Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 16

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 16
16 Ingibjörg Svava Ásgeirsdóttir iðjuþjálfi hefur komið víða við á löngum starfs- og kennsluferli á sviði iðjuþjálfunar. Hún tók þátt í að byggja upp fagstétt iðjuþjálfa á Íslandi og móta helstu áherslur í starfinu, sérstaklega á sviði öldrunarþjónustu. Hún á að baki langt og farsælt starf á Borgarspítalanum, seinna Sjúkrahúsi Reykjavíkur, auk margra ára kennslu og leiðsagnar í iðjuþjálfanámi við Háskólann á Akureyri. Valgerður Þórdís Snæbjarnardóttir hitti Ingibjörgu að máli og bað hana að segja lesendum Iðjuþjálfans frá æsku sinni, skólagöngu, áhugamálum og fjölbreyttum starfsferli, sem og að deila hugmyndum sínum um framtíðina á sviði iðjuþjálfunar. Fyrst leikur okkur forvitni á að vita um æsku og uppvöxt Ingibjargar. „Ég er fædd hér í Vesturbænum í Reykjavík í litlu bárujárns- húsi sem stóð á Grímsstaðaholtinu eins og það hét þá,“ svarar Ingibjörg. „Það er þar sem Háskólahverfið stendur núna. Þá var þetta bara eins og lítið hverfi eða þorp. Ég er fædd þar í heimahúsi, þar sem voru þrjár kynslóðir og átti heima í Vesturbænum eiginlega fram undir það að ég flutti á Seltjarnarnes níu ára gömul. Að vísu bjó ég í tvö ár í Kaupmannahöfn í millitíðinni meðan pabbi minn lauk námi. Hann var lyfjafræðingur,“ útskýrir hún. SKÓLAGANGA VÍÐA UM LAND, SVEITABÖLL OG SUMARVINNA Aðspurð um skólagöngu í æsku segir Ingibjörg: „Nú, ég gekk bara í þessa venjulegu skóla eins og tíðkaðist á þeim tíma, Melaskólann og svo Mýrarhúsaskóla. Ég fór svo í landspróf en flutti um miðjan vetur vestur á Ísafjörð. Þá hafði pabbi minn fengið leyfi fyrir lyfsölu þar og við fluttum á miðjum landsprófsvetri, það fannst mér erfitt. Að þurfa að byrja í nýjum skóla og með öðruvísi kennsluskrá og bókakost. En það tókst og í framhaldi af því fór ég í fyrsta bekk menntaskóla í Gagnfræðaskóla Ísafjarðar, kallað fjórði bóknáms. Það var áður en Menntaskólinn á Ísafirði var stofnaður,“ segir Ingibjörg. Ingibjörg vildi halda áfram námi, en spurningin var hvar. „Ég vildi gjarnan komast suður aftur en það þótti nú heppilegra að senda stúlkuna á heimavist þannig að ég fór norður á Akureyri. Fór þá að heiman og var þar í þrjá vetur og útskrifaðist úr MA árið 1969. Þetta var mjög skemmtilegur tími á heimavist og síðan síðasta árið í herbergi úti í bæ. Þá var maður orðinn dálítið fullorðinn og fór í Sjallann og tók þátt í ýmsu sem táningum er tamt að gera. Unglingsárin voru eftirminnileg. Vestur á fjörðum upplifði ég að fara á sveitaball strax sextán ára, keyra á milli fjarða til skemmtanahalds og koma kannski seint heim á björtum sumarnóttum. Það var oft ævintýralegt,“ rifjar Ingibjörg upp. Nú er sveitaballamenningin löngu liðin tíð. Ingibjörg vann á sumrin eins og tíðkaðist þá. „Þá voru flestir látnir vinna á sumrin og í raun og veru byrjaði ég strax bara tíu, ellefu ára að passa börn. Ég var send vestur á Flateyri til föðurömmu minnar tólf ára gömul og fékk að vinna í frystihúsinu þar nokkrar vikur. Það gekk bara ágætlega, var ágætt að fá „alvöru“ pening,“ segir hún. “ Á menntaskólaárunum vann ég í apótekinu hjá pabba á sumrin og í jólafríum og svo á Sjúkrahúsi Ísafjarðar sumarið eftir útskrift úr MA“. ÚTIVIST, FAGÞRÓUN Í IÐJUÞJÁLFUN OG MENNTAMÁL MEÐAL ÁHUGAMÁLA Ingibjörg átti ýmis áhugamál í æsku, meðal annars var hún ljósálfur og svo skáti og flokksforingi og stundaði útilegur og annað tengt útivist sem enn situr í henni. „Vestur á Ísafirði fór ég í Svannasveit og fór með þeim á Landsmót og líka sumrin sem ég var vestur á Flateyri. Útivist, gönguferðir og ferðalög eru enn mikil áhugamál hjá mér. Strax um 1980 fór ég að stunda gönguferðir og annaðþví tengt. Það þótti skrýtið þá að arka um fjöll og firnindi sem þykir eðlilegt í dag og það endaði með því að ég kláraði leiðsögumannaskólann 1983 og var leiðsögumaður í nokkur ár með dönsku- og enskumælandi ferðamenn auk Íslendinga. Mér hefur alltaf þótt skemmtilegast að ferðast með Íslendingum um landið, í göngu eða ökuferðum, í dagsferðum eða lengri ferðum; fólki úr félagasamtökum, starfsmannahópum og einstaklingum sem hafa gaman af útiveru og fróðleik um land og þjóð“, útskýrir Ingibjörg. Hún hætti að ferðast með erlenda ferðamenn 1987 en hélt ferðum með Íslendingum áfram þar til fyrir tveimur eða þremur árum síðan. „Ég var lengi fararstjóri í Ferðafélaginu Útivist. Sat í stjórn þar og var ritstjóri ársritsins ÚTIVIST í nokkur ár og textahöfundur á göngukortum um Goðaland-Þórsmörk sem voru gefin út,“ bætir hún við. VIÐTAL Valgerður Þórdís Snæbjarnardóttir, f.h ritnefndar, Reykjavík, 3. maí 2018 LISTIN Í IÐJUÞJÁLFUN KRISTALLAST Í STARFI MEÐ ÖLDRUÐUM

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.