Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Qupperneq 33
33
Þátttaka í daglegu lífi er mikilvægur hluti af
lífsreynslu fólks og hefur sterk tengsl við
lífsgæði. Með þátttöku öðlast fólk kunnáttu
og hæfni til að tengjast öðrum og vera hluti
af samfélagi. Færni og fötlun eru víðtæk
hugtök og ýmsir þættir geta ýtt undir eða
hindrað möguleika fólks til að taka þátt í
daglegu lífi. Tilgangur rannsóknarinnar var
að kanna þátttöku fólks með sjúkdóm eða
skaða í miðtaugakerfi og þá þætti sem ýta
undir eða hindra færni þess og þátttöku í
daglegu lífi. Settar voru fram tvær
rannsóknaspurningar: (1) Hvernig lýsir fólk
með sjúkdóm eða skaða í miðtaugakerfi
þátttöku sinni í daglegu lífi? (2) Hvaða
þættir ýta undir eða hindra færni og
þátttöku fólks með sjúkdóm eða skaða í
miðtaugakerfi? Til þess að svara spurn-
ingunum var notað eigindlegt rannsóknar-
snið og tekin viðtöl við sex fullorðna ein-
staklinga með sjúkdóm eða skaða í
miðtaugakerfi sem voru valdir með
tilgangsúrtaki. Viðtölin tóku til þátta er
vörðuðu þátttöku, færni, endurhæfingu,
eftirfylgd og þjónustuúrræði sem þátt-
takendur höfðu reynslu af. Viðtölin voru
hljóðrituð og afrituð orðrétt. Við gagna-
greiningu voru viðtölin fyrst lesin ýtarlega
og svo kóðuð opið til að fá heildarmynd af
lýsingu þátttakenda. Kóðunum var síðan
raðað í flokka sem endurspegluðu best
reynslu þátttakenda með tillit til
rannsóknarspurninganna. Niðurstöðurnar
birtust í kjarnaþemanu ,,Þátttaka“ sem var
undir áhrifum frá fjórum undirþemum en
þau voru ,,Hugarfar“, ,,Stuðningur“, ,,Þjónu-
sta“ og ,,Efnisheimur og samfélag“. Helstu
niðurstöður voru þær að dregið hafði úr
þátttöku sem krafðist líkamlegrar færni og
þátttakendur höfðu leitað í rólegri athafnir.
Þeir þættir sem ýttu undir þátttöku voru
jákvætt hugarfar þátttakenda sjálfra og
stuðningur sem aðstandendur, fagfólk og
aðrir veittu. Það sem helst hindraði þátttöku
voru umhverfisþættir, s.s. slæmt aðgengi
og flókið kerfi m.t.t. ýmissa réttinda, s.s.
endurhæfingar og annarrar þjónustu. Gildi
rannsóknarinnar fyrir iðjuþjálfafagið er að
hún veitir innsýn í reynslu og upplifun fólks
með sjúkdóm eða skaða í miðtaugakerfi og
þá þætti sem ýta undir eða hindra þátttöku
þess í daglegu lífi. Með slíkri vitneskju er
hægt að koma betur til móts við þarfir
þessa hóps og veita honum viðeigandi
þjónustu.
Meginhugtök: færni, þátttaka, sjúkdómar
og skaðar í miðtaugakerfi
Verkefni þetta er heimildasamantekt með
nýsköpun og byggir á kanadíska iðju-
líkaninu (Canadian model of occupational
performance and engagement, CMOP-E).
Tilgangur þess var að skoða hvernig
fjarskiptatækni hefur verið nýtt í starfi
iðjuþjálfa og möguleika á því að innleiða
fjarþjónustu á Íslandi til þess að auka
aðgengi fólks með geðrænan vanda að
iðjuþjálfun. Þær rannsóknarspurningar
sem leiddu verkefnið voru: 1) Hvernig er
geðheilbrigðisþjónusta veitt á Íslandi? 2)
Hvaða tækifæri og hindranir tengjast því að
innleiða fjarþjónustu í iðjuþjálfun fyrir
einstaklinga með geðrænan vanda? 3)
Hvernig má nota fjarskiptatækni til að auka
aðgengi að iðjuþjálfun fyrir einstaklinga
með geðrænan vanda? Leitast var við að
svara fyrstu tveimur rannsóknar-
spurningunum með fræðilegri heimilda-
samantekt en þeirri þriðju með því að setja
fram gagnreynda hugmynd að nýsköpun.
Heimildasamantektin leiddi í ljós að þörf er
á að efla geðheilbrigðisþjónustu á öllu
landinu en aðgengi að slíkri þjónustu er þó
sérstaklega skert fyrir einstaklinga sem
búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins.
Stjórnvöld hafa sett fram markmið um að
bæta geðheilbrigðisþjónustuna og enn
fremur gert áætlunum um að efla
fjarheilbrigðisþjónustu til að auka aðgengi
fólks á landsbyggðinni að sérhæfðum
úrræðum. Geðheilbrigðisþjónusta þykir
kjörinn vettvangur til að nýta fjarskiptatækni
og veita fjarþjónustu. Fordæmi eru fyrir
notkun fjarskiptatækni í iðjuþjálfun víða
erlendis og hefur fjarþjónusta reynst vel t.d.
við mat, íhlutun og eftirfylgd. Þá hefur
einnig verið sýnt fram á aukið aðgengi að
sérfræðiþjónustu, skilvirkni í þjónustu,
hagkvæmni í rekstri og aukið aðgengi
fagaðila að gagnreyndu efni með notkun á
fjarskiptatækni. Nýsköpun verkefnisins
felst í hugmynd að fjarþjónustu iðjuþjálfa
sem veitt er innan heilsugæslunnar.
Markmiðið með þjónustunni er að bjóða
uppá snemmtæka íhlutun til að koma í veg
fyrir að geðrænn vandi stigmagnist.
Þjónustan verður veitt með rafrænum hætti
en þannig hafa allir jafnan aðgang að
þjónustunni óháð því hvar á landinu þeir
búa. Með innleiðingu slíkrar þjónustu væri
því verið að auka aðgengi einstaklinga með
geðrænan vanda að þjónustu iðjuþjálfa og
efla geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Lykilhugtök: Iðjuþjálfun, geðheilbrigði,
fjarheilbrigðisþjónusta, fjarskiptatækni og
snemmtæk íhlutun.
Höfundar: Guðrún Ása Eysteinsdóttir,
Jónína Einarsdóttir, Sara Pálmadóttir
Leiðbeinandi: Bergljót Borg
Höfundar: Guðrún Helga Kærnested
og Henríetta Fríða Árnadóttir
Leiðbeinandi: Guðrún Pálmadóttir
Í TAKT VIÐ NÝJA TÍMA:
FJARÞJÓNUSTA IÐJUÞJÁLFA
„ÉG VERÐ AÐ SÆTTA MIG VIÐ ÞAÐ
AÐ ÉG GET EKKI ALLT”
ÞÁTTTAKA FÓLKS MEÐ SJÚKDÓM EÐA SKAÐA Í MIÐTAUGAKERFI