Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Síða 4
4
Það eru áhugaverðir tímar framundan,
kjarasamningar lausir í byrjun næsta árs og
breyting á formannsstöðu. En byrjum á að
líta aðeins yfir árið og á verkefnin fram-
undan.
WFOT AÐALFUNDUR OG RÁÐSTEFNA Í
CAPE TOWN SUÐUR AFRÍKU
Það voru formenn frá um 70 af 102
aðildarlöndum að WFOT / Alþjóðasam-
tökum iðjuþjálfa sem mættu á 3ja daga
fund með stjórn WFOT í Cape Town, Suður
Afríku. Skýrslur stjórnar voru kynntar og
góðar umræður sköpuðust um hin ýmsu
málefni eins og 60 ára samvinnu WFOT og
WHO (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin),
hlutverk aðstoðarmanna iðjuþjálfa, breyt-
ingar á aðildargjaldi, nýjar umsóknir í
WFOT, bætt samvinna aðildarþjóðanna,
verkefnahópar voru kynntir sem og stefna
WFOT 2019-2024 svo eitthvað sé nefnt.
Nokkrir rannsóknarstyrkir voru veittir,
verðlaun voru veitt fyrir framúrskarandi
þjónustu og fráfarandi stjórnarmeðlimum
var þakkað fyrir sitt framlag.
WFOT eru orðin gríðarstór samtök en það
eru um 600.000 meðlimir í samtökunum og
um 900 viðurkenndar iðjuþjálfunarfræði-
námsleiðir.
Eftir fundina var haldið á alheimsráðstefnu
WFOT en það voru um 3.000 manns sem
mættu allstaðar úr heiminum, þetta var 17.
alheimsráðstefnan og í fyrsta skipti í Afríku.
Rúmlega 50 manns fóru frá Íslandi í
sérskipulagðri ferð á vegum IÞÍ. Til viðbótar
voru um 20 manns sem fóru á eigin vegum.
Við slógum því enn eitt metið og vorum það
land utan Afríku sem var með flesta
iðjuþjálfa miðað við fjölda iðjuþjálfa í
landinu.
Þema ráðstefnunnar var “Connected in
Diversity: Positioned for Impact”. Þemað
var sérstaklega áþreifanlegt á þessum stað í
heiminum en Suður Afríka berst við einn
mesta samfélagslega ójöfnuð í heimi.
Landið hefur gengið í gegnum ótrúlega
sögu þrælahalds, fátæktar og aðskilnaðar-
stefnu.Það var ómetanlegt að fá tækifæri til
að læra, upplifa, deila og tengjast
iðjuþjálfum allstaðar úr heiminum á
þessum magnaða stað og fá tækifæri til að
kynna sér sögu lands og þjóðar.
Við höfðum einnig tækifæri til að kynna
okkur og heimsækja nokkur góðgerðar-
samtök í Höfðaborg þar á meðal GAPA –
Grandmothers against poverty and aids
(Ömmur gegn fátækt og eyðni). Það var
vægast sagt auðmýkjandi upplifun og ekki
hægt annað en að dást af þessum ömmum
sem fara um fátækrahverfin og fræða
íbúana um sýkingavarnir og kenna fólki allt
frá hannyrðum og yfir í umönnun barna.
Næsti fundur aðildarfélaganna verður
haldinn í Hong Kong 2020 og næsta
ráðstefna í París 2022. Við hvetjum alla
félagsmenn til að nýta sér styrki BHM og
sækja erlendar ráðstefnur heim.
NORRÆNT SAMSTARF
Norðurlandafundur iðjuþjálfafélaganna var
að þessu sinni haldinn í Færeyjum um
mánaðarmótin ágúst/september.
Norræni iðjuþjálfafundurinn var einstak-
lega vel heppnaður og fengum við meðal
annars kynningu á stöðu landanna en við
erum öll að vinna að sömu hlutum óháð
stærð, eins og til að mynda fjölgun starfa,
hækkun launa, og kynningu á iðjuþjálfun út
á við. Einnig fengum við kynningu á stöðu
verkefnis sem ákvörðun var tekin um fyrir
ári síðan hér á Íslandi, að vinna að norrænu
samstarfsverkefni um virði iðjuþjálfunar.
Verklok eru í byrjun næsta árs en þá munum
við fá skýrslu frá rannsakendum verk efnis-
ins. Það verður spennandi að lesa um
niðurstöður rannsóknarinnar á útkomu
iðjuþjálfunar innan öldrunar og geðheilsu.
Sænska iðjuþjálfafélagið hefur opnað fyrir
fjarnám á vef sínum og kallar það ”Digital
academy Swedish Association”. Þarna er að
finna mikið af kúrsum sem margir eru öllum
aðgengilegir og ókeypis.
KJÖR FÉLAGSMANNA
Í september 2017 hófu aðildarfélaög BHM
viðræður við samninganefnd ríkisins hvert
fyrir sig. Samninganefnd IÞÍ náði að funda
tvisvar sinnum með fulltrúum úr
samninganefnd ríkisins fyrir ríkisstjórnar-
slit. Fundahöld stöðvuðust tímabundið
vegna kosninga en í byrjun árs 2018 var sest
að samningaborðinu á ný og samkomulag
undirritað 2. febrúar.
Nú er það svo að ríkið er stærsti vinnu-
veitandi félagsmanna IÞÍ og 2017 voru
meðallaun iðjuþjálfa hjá ríki 503.630 kr.
FORMANNSPISTILL
Ósk Sigurðardóttir,
formaður IÞÍ
KÆRU FÉLAGSMENN