Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 27
27 haldið á lofti og áhersla verið lögð á fræðslu. Eftir yfirfærslu hafi hins vegar ekki gefist nægur tími í slíkt. Aukin umræða um hugmyndafræði og ríkjandi áherslur sé mikilvæg þjónustunni og stuðli að auknum gæðum hennar. Nokkrir lýstu því að umræðan hafi fallið í skuggann af umræðu um peningamál. (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, 2013) Það eru margar ástæður fyrir því að mér gekk vel að byggja upp starfsemina. Ég tel að það hafi skipt miklu máli fyrir mig sem persónu í þessari uppbyggingu að ég hafði unnið með öflugum og reyndum iðju- þjálfum í fjögur ár á geðdeild Landspítalans eftir nám, sem studdu mig og hjálpuðu mér að byggja upp iðjuþjálfasjálfið mitt og sjálfstraustið. Fékk ég þar meðal annars handleiðslu frá reyndum iðjuþjálfa sem ég nýtti mér áfram eftir þörfum, þegar ég var komin á Höfn. Það var gott að vera búin að mynda öflugt stuðningsnet að leita til. Ég fékk áfram góðan stuðning frá fagfólki og stjórnendum SvAust. Ég gat unnið sjálfstætt og var óhrædd við að henda mér út í djúpu laugina, mistakast og byrja aftur, leita ráða og vinna með fólki þvert á fagstéttir. Ég bý yfir ástríðu og hef gaman af því að vinna og byggja upp nýja hluti. Ég á auðvelt með að vinna með fólki. Velvilji ráðamanna skipti líka miklu máli. Ég gætti þess að rökstyðja allar breytingar og uppbyggingu fyrir stjórnsýslunni og fræða um málaflokkinn og mér gekk vel að halda mig innan fjárhagsrammans. Starfsfólkið hjá mér kom alltaf vel út úr ánægju- könnunum sveitarfélagsins, enda kapp- kostaði ég að nýta mannauðinn og hafa starfsfólk með í ráðum í upp byggingunni. Starfsmannamál geta verið mjög flókin en jafnframt spennandi áskorun. Ég var dugleg að sækja námskeið og halda tengslum við Iðjuþjálfafélagið með því að sækja fundi, ráðstefnur og sitja í nefndum, sem er mjög mikilvægt til að viðhalda tengslanetinu og lykilþáttur í að viðhalda faglegum metnaði, koma í veg fyrir faglega einangrun og geta fylgst með þróun innan fagsins. Uppbyggingu þjónustunnar er ekki lokið á Höfn, það þarf alltaf að aðlaga og þróa þjónustu þar sem verið er að vinna með fólki. Nýtt húsnæði fyrir dagvist og skrifstofur starfsfólks verður loksins tekið í notkun 2018 en ég barðist lengi fyrir að fá varanlegt húsnæði undir sama þaki fyrir málaflokkinn. Eftir áratuga uppbyggingu og þrotlausa vinnu af ástríðu og áhuga, var kominn tími til að leyfa öðrum að spreyta sig og klippa á naflastrenginn, ég sagði upp og hætti störfum í desember 2016. Þegar maður byggir eitthvað upp frá grunni í litlu samfélagi í svona langan tíma á maður hvert bein í verkefninu, ég var alltaf á vaktinni og tilbúin til að stökkva inn til að taka vaktir, gefa ráð, leysa af og redda hlutum. Ég var mjög tengd mörgum skjól- stæðingunum því sumir voru hjá mér í þjónustu í þau 25 ár sem ég starfaði á Höfn. Þegar ég hætti var auglýst eftir iðjuþjálfa eða fólki með sambærilega menntun, bæði í landsblöðum og á innra neti iðjuþjálfa. Það kom aðeins ein umsókn og var hún frá hjúkrunarfræðingi sem var ráðin í mitt starf. Fljótlega var þó verkefnum mínum skipt á þrjá starfsmenn, því hún var ekki tilbúin að taka á sig alla þessa vinnu og ég átta mig á því núna að það hefði þurft að gerast fyrr. Það voru blendnar tilfinningar sem fylgdu því að hætta þessari vinnu og flytja frá Höfn, en ég veit að ég gerði góða hluti og byggði upp góða þjónustu með frábæru fólki og horfi því stolt til baka. Ég hef stiklað á stóru um verkefni mín á Höfn í 25 ár og það væri efni í heila bók að skrá allt sem að ég gerði. Ég læt því staðar numið hér og vona að lesendur hafi orðið einhvers vísari um þá uppbyggingu sem ég vann í málefnum fatlaðra á Höfn. HEIMILDASKRÁ: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. (2014). Flutningur þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga ágúst 2014 – Mat á yfirfærslu. Reykjavík: Höfundur. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum. (2013). Fatlað fólk og öryrkjar sem íbúar sveitarfélaga. Reykjavík: Höfundar. Lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Lög um reynslusveitarfélög nr. 82/1994. MYNDIR FRÁ CAPE TOWN

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.