Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 21

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 21
21 Þegar unga fólkið útskrifast frá okkur, viljum við að bakpokinn þeirra sé vel nestaður af styrkleikum, aðlögunarhæfni, væntingum, góðum bandamönnum, auk- inni þekkingu og jákvæðum viðhorfum. Allt eru það þættir sem eru styrkur á leið inn í framtíðina: Bakpokinn minn NIÐURSTAÐA: Þar sem verkefninu er ekki lokið, getum við ekki annað en ályktað um niðurstöður. Nítján þátttakendur voru skráðir í upphafi, fljótlega hættu þrír og eftir nokkrar vikur hættu tveir í viðbót, tveir þátttakendur fluttust yfir í annan hóp þar sem þeir fóru ekki í starfsprófun. Einn einstaklingur lauk ekki starfsprófun og illa hefur gengið að ná í hann. Þrettán einstaklingar ljúka því þátt- töku. Fimm af þátttakendum komu frá félagsþjónustu en sjö var vísað frá VIRK Starfs endur hæf ingarsjóði, alls sjö konur og fimm karlmenn. Dag skrá var alla daga frá 9:00 – 12:00. Fyrsta hálftímann var boð ið upp á morgunmat, kaffi og spjall. Síðan voru fyrir lestrar / verkefni til kl. 12. Tvisvar í viku var farið í líkamsrækt og lagt til að þau færu tvisvar í viðbót sjálf. Stuttar göngu- ferðir voru farnar á hverjum degi. Þá var reglulega farið í heimsóknir á vinnustaði. Til að byrja með gekk brö- suglega að fá fólk til að mæta en það gekk hægt og rólega betur. Þátttakendur tengdust nokkuð vel en ekki myndaðist sérstök vinátta í hópnum eins og undirrituð hafði búist við og er algengt að gerist í hópastarfi. Reynt var að virkja baklandið eins og kostur var, með því að bjóða nánasta aðstandanda í viðtal. Reynsla frá Kanada sýnir að það skiptir mjög miklu máli að hafa bakland sem hægt er að leita til ef upp koma erfiðleikar og fólk er líklegra til að veita aðstoð ef það veit að viðkomandi þiggur hjálp. Þegar kom að starfsprófun fengu allir stað til að prófa sig á. Tveir þátttakendur byrjuðu ekki vegna mikils kvíða. Þeir fluttust því yfir á aðra endurhæfingarleið þar sem betur var hægt að mæta þörfum þeirra. Tveir þátttakendur voru á tveimur vinnustöðum. Í tilviki annars þeirra hafði mæting verið mjög slæm og vinnuveitandi vildi að þátttakandinn hætti. Hann fékk að fara í aðra starfsprófun, þar sem gekk betur. Hinn hafði verið í frekar einhæfu starfi og fékk að prófa sig á nýjum vinnustað. Einn einstaklingur hætti að mæta í starfsprófun og hefur verið erfitt að ná sambandi við hann. Af þessum þrettán þátttakendum sem kláruðu námskeiðið þá er líklegt að sjö af þátttakendum fari í vinnu, þar af einn á vinnusamning og tveir í skóla. Fjórir til fimm halda áfram í Starfsendurhæfingu SH og einn fer í endurhæfingu annars staðar. Hvað virkaði: Til að hægt sé að kortleggja niðurstöður betur, verða þátttakendur beðnir að fylla aftur út sjálfsmatskvarða Rosenbergs, lista með spurningum um daglegar venjur, fylla út iðjuhjólið og fara yfir þau markmið sem þeir settu sér í upphafi með hjálp COPM. Eins verður viðtal við hvern og einn og farið yfir það sem gekk vel, það sem hefði mátt gera betur og þeirra mat á námskeiðinu í heild. Ljóst er að það tókst ekki að gera það að venju að allir borðuðu morgunverð saman, þátttakendur sögðust oft vera búnir að borða. Vitað var að í upphafi voru flestir þátt- takendur með áberandi kvíða. Samkvæmt sjálfsmatskvarða Rosenbergs voru fjórir þátttakendur innan eðlilegra marka en tíu með lágt sjálfsmat og tveir af þeim með afar lágt sjálfsmat. Fróðlegt verður að sjá hvort sjálfsmatið hafi breyst. Eins er vitað að flestir þátttakendur voru mjög óvirkir áður en þeir byrjuðu í þessu verkefni, áhugavert verður að sjá hvort virkni hafi aukist. Það er þó ljóst að þessir þrettán einstaklingar sem ljúka verkefninu eru allir í virkni eins og er og hafa áætlanir um áframhaldandi virkni. Hvað hefði mátt gera betur: Undirrituð telur m.a. að við hefðum átt að virkja baklandið mun betur, hafa viðtöl við þann sem stendur þeim næst oftar. Baklandið skiptir gríðarlegu máli. Þá þarf félagsþjónustan að standa sig betur og fylgja sínu fólki betur eftir. Allir sem stóðu að verkefninu eru sammála um að það hafi verið töluverð áskorun að vinna með svona hóp af ungu fólki og mjög lærdómsríkt. Undirrituð vonar að verkefnið verði til þess að fleiri leggi af stað með svipuð verkefni, þannig er hægt að koma í veg fyrir vanda sem hlýst af óvirkni og jafnvel koma í veg fyrir ótímabæra örorku. 1. fasi tímalengd - 8 vikur • Fræðsla / þjálfun • Undirbúningur 2. fasi tímalengd - 6 vikur • Fræðsla / þjálfun • Starfsprófun • Stuðningur 3. fasi tímalengd - 10 vikur • Starfsprófun / aðlögun, stuðningur • Mat á starfsgetu • Aðstoð við atvinnuleit Þessir sex mánuðir skiptust upp á þennan hátt:

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.