Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Síða 41
41
ánægjulegt að kenna þeim. Þeir eru alltaf
mættir vel áður en kennsla hefst á morgn-
ana, fara helst ekki út úr kennslustofum í
hléum, en hlé eru höfð mjög stutt, bara 10-
15 minútur tvisvar á dag auk hádegisverðar.
Við höfðum stundum áhyggjur af því að
klára ekki yfirferð kennsluefnis dagsins á
tilskyldum tíma, þar sem drjúgur tími fer í
þýðingar, en þá var okkur sagt að við skyld-
um endilega halda áfram áhyggjulaust, því
ef við kenndum fram yfir skráðan dagskrár-
tíma þá fyndist fólki það vera að „græða“,
því það fengi kennslu umfram það sem það
hefði greitt fyrir. Þannig að þó fólki væri
sagt að það gæti yfirgefið kennslustofuna á
réttum tíma, var aldrei neinn sem notfærði
sér það. Það kann að vera áhugavert fyrir
íslenska iðjuþjálfa að skoða hópmyndir frá
kennslu á A-ONE námskeiðum í Japan. Ekki
bara af því að það eru margir iðjuþjálfanna
karlmenn, heldur einnig vegna þess að
meiri hluti þátttakenda á námskeiðunum er
iðulega karlmenn, eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum.
En námskeiðin eru ekki bara strit heldur
fylgir einnig grín og glens. Eins og á hefð-
bundnum námskeiðum þar sem eru erlend-
ir fyrirlesarar var farið saman út að borða,
og lét enginn sig vanta í það úr hópunum
sem ná gjarnan 40 manns. Haldnar eru
ræður við slík tilefni og glatt á hjalla. Á
meðfylgjandi mynd sem tekin er daginn fyr-
ir lokaprófið dugði ekki minna en hafa
körfuboltaþjálfara fatlaðra til að fylgjast
með klukkunni og ákveða hvenær fólk ætti
að drífa sig heim og klára að lesa fyrir próf-
ið.
Strax næsta ár var búið að setja á laggirnar
fimm manna teymi sem þjálfa átti upp sem
framtíðar kennara A-ONE á japönsku.
A-ONE námskeiðin hafa verið haldin árlega
síðan þau hófust í Japan og nú hafa verið
haldin sjö námskeið, fjögur í Osaka og þrjú
við Háskólann í Hiroshima. Á meðan nám-
skeiðin voru að mestu flutt á ensku komu
stundum þátttakendur frá öðrum Asíu
löndum t.d. Brunei, Kína, Malasíu og
S-Kóreu. Smátt og smátt hefur japanskt efni
og fyrirlestrar á námskeiðunum aukist og
nú er svo komið að japanskir iðjuþjálfar eru
orðnir sjálfbjarga með að kenna A-ONE á
japönsku. Eyðublöð, kennsluefni og
skyggnur hafa sem sagt allt verið þýtt á
japönsku. Því verður næsta námskeið, sem
haldið verður í Fukuoka í september 2019,
eingöngu kennt af japönum. Nú sitja því
japanskir iðjuþjálfar sveittir við að fara yfir
myndbönd og þýða allt kennsluefnið undir
umsjón þar sem þeir eru að verða sjálf-
bjarga með að kenna A-ONE. Greinar um
þýðingarferli og staðfæringu japanskrar út-
gáfu A-ONE, A-ONE J hafa verið birtar í
japönskum fagtímaritum. Þess má geta að
fjöldi japanskra iðjuþjálfa með A-ONE
réttindi nálgast óðfluga 300.
Auk þess hafa verið haldin tveggja daga
þjálfunar námskeið fyrir kennarana fyrir
hvert námskeið og síðan árlega eins dags
A-ONE framhalds ráðstefnur eftir aðal nám-
skeiðin. Á framhalds ráðstefnurnar mæta
þeir iðjuþjálfar sem hafa útskrifast af fyrri
A-ONE námskeiðum. Þeir flytja þar t.d. er-
indi eða sýna veggspjöld sem tengjast
A-ONE og hafa verið kynnt á innlednum eða
erlendum ráðstefnum yfir árið. Oft ná höf-
undar veggspjalda um A-ONE til fleiri stétta
en iðjuþjálfunar s.s. lækna og má þá t.d. sjá
upplýsingar úr myndgreiningu fylgja A-ONE
matseyðublöðum eins og á meðfylgjandi
veggspjaldi frá ráðstefnu um taugafræði.
Einnig eru á framhalds ráðstefnum sýnd ný-
leg myndbönd af sjúklingum, þannig að
þátttakendur geti æft sig áfram í að gefa fyr-
ir og ræða málin saman. Þátttakendur á
slíkum viðburðum skipta gjarnan tugum og
koma víðsvegar frá í Japan rétt eins og á
grunn námskeiðunum.
Japanir eru gestrisnir og þegar kennsla er
löng og ströng þá er ekki amarlegt að vera
AONE kennarahópurinn í Japan.
Hópmyndir frá AONE námskeiðum eru vinsælar.
Áritunar raðir.
Karlmenn í iðjuþjálfun.