Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 11

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Blaðsíða 11
11 sem við er að glíma í heiminum, meðal annars það úrræða- og bjargarleysi sem margt fatlað og undirokað fólk býr við (Burchardt, 2004; Mitra, 2006). Ennfremur hefur grundvallar hugsjónin að baki kenningunni, þ.e. að tryggja skuli öllum tækifæri, frelsi og færni til að lifa því lífi sem þeir kjósa að lifa, verið áréttuð. Hammell telur að færninálgunin geti stuðlað að aukinni gagnrýni í starfsháttum iðjuþjálfa þar sem jöfn tækifæri og réttur til iðju eru í brennidepli, í takt við mann- réttindayfirlýsingu Heimssambands iðju- þjálfa (World Federation of Occu pational Therapists, 2006) og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (United Nations, 2007). Í upphafi greinar sem skrifuð er í anda færni nálgunarinnar dregur Hammell (2015d) upp eftirfarandi lýsingu: Víða um heim hafa stúlkur takmarkaðan aðgang að menntun. Við álítum víst flest að þessi ójöfnuður tengist kynbundnu misrétti, hugmyndum um feðraveldið og félagslegu og sögulegu ójafnræði en ekki því að það sé eitthvað bogið við stúlkur. Hvernig er þá best að taka á málum til að tryggja jafnari stöðu stúlkna og drengja? Eigum við að flokka og skilgreina á hvern hátt líkamar stúlkna eru öðru vísi en líkamar drengja þannig að við fáum tölulega yfirsýn? Viljum við breyta líkömum og hugum stúlkna þannig að þær líkist drengjum? Eða viljum við vinna að gerð og innleiðingu laga um mannréttindi til að binda enda á ójöfnuð og ofbeldi gegn stúlkum, tala fyrir réttindum stúlkna til að sækja sér menntun, að ytri aðstæður séu viðunandi, svo sem nægjanlegt framboð af kennurum, skólahúsgögnum og bókum, og að stúlkum sé gert kleift að ferðast um í almennu rými þannig að þær geti tekið þátt líkt og drengir? Viðbrögð okkar ráðast líkast til af því hvort við lítum á þessa ójöfnu stöðu drengja og stúlkna sem óheppilega en óhjákvæmilega vegna þess að líkamar stúlkna séu „gallaðir“ í samanburði við viðurkennd karllæg viðmið eða að ástandið tengist félagslegum, lagalegum, efnahags legum, pólitískum, menningarlegum og trúarlegum hindrun- um sem koma í veg fyrir jöfn tækifæri kynjanna (Hammell, 2015d, bls. 78-79). (Lausleg þýðing höf unda). Hammell leggur áherslu á að á sama hátt þurfi iðjuþjálfar að hugsa sinn gang og taka hefðbundin vinnubrögð og áherslur til endurskoðunar í anda gagnrýninnar nálg- unar. Er rétt að leggja jafnmikla áherslu á að meta og flokka líkamsstarfsemi, umfang skerðinga og getu skjólstæðinga okkar og raun ber vitni? Er rétt að að leitast við að breyta fólki þannig að það falli betur að viðurkenndum normum? Eða ættum við að beita okkur meira gegn neikvæðum við- horfum, ósveigjanleika, og ýmis konar misrétti sem stuðlar að ójöfnum tækifærum fatlaðs fólks og annarra jaðarsettra hópa til þátttöku samanborið við aðra? Hún telur að færninálgunin gagnist vel til að varpa ljósi á tengsl lífsgæða, þátttöku og mannréttinda og réttarins til iðju. LOKAORÐ Mikil gróska hefur verið innan iðjuþjálfunar á heimsvísu undanfarna tvo áratugi. Svo er einnig hér á landi enda hefur íslenskum iðjuþjálfum fjölgað ört og þeir hasla sér völl á æ fleiri sviðum. Almennt er leitast við að veita skjólstæðingsmiðaða þjónustu þrátt fyrir þær kerfislægu hindranir sem víða er að finna. Nokkrir iðjuþjálfar hafa tekið sér stöðu við hlið notenda og þróað í samstarfi við þá þjónustu sem byggir á óskum og forgangsröðun hópsins. Dæmi um starfsemi af þessu tagi eru Ljósið - endurhæfing og stuðningur fyrir krabbameinsgreinda, og Hlutverkasetur og Hugarafl þar sem í báðum tilvikum er unnið með notendum geðheilbrigðisþjónustu og stuðlað að breyttum viðhorfum í málaflokknum. Þá eru einnig dæmi um að iðjuþjálfar veiti forstöðu verkefnum sem ekki eru beintengd heilsu og er þjónusta tengd aðlögun innflytjendahóps á Akureyri eitt af þeim. Það er þó enn algengt að áherslur iðjuþjálfa beinist að töluverðu leyti að þáttum í fari skjólstæðinga svo sem líkams- og hugarstarfsemi og minni gaumur sé gefinn að umhverfinu eða hinu flókna samspili einstaklings og umhverfis. Þetta er að mörgu leyti skiljanlegt í ljósi þess hvernig íslenskt heilbrigðiskerfi er byggt upp og þær sterku læknisfræðilegu hefðir sem þar ríkja. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að horfa til þátta í fari fólks enda skipta þeir oft miklu um getu og færni. Hammell (2017) hvetur iðjuþjálfa hins vegar til að beina sjónum í auknum mæli að þeim ólíku aðstæðum og tækifærum sem fólk býr við og áherslur hennar hafa skírskotun til okkar sem búum og störfum á Íslandi. Þótt almenn velmegun ríki hér á landi búa margir einstaklingar og hópar við takmarkaða valkosti og úrræðaleysi. Þar má nefna margt fatlað fólk, öryrkja, flóttamenn og hælisleitendur sem hafa sannarlega ekki frelsi til að lifa því lífi sem þeir kjósa að lifa. Aukinn fjöldi innflytjenda veldur því að samfélagið er ekki jafn einsleitt og áður og fjölgun aldraðra kallar á breytta nálgun í heilbrigðis- og samfélagsþjónustu. Mikilvægt er að íslenskir iðjuþjálfar leitist við að mæta þeim áskorunum sem þessu fylgja þannig að þjónusta þeirra taki mið af stöðu, bakgrunni og forgangsröðun ólíkra einstaklinga og hópa. Jafnframt er mikilvægt að iðjuþjálfar taki þátt í stefnumótun í heilbrigðis- og velferðarmálum um hvernig best er að standa að málum til að stuðla að tækifærum fólks til iðju. Sem fyrr segir er mikilvægt að iðjuþjálfar séu meðvitaðir um valda- ójafnvægið sem alla jafna ríkir í samstarfi þeirra við notendur og leiti leiða til að sporna gegn því. Í nýrri námskrá iðjuþjálfunarfræði við Há- skólann á Akureyri (Bergljót Borg, 2017) fá félagsleg sjónarhorn og gagnrýnin nálg un í anda Hammell töluvert meira vægi en áður með áherslu á notendamiðaða velferðar- þjónustu. Slíkt veganesti ætti að nýtast til að þróa og festa í sessi þjónustu þar sem aukin áhersla er lögð á umhverfi í víðum skilningi og rétturinn til iðju er í brennidepli. Hlutdeild í iðju er öllu fólki nauðsynleg og gefur lífinu gildi. Það er von okkar að iðjuþjálfar framtíðarinnar láti sig varða iðjutengd málefni af ýmsum toga og haldi áfram að hasla sér völl á fjölbreyttum vettvangi. HEIMILDIR: Abberley, P. (1995). Disabling ideology in health and welfare - the case of occupational therapy. Disability & Society, 10(2), 221-232. doi:10.1080 /09687599550023660 Andreassen, T. A. (2018). Service user involvement and repositioning of healthcare professionals: A framework for examining implications of different forms of involvement. Nordisk välfärdsforskning | Nordic Welfare Research, 3(1), 58-69. doi:10.18261/ issn.2464-4161-2018-01-06 ER Bergljót Borg. (2017). Breytingar á námi í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri. Iðjuþjálfinn, 1, 54-57. Borell, L., Asaba, E., Rosenberg, L., Schult, M.-L. og Townsend, E. (2006). Exploring experiences of “participation” among individuals living with chronic pain. Scandinavian Journal of Occu- pational Therapy, 13, 76-85. doi: 10.1080 /11038120600673023 Bruininks, R. H. og Bruininks, B. D. (2005). Bruininks- Oseretsky Test of Motor Proficiency (2. útgáfa) (BOT™2). New Jersey: Pearson. Burchardt, T. (2004). Capabilities and disability: the capabilities framework and the social model of disability. Disability & Society, 19, 735-751. doi:10.1080/0968759042000284213 Coster, W., Law, M., Bedell, G., Khetani, M., Cousins, M. og Teplicky, R. (2012). Development of the Participation and Environment Measure for

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.