Iðjuþjálfinn - 01.01.2018, Page 38
38
Í mörgum löndum Afríku eru það aldraðir
sem sjá um munaðarlaus börn og börn sem
búa við skerðingar eða í um 40-60% tilfella.
Í skýrlsu UNICEF um aðstöðu barna alls
staðar að úr heiminum kemur fram að,
ömmur og afar og þá sérstaklega ömmur
eru helstu umönnunaraðilar þessarra
barna.
Með stuðningi frá grasrótarsamtökum í
Austur og Suður Afríku eiga þrjátíu ömmur
það sameiginlegt að hafa skrifað sínar
persónulegu sögur. Þetta eru sögur um
menningu, innri styrk og hugrekki; sögur
um það hvernig þær hafa alið börn sem lifa
við skerðingar, stutt fjölskyldur og tekið
þátt í að snúa vörn í sókn gegn HIV og AIDS;
sögur um hvernig þeirra seigla og
hugvitssemi hefur hjálpað til við að bjarga
heilu samfélögunum og þeirra innri þrá um
að skipta sköpum í lífi barnabarna sinna og
samfélagsins. Út frá sögum þessarra
kvenna hafa orðið til nokkur samtök innan
heimsálfunnar Afríku sem miða m.a. að því
að veita umhyggju til munaðarlausra barna
og miðla til samfélagsins.
GAPA samfélagsverkefnið, var stofnað 2001
af 10 ömmum og iðjuþjálfa. Samtökin
standa fyrir ömmur á móti fátækt og Aids
eða Grandmoters Against Poverty and Aids
(GAPA). Í GAPA er lögð áhersla á sjálfshjálp,
menntun og stuðning fyrir ömmur af
ömmum þar sem líf þeirra hefur á einhvern
hátt litast af HIV/Aids og fátækt. Þetta
verkefni hefur það að markmiði að bæta
lífsgæði þeirra og fjölskyldna innan
samfélagsins.
Við ásamt fleirum gestum á heimsráðstefnu
iðjuþjálfa vorum svo lánsamar að fá að fara
í heimsókn til þessarra hugrökku kvenna,
heyra þeirra sögur og sjá aðstæðurnar sem
þær búa við til að miðla og styðja
samfélagið.
GREIN
Nína Jensen, Ragnheiður R. Magnúsdóttir,
GAPA samfélagsverkefnið
Í MIÐRI ÖRVÆNTINGUNNI
ERU HLJÓÐU HETJURNAR;
ÖMMURNAR FRÁ AFRÍKU
Merki GAPA Matseðill fyrir börnin og ömmurnar og stöðukort. Sum barnanna
hafa lítið til að bíta og brenna utan skóla og fá mat hjá ömmunum.
Þarna eru matjurtir ræktaðar í mat barnanna. Ömmurnar miðla
einnig þekkingu sinni um ræktun matjurta út í samfélagið.
kennslustofa barnanna er lítill skúr á lóðinn þeirra. Þarna koma
börnin m.a. eftir skóla og fá aðstoð við heimanám.
Börnin koma eftir skóla og eru þarna í öruggu umhverfi þar sem
þau geta leikið sér.