuþjálfun í ljósi gagnrýnna sjónarhorna ......................... 6 Viðtal við Karen Jacobs ....................... 14 Viðtal við Ingibjörgu Svövu Ásgeirsdóttur ............. 16 Þróunarverkefni: Ungt fólk til atvinnuþátttöku ................. 20 Endurhæfing í heimahúsi .................... 22 Lengi býr að fyrstu gerð ....................... 24 Í örugga höfn: iðjuþjálfi í 25 ár .................................... 25 Heimastyrkur ....................................... 28 Faghópur um iðjuþjálfun aldraðra ............................. 29 Útskriftarárgangur iðjuþjálfa 2006 .......30 The Pebbles project ............................. 31 Ágrip útskriftarnema 2017 ................... 32 Ömmurnar frá Afríku ............................ 38 EFNISYFIRLIT

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.