Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Síða 43
43
Erindi Guðrúnar „Groundwork for increas
ing Occupationbased Neurological Evi
dence“ fékk mjög góðar undirtektir og var í
anda ráðstefnunnar sem bar heitið:
„Enlargement of Evidence-Based Occu-
pational Therapy“. Ráðstefnuna sóttu á
fimmta þúsund manns. Auk stefnuræðu
Guðrúnar kom í ljós að nokkur erindi ráð-
stefnunnar voru flutt af fyrverandi nemend-
um hennar á A-ONE námskeiðum og fjöll-
uðu þau um japanskar rannsóknir á
matstæki hennar A-ONE. Auk ágrips í ráð-
stefnuriti skrifaði Guðrún stutta grein um
efni fyrirlestursins í japanska iðjuþjálfa-
blaðið JAOT að beiðni ráðstefnuhaldara og
var greinin birt í desember 2018. Í lok fyrir-
lestursins afhentu formaður ráðstefnunnar
Professor Hideki Miyaguchi og forseti jap-
anska iðjuþjálfafélagsins Professor Haruki
Nakamura Guðrúnu viðurkenningarskjal
félagsins.
Þess má geta að næsta erindi á undan Guð-
rúnar, önnur opnunarræða ráðstefnunnar
var flutt af aðstoðarmanni japanska dóms-
málaráðherrans. Guðrúnu var boðið í
kvöldmat með honum ásamt forseta jap-
anska iðjuþjálfafélagsins og þremur skipu-
leggjendum ráðstefnunnar, auk tveggja er-
lendra iðjuþjálfa sem voru að skipuleggja
og auglýsa ,,Asia Pacific” ráðstefnu iðju-
þjálfa, sem haldin verður haustið 2019 á
Filipseyjum. Asia Pacific ráðstefnan er sam-
bærileg við Evrópuráðstefnu iðjuþjálfa og
er haldin af iðjuþjálfum í Asíu og Eyjaálfu.
Frábærar viðtökur svo ekki verði annað
sagt og allur undirbúningur og skipulagn-
ing japönsku ráðstefnunnar til fyrirmyndar,
eins og reyndar var einnig raunin á heims-
ráðstefnunni í Yokohama 2014, þar sem við
vorum með öll þrjú erindin frá Íslandi.
Það er komið að leiðarlokum í bili. Þegar
við skiljum við árleg ferðalög til Japan ósk-
um við japönskum iðjuþjálfum góðs við
notkun A-ONE. Jafnframt vonum við að þeir
fái góðan byr við kennslu og rannsóknir
tengd matstækinu.
Guðrún Árnadóttir
og Valerie Harris
Miyaguchi kynnir erindi Guðrúnar fyrir Doktorsnema
í Hiroshima.
Higashi kynnir meistararannsóknir sínar á AONE málþingi fyrir
lengra komna. Í bakgrunni má sjá AONE veggspjald frá ráð
stefnu í taugafræðum.
Kondo kennir á japönsku.
Tafla 1. Nokkur dæmi um AONE heimildir eftir japanska höfunda
Crabtree, J. L. (2011). Neuro-Occupation: The confluence of neuroscience and occupational therapy.
Japanese Occupational Therapy Journal, 45(7) 879 - 886.
Higashi, Y., Matsubara, A., Takabatake, S. & Nishikawa, T. (2017) A Pilot Study of Reliability and Validity of
the ADL-focused Occupation-based Neurobehavioral Evaluation (A-ONE) in Japan. Japanese
Occupational Therapy Research, 36(2), 194 - 202.
Higashi, Y., Takabatake, S., Matsubara, A., Nishikawa, K., Shigeta, H. & Árnadóttir, G. (2019). Reliability and
validity of the Japanese version of the ADL-focused Occupation-based Neurobehavioural Evaluation
(A-ONE J): Applying Rasch analysis methods. Hong Kong Journal of Occupational Therapy., 32(1), 32 - 40.
http://dx.doi.org/10.1177/1569186119825885
Higashi,Y., Takabatake, S., Matsubara, A., Nishikawa, K., Shigeta, H., Yuri, Y., Nakaoka, k. & Kaneda, T. (2019).
Internal Validity of the Japanese version of the ADL-focused Occupation-based Neurobehavioral
Evaluation (A-ONE) by Using the Rasch Analysis. Sogo Rehabilitation, 47(2), 161 - 166.
Higashi,Y., Takabatake, S., Nishikawa, T., Oryoji, K. & Matsubara, A. (2014). A study on Criterion Validity of
Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evaluation. World Congress of Occupational Therapists, conference
proceedings.
Matsubara, A., Hayata, M., Yata, K., Shimizu, H., Miyaguchi, H. & Murakami, T. (2015). Effectiveness of ADL
evaluation for poststroke patients using the A-ONE. American Occupational Therapy Conference proceed-
ings.
Matsubara, A.,Yata, K., Miyaguchi, H. & Shimizu, H. (2013). Introduction of ADL evaluation with Árnadóttir
OT-ADL Neurobehavioral Evaluation (A-ONE) and a case study. Osaka Occupational Therapy Journal,
27(1), 27 - 31.
Matsubara, A.,Yata, K., Miyaguchi, H. & Shimizu, H. (2012) Introduction of Árnadóttir OT-ADL Neuro-
behavioral Evaluation (A-ONE). Japanese Occupational Therapy Journal, 46(4), 403 - 409.
Nishikawa, N. (2004) the Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evaluation (A-ONE), Japanese Occupational
Therapy Journal, 38(7), 540 - 548.
Nishikawa, K., & Matsubara, A. (2018). A-ONE, Yasashii Kojinoukinousyougaijiten, Parson Sobou, 593.
Gillen, G. (2011). G. Gillen (Ed.), Stroke rehabilitation: A function-based approach (3rd Ed.), [脳卒中のリハビ
リテーション 生活機能に基づくアプローチ], (S. H. Shimizu, H. Miyaguchi & A. Matsubara, Japanese
Translation, (2014). Japan: Miwa-Shoten Ltd., Elsevier Japan KK in arrangement with Elsevier Inc.