Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Side 22

Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Side 22
22 Þann 1. mars 2018 hóf endurhæfingarteymi formlega störf innan heimaþjónustu í efri byggð Reykjavíkur samkvæmt hugmynda- fræði sem nefnist „Hverdags rehabilitering“ eða Endurhæfing í heimahúsi. Hugmynda- fræðin á rætur sínar að rekja til verkefnis „Længst muligt i eget liv“ í sveitarfélaginu Fredericia í Danmörku árið 2007 sem ætlað var að virkja eldri borgara og styrkja þá til að vera virkir þátttakendur í eigin lífi sem lengst. Hugmyndafræðin hefur síðan þá verið í stöðugri þróun og rutt sér til rúms víða um heim með jákvæðum árangri, sérstaklega á Norðurlöndunum. Þetta verklag í heimaþjónustu er ný nálgun og töluvert ólík því sem nú þekkist hér á landi þar sem þjónustuþeginn er meira við stjórnvölinn en áður. Í stað þess að sveitarfélagið skilgreini fyrirfram hvaða þjónusta er í boði þá er lagt fyrir matstækið COPM (Canadian Occupational Perform- ance Measurement) eða „Mæling á færni við iðju“ til að skilgreina hvaða iðjuvanda einstaklingurinn upplifir mikilvægan að leysa. Sambærilegt tilraunaverkefni var framkvæmt hér á landi 2014-2015 undir stjórn Sigurlínu Andrésdóttur sem gaf góða raun þrátt fyrir stuttan tíma og fáa þátttakendur (Ásbjörg Magnúsdóttir, Guð- rún Friðriksdóttir og Sigurlína Andrés dóttir, 2015) og var það hvatinn að áfangaskiptri áætlun Reykjavíkurborgar um stofnun þriggja endurhæfingarteyma á árunum 2017-2019 (Reykjavíkurborg, Velferðarsvið, 2017). Samkvæmt hugmyndafræðinni er gert ráð fyrir að í endurhæfingarteyminu starfi iðjuþjálfi, hjúkrunarfræðingur, sjúkra- þjálfari, sjúkraliðar og félagsliðar (Tuntland og Ness, 2016) en íþrótta fræðingur var ráðinn í stað sjúkra þjálfara. Endurhæfingar- teymið veitir persónumiðaða þjónustu sem hefur það markmið að efla líkamlegt, andlegt og félagslegt heilbrigði ein- staklingsins í eigin umhverfi. Þjónustan getur varað frá nokkrum dögum og í allt að 12 vikur. Notast er við valdeflandi nálgun í upphafi þjónustunnar með því að styðja einstaklinginn í að setja sér markmið og er það hlutverk faghópsins að styðja hann í að finna leiðir til að ná þeim markmiðum. Það sem einkennir þjónustuna er mikill stuðn- ingur til sjálfshjálpar í upphafi þjónustu sem dregið er svo úr eftir því sem færni eykst eða bjargráð einstaklingsins verða fleiri. Þetta er gert með því að styðja einstaklinginn við að gera athöfnina í staðinn fyrir að gera hana fyrir hann. Þarfir og áherslur geta því breyst á meðan þjónustan stendur yfir, í takt við að bjargráð og færni einstaklings eykst. Innleiðingin hófst með ráðningu verkefnis- stjóra 1. maí 2017 sem jafnframt er iðjuþjálfi með framhaldsmenntun á háskólastigi eftir að fjármögnun fékkst frá Velferðar- ráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sjúkra- tryggingum Íslands. Í kjölfarið var skipaður stýrihópur á vegum velferðarsviðs Reykja- víkurborgar sem heldur utan um verkefnið. Ákveðið var að hefja innleiðinguna á sömu starfsstöð og tilraunaverkefnið hafði verið framkvæmt til að byggja ofan á þá þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar og hugmyndafræðin því ágætlega kunnugleg starfsfólkinu þar. Samkvæmt áætlun verða tvö ný endurhæfingarteymi innleidd í heimaþjónustuna sem er starfandi í öðrum byggðum Reykjavíkurborgar. Á fyrstu dögum teymisins var farið í fræðslu og þjálfun úti á vettvangi þar sem endur- hæfingarteymið fylgdi starfsfólki í heima- þjónustunni í efri byggð, félagslegri heima- þjónustu og heimahjúkrun út á vettvang fyrir hádegi og eftir hádegi var tíminn nýttur til að kynnast hvert öðru, hugmynda- fræðinni, þjónustuúrræðum, velferðar- tækni og velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Einnig var Guðrún Pálmadóttir dósent við iðjuþjálfunardeild Háskólans á Akureyri fengin til að vera með kynningu og kennslu á matstækinu COPM fyrir starfsfólk heimaþjónustunnar í efri byggð. Vikulega eru haldnir þverfaglegir fundir til að yfirfara umsóknir um heimaþjónustu og ákveða hvort þjónustan verði á vegum endurhæfingarteymis, félagslegrar heima- GREIN Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, verkefnisstjóri, Iðjuþjálfi, MA í norrænum öldrunarfræðum ENDURHÆFING Í HEIMAHÚSI – NÝTT ÞJÓNUSTUÚRRÆÐI INNAN HEIMA- ÞJÓNUSTU REYKJAVÍKUR

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.