Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 36

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 36
36 Á Íslandi hafa í gegnum tíðina orðið ýmsar breytingar í þjónustu við aldraða. Má þar nefna innleiðingu á hugmyndafræði Eden Alternative, þar sem markmiðið er að auka lífsgæði hjá íbúum öldrunarheimila með því meðal annars að útrýma einmanaleika, vanmætti og leiða. Reglulega eru gerðar hlýleikakannanir á heimilum sem starfa eftir Eden Alternative hugmyndafræðinni til að kanna hvort að hugmyndafræðin þjóni tilgangi sínum. En þeim er ætlað að meta gæði og ánægju af lífi einstaklinga innan öldrunarheimila sem starfa eftir Eden Alternative hugmyndafræðinni. Eigindleg rannsókn var gerð í kjölfar hlýleikakannana af Maríu Guðnadóttur árið 2014 á Öldrunarheimilum Akureyrar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þörf væri á frekari aðgerðum óháð fjármagni og aðgengi að starfsfólki, ein hugmyndin að úrbótum var sjálfboðastarf innan öldrunar- heimila. Verkefnið er heimildarsamantekt sem leiðir af sér nýsköpun. Leitast er við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: „Á hvaða hátt er hægt að sporna gegn einmanaleika og leiða hjá íbúum öldrunar- heimila sem starfa eftir Eden Alternative hugmyndafræðinni?“ og „Á hvaða hátt er hægt að virkja Landssamband eldri borgara til sjálfboðastarfs innan öldrunarheimila sem starfa eftir Eden Alternative hugmyndafræðinni?“ Niður stöður rann- sóknarheimilda leiddu í ljós að sjálfboða- vinna er talin vera ein leið til að mæta þörfum íbúa á öldrunarheimilum sem starfsfólk nær ekki að sinna. Nýsköpun verkefnisins er námskeið sem hannað er fyrir sjálfboðaliða í samvinnu við Landssambands eldri borgara til að starfa eftir á öldrunarheimilum sem hafa hugmyndafræði Eden Alternative að leiðar- ljósi. Verkefnið byggir á hugmyndafræði innan iðjuþjálfunar að nafni ,,Líkanið um iðju mannsins” sem greinir m.a. frá hlut- verkum sem einstaklingar gegna á lífs- leiðinni. Tilgangur námskeiðsins er að stuðla að sjálfboðastarfi sem miðar að því að útrýma einmanaleika og leiða innan þess heimilis sem sjálfboðavinnan fer fram. Í kjölfar námskeiðsins geta meðlimir í Landssambandi eldri borgara fengið tæki- færi til að takast á við nýtt hlutverk. Ef vel tekst til gæti nýsköpunin hugsanlega bætt lífsgæði þessara tveggja hópa. Lykilhugtök: Eden Alternative, einmanaleiki, leiði, sjálfboðastarf. Höfundar: Sigríður Ósk K. Þorbjarnardóttir og Valgerður Snæbjarnardóttir Leiðbeinandi: Olga Ásrún Stefánsdóttir MEÐ ÞVÍ AÐ HJÁLPA ÖÐRUM HJÁLPAR ÞÚ SJÁLFUM ÞÉR: SJÁLFBOÐASTÖRF MEÐ ÍBÚUM Á ÖLDRUNARHEIMILUM SEM STARFA EFTIR EDEN ALTERNATIVE HUGMYNDAFRÆÐINNI Undirrituð fór í heimsókn á geðspítala í Cape town. Þessi spítali tók á móti bæði þeim sem áttu við geðrænan vanda að stríða og höfðu hlotið dóm í réttarkerfinu, og einnig þeim sem komu inn af götunni. Skiptingin var ca 70/30. Iðjuþjálfinn sem tók á móti okkur var búin að starfa í mörg ár á þessum stað og það sást vel að hún sinnti sínu starfi af mikilli hugsjón. Úrræðin sem hún hafði upp á að bjóða á sínum vinnustað stýrðust að megninu til af fjármagninu sem hún hafði úr að spila, sem var ekki mikið, ef nokkuð. Hún sýndi okkur handverksstofu, þar sem var verið að smíða húsgögn og fleira. Hún safnaði timbri sem átti að henda og stundum fengu þau gefins efni frá fyrirtækjum sem voru að losa sig við afganga. Skjólstæðingar hennar fá aðstoð við að skapa eitthvað nýtt, eitthvað sem hægt er að selja eða nota sjálfir. Þau taka líka að sér verkefni fyrir fyrirtæki, svipað og Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur er að gera á Akureyri. Einnig voru sumir flinkir við að þræða perlur upp á vír og skapa listaverk úr því. Iðjuþjálfinn lagði mikið upp úr því að mæta öllum þar sem þeir voru staddir og nefndi ýmis dæmi því til stuðnings. Hún talaði líka mikið um þá staðreynd að þeir sem komu inn af götunni og voru síðan útskrifaðir eftir einhvern tíma, komu iðulega aftur. Þar skortir úrræði eins og á Íslandi. Notendurnir voru með alvarlegar greiningar flestir og ættingjar vildu eða gátu ekki haft þá hjá sér. Þar með enduðu þeir á götunni og frömdu jafnvel lögbrot til þess að komast aftur inn á spítalann. Iðjuþjálfinn viðurkenndi að hafa oft sveigt aðeins til reglurnar til þess að geta leyft sumum að vera lengur í þjónustu. Þessi iðjuþjálfi sýndi ótrúlega þrautseigju og jákvæðni í sínu starfi sem oft virtist nær vonlaust í mjög krefjandi aðstæðum. HEIMSÓKN Á GEÐSPÍTALA GREIN Erna Sigmundsdóttir, f.h ritnefndar

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.