Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 8

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 8
8 meðal annars í faglíkönum sem algengt er að íslenskir iðjuþjálfar styðjist við í starfi, svo sem líkani Kielhofner um iðju mannsins (Taylor, 2017) og kanadíska líkaninu um færni og hlutdeild í iðju (Townsend og Polatajko, 2013). Hammell varpar fram ögrandi spurningu þegar hún spyr hverjir eigi að skilgreina og flokka iðju, fræðafólkið sem alla jafna fjallar um efnið eða notendurnir sjálfir, sem fræðafólkið er oftast að fjalla um. Á sama hátt veltir hún upp spurningunni frá hvaða sjónarhóli sé eðlilegt að ræða iðju og gildi iðjuþjálfunar, út frá einstaklingshyggju með áherslu á sjálfstæði og framleiðni, eða út frá félagshyggju með áherslu á samhjálp, gagnkvæmni og tengsl (Hammell, 2009). Hammell hefur um langa hríð gagnrýnt hina hefðbundnu flokkun iðju í eigin umsjá, störf og tómstundaiðju og telur hana endurspegla sjónarhorn þeirra sem eru sjálfbjarga, sjálfstæðir og færir um að stunda atvinnu. Um leið útiloki flokkunin, jaðarsetji (e. marginalizes) og geri lítið úr þeim sem ekki leggja eitthvað fram til samfélagsins með beinum hætti og eru öðrum háðir (Hammell, 2004, 2009). Auk þess sé ekkert í þessum hugtökum sem vísi til þess sem alla jafna hefur mesta merkingu fyrir fólk, svo sem að tjá ást sína, annast þá sem því þykir vænt um eða njóta líðandi stundar án þess að gera eitthvað sem hefur augljósan tilgang. Einnig vilji gleymast að iðju sé ætlað að mæta innri þörf fólks fyrir að vera það sem það er (e. self-maintenance), tjá tilfinningar sínar og njóta lífsins (Hammell, 2004; Law o.fl., 1996). Hammell bendir auk þess á að rannsóknir hafi sýnt að hlutdeild í iðju, sem hefur persónulega merkingu fyrir fólk, stuðli að því að það upplifi aukna færni, möguleika og sjálfsvirði (e. self-worth) og þar með velsæld og lífs- gæði (Hammell, 2004, 2017). Við óvænta atburði eins og að greinast með langvinnan sjúkdóm eða skerðingu (e. impairment) verður rof í lífssögu fólks. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið meðal þeirra sem hafa reynslu af slíku rofi, styðja ekki flokkun iðju í eigin umsjá, störf og tómstundaiðju, heldur kýs fólk að skilgreina iðju í ljósi þeirrar merkingar sem hún hefur. Hammell (2009, 2014) hefur rýnt í og samþætt niðurstöður eigindlegra rann- sókna meðal fólks með ólíkan heilsufarsvanda eða skerðingar og komist að því að þátttakendur lýsa reynslu sinni af jákvæðum áhrifum iðju í fjórum mismunandi víddum. Heilsu- og lífsgæðavíddin (e. restorative occupation) nær yfir iðju sem eflir heilsu og vellíðan, til dæmis með því að veita jákvæða upplifun, útrás eða slökun án þess þó endilega að aðhafast eitthvað ákveðið. Tengslavíddin (e. occupation fostering belonging, connecting, and contributing) snýst um iðju sem tengir fólk saman og gefur því tilfinninguna að tilheyra, meðal annars með því að aðstoða og annast aðra. Framkvæmdavíddin (e. engaging in doing occupations) lýsir hlutdeild í iðju sem gefur möguleika á að finna merkingu og tilgang í því sem maður gerir og styrkir þannig sjálfsvirði manns. Að lokum er það tímavíddin (e. occupation reflecting life continuity and hope for the future) sem vísar til iðju sem tengir saman fortíð, nútíð og framtíð og gefur von um betra líf. Hammell bendir á að þessi vitneskja sé reyndar ekki ný af nálinni því þessar fjórar víddir hafi sterkan samhljóm við kenningu Wilcock (1998) um flokkun byggða á merkingu iðju, það er að gera (e. doing), vera (e. being) og verða (e. becoming). Rannsóknir Rebeiro (2001) meðal fólks með geðræna erfiðleika studdu þessar hugmyndir, auk þess að bæta við flokknum að tilheyra (e. belonging). Hammell hvetur iðjuþjálfa því eindregið til að skoða og efla iðju í samræmi við þá merkingu sem hún hefur fyrir notendur því slík iðja er líklegust til að auka lífsgæði þeirra. Einstaklingshyggjan sem Hammell telur einkenna vestræn sjónarhorn í iðjuþjálfun endurspeglast meðal annars í áherslunni á sjálfstæði við athafnir, sér í lagi þegar kemur að eigin umsjá sem ævinlega er tiltekin fyrst í hinu hefðbundna flokkunarkerfi. Þetta er sérstaklega áberandi í endur- hæfingu þar sem árangur er gjarnan metinn út frá því að hvaða marki fólk er fært um að sjá um daglegar athafnir heima fyrir án aðstoðar frá öðrum (Mackey og Nancarrow, 2006; Solvang og Slettebø, 2012). Það að sjá fyrir sér og sínum er líka hátt skrifað og jafnvel skilyrði þess að geta talist fullgildur, borgaralegur þegn (Devlin og Pothier, 2006). Athafnir sem hafa skýran og sýnilegan tilgang hafa því lengst af skipað mikilvægan sess í þjónustu iðjuþjálfa, en minni gaumur gefinn því hvernig fólk fer að því að mæta tilfinningalegum og félags- legum þörfum sínum (Hammell, 2017). Þessi áhersla er meðal annars sýnileg í þeim matstækjum sem iðjuþjálfar nota, sem flest beinast ýmist að undirliggjandi líkamlegri og andlegri starfsemi: Mini- Mental State Examination - MMSE (Folstein, 1975); Box and Blocks (Matieowetz, Volland, Kashman og Weber, 1985) og Bruininks- Oseretsky Test of Motor Proficiency – BOT™2 (Bruininks og Bruininks, 2005) eða frammi- stöðu við fyrirfram ákveðnar athafnir: Barthel Index of Activities of Daily Living (Mahoney og Barthel, 1965) og Pediatric Evaluation of Disability Inventory – PEDI (Haley, Coster, Ludlow, Haltiwanger og Andrellos, 1992). Þótt samspil ein staklings og umhverfis hafi verið í brennidepli í iðjuþjálfunarkenningum um árabil eru margir iðjuþjálfar enn uppteknir af því að meta umfang skerðinga og frávik í þeim dæmigerðu athöfnum sem ætlast er til að fólk sinni og því er hætt við að þjónustan verði frekar einhæf með áherslu á færni við dæmigerðar athafnir og líkamsstarfsemi (Hammell, 2017). Starfshættir geta líka tengst viðteknu vinnulagi í þverfaglegum teymum þar ákveðnar væntingar eru ríkjandi, svo sem að iðjuþjálfar sjái um allt sem lýtur að handbeitingu. Hammell efast um að þessi mikla áhersla á tilgangsbundnar athafnir sé í takt við það sem notendur kjósa helst og bendir á að víða sé þessu öðruvísi farið. Þegar leitað er álits notenda skipar það að tilheyra, aðstoða eða hjálpa öðrum gjarnan mikilvægan sess og því er hægt að mæta með iðju af ýmsum toga (Borell, Asaba, Rosenberg, Schult og Townsend, 2006; Hammell o.fl., 2008, Iwama, 2003). Hugtakið “ubuntu” kemur úr fornri afrískri heimspeki og merkir að fólk er manneskjur vegna þess að það tilheyrir, tekur þátt og deilir með öðrum. (e. “I am human because I belong, I participate, I share“) (Murithi, 2007). Félagsleg tengsl eru því ekki einungis mikilvæg undirstaða velsældar heldur forsenda mannlegrar tilvistar (Hammell, 2014). Að gera eitthvað fyrir eða með öðrum skapar og eflir félagsleg tengsl og við það fær iðja sérstaka merkingu (Borell o.fl., 2006). Hugtakið gagnkvæmni (e. interdependence) lýsir merkingu sem verður til þegar iðja er stunduð í sameiningu og það getur líka átt við þótt annar aðilinn sé að mestu sá sem þiggur og hinn sá sem gefur, til dæmis þegar veitt er aðstoð við persónulegar athafnir (van Nes, Runge og Jonsson, 2009). Rannsóknir í ólíkum menningarheimum benda eindregið til að slík gagnkvæmni sé fólki nauðsynleg því það er og verður alltaf í einhvers konar tengslum við aðra. Tengsl eru þó ekki eingöngu manna á milli því hjá sumum hópum er einnig lögð áhersla á samband einstaklinga við landið og náttúruna og jafnvel við horfna forfeður sem ber að virða (Hammell og Iwama, 2012). Í alþjóðlega flokkunarkerfinu um færni, fötlun og heilsu – ICF (World Health Organi- zation, 2001) er hugtakið þátttaka skilgreint

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.