Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 14

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 14
14 Meðlimir ritnefndar hittu Karen Jacobs á WFOT-ráðstefnunni í Höfðaborg í S-Afríku í maí síðastliðnum og báðu hana um að segja aðeins frá sjálfri sér. HVAÐ HEFUR ÞÚ STARFAÐ LENGI VIÐ IÐJUÞJÁLFUN OG HVERS VEGNA VALDIRÐU ÞANN STARFSVETTVANG? „Ég hef verið iðjuþjálfi síðan árið 1979 og iðjuþjálfun er seinni starfsferill minn. Ég heyrði um iðjuþjálfun á listahátíð þegar ég bjó í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum og féll fyrir faginu. Ég vissi að þetta væri rétta leiðin fyrir mig og hef verið mjög lánsöm. Í byrjun hélt ég að þetta yrði bara starf, ekki starfsferill lífs míns. Fyrsta starf mitt sem iðjuþjálfi var í skóla fyrir börn með námsörðugleika, hann hét The Little People School þó þar væru nemendur upp að 14 ára aldri. Ég hannaði starfsnám fyrir þessa unglinga og það opnaði fyrir þeim stórkostleg tækifæri. Ég útbjó matstæki og okkur gekk svo vel með kennsluna að skólinn bað um að stofnaður yrði starfstengdur framhaldsskóli. Notuð var iðjumiðuð nálgun, framhaldsskólinn stækkaði og stækkaði og ég kenndi þar í nokkuð mörg ár. Fólk heyrði um skólann og ég var beðin um að skrifa námsbók, svo að fyrsta námsbókin sem ég skrifaði var um iðjuþjálfun í þessum skóla. Þarna var orðið ljóst að það sem ég hélt að yrði bara starf, myndi verða starfsferillinn minn. Ég var svo heppin að verða prófessor við Boston University árið 1983 og fékk Fulbright-styrk á Íslandi. Ég verð að nefna hana Snæfríði, þegar hún var í háskólanum í Boston sagði hún mér frá Fulbright og ég sótti strax um. Það var mikil upplifun að vera á Íslandi. Ég hjálpaði til við að skapa skólatöskudaginn á Íslandi sem ég hafði áður stofnað í Banda- ríkjunum, en það mun vera elsta lýðheilsu- átak sem enn er í gangi þar. Þessi dagur er enn við lýði þar og á Íslandi.“ GETURÐU SAGT OKKUR ÖRLÍTIÐ UM FJÖLSKYLDU ÞÍNA? „Ég reyni að halda jafnvægi í mínu lífi, ég er amma fjögurra frábærra barna, ég á þrjú börn og tvö sem maðurinn minn átti áður og við eyðum miklum tíma saman sem fjölskylda þegar við getum í Hampshire við fallegt vatn. Snæfríður og Gunnar hafa komið þangað og mér finnst ég afar heppin að eiga vini á Íslandi og svona mikilvæg tengsl við þá allt mitt líf. “ ÞÚ HEFUR EINNIG KOMIÐ AÐ BLAÐA- OG BÓKAÚTGÁFU, EKKI SATT? „Jú, árið 1989 stofnaði ég tímaritið Work Journal og var svo heppin að Gary Kielhofner var með ráðgjöf fyrir lítið útgáfufyrirtæki á þeim tíma. Hann kynnti mig og þeim líkaði hugmyndin að gefa út tímarit sem hét “Work” og ef við hoppum fram til dagsins í dag, 28 árum síðar, þá er tímaritið enn sterkt á markaðnum. Kominn er nýr útgefandi, IOS Press, vegna þess að fyrri útgefandinn var keyptur út af stærra fyrirtæki. Blaðið er gefið út einu sinni í mánuði og ég er mjög stolt af því. Það er alþjóðlegt þverfaglegt blað sem fjallar um atvinnu, í mjög víðu tilliti. Ég hef einnig verið meðhöfundur að barnabókum um börn sem hafa mismunandi fatlanir eða áskoranir og einnig skrifað um erfið málefni eins og mæður með þunglyndi og kvíða eða ömmu með elliglöp. Í næstum öllum bókunum er iðjuþjálfun byggð inn í söguna. Það var mér mjög mikilvægt vegna þess að fötlun af öllum toga er ekki sýnd eins og hún er í barnabókmenntum almennt og ég vonaðist til að varpa hulunni af því að vera öðruvísi og taka á málefnum sem er erfitt að tala um. Ég er mjög stolt af því að nú er sextánda bókin komin út, rétt áður en ég kom á þessa ráðstefnu og heitir hún Lilac Sunday. Bókin er sennilega ein af erfiðustu bókunum vegna þess að hún fjallar um viðbrögð barns við þunglyndi og kvíða móður og hvernig líf það er – og móðirin fær iðjuþjálfun, sem er frábært.“ MEGUM VIÐ SPYRJA ÞIG FREKAR UM BARNABÆKURNAR ÞÍNAR? ÞÆR HLJÓMA MJÖG ÁHUGAVERÐAR. „Þakka ykkur fyrir, ég hef gefið nokkur eintök, m.a. til Snæfríðar. Fyrir um 20 árum síðan skrifaði ég barnabók. Ég vinn með mörgum útgefendum þar sem ég sem líka námsbækur og ég kom með bókina til útgefanda sem gefur út barnabækur og hann sagði að þetta væri áhugaverð lesning, en engu að síður hvatti hann mig til að halda mig við það sem hefði gert áður. Hann hafði enga trú á þessu. Árið 2013 eða 2014 var ég svo lánsöm að verða Eleanor Clarke Slagle fyrirlesari. Í Bandaríkjunum er það mikill heiður að fá þessa nafnbót. Þú færð u.þ.b. ár til að semja fyrirlesturinn, svo flytur þú hann og loks er hann gefinn út opinberlega. Ég hugsaði mikið um hvað ég gæti fjallað um. Margir héldu að ég myndi fjalla um rannsóknir mínar í hreyfingafræði en ég ákvað að gera það ekki. Mér þykir svo mikilvægt að kynna iðjuþjálfun svo ég ákvað að það yrði málefnið. Titill fyrirlestursins er: Promoting occupational therapy, words, images and actions. Ég ákvað að skrifa aðra barnabók í kjölfarið og 20 árum seinna fór ég með hana til útgefanda, en margt hefur breyst, í dag gefur fólk út bækurnar sjálft. Það er mjög VIÐTAL Gullveig Ösp Magnadóttir og Arndís Jóna Guðmundsdóttir, f.h. ritnefndar ,,VERTU HLUTI AF LAUSNINNI”

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.