Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 66
66
Guðrún Árnadóttir II Grein 2019 Málþing LSH Box 1
Þjónustuyfirlit út frá hugmyndafræði MOHO - iðjuþjálfun á Kleppi
Aníta Stefánsdóttir, Erna Sveinbjörnsdóttir, Harpa Ýr Erlendsdóttir, Ólafía Helga Arnardóttir
og Sólveig Dögg Alfreðsdóttir
Inngangur: Á Kleppi eru starfræktar fimm legudeildir og ein göngudeild sem iðjuþjálfar þjónusta. Iðjuþjálfar í geðendurhæfingu á Kleppi styðjast við þjónustuferli líkansins um iðju
mannsins (MOHO). Algengustu skjólstæðingshópar sem fá þjónustu iðjuþjálfa eru einstaklingar
sem glíma við þunglyndi, kvíðaraskanir, tvígreiningar, geðrofssjúkdóma og
persónuleikaraskanir. Einstaklingar með geðsjúkdóma eiga oft sögu um að einangra sig og ráða
illa við athafnir daglegs lífs. Hugmyndafræði MOHO leggur áherslu á að vinna með vilja, vana,
umhverfi og getu til að framkvæma til að vera virkur þáttakandi í samfélaginu og hentar því vel
til íhlutunar í geðendurhæfingu.
Markmið: Að útbúa yfirlitstöflu út frá hugmyndafræði MOHO til að auðvelda yfirsýn yfir
þjónustu sem iðjuþjálfar á Kleppi veita og til að rökstyðja fagleg vinnubrögð.
Aðferðir: Til að afla upplýsinga voru haldnir fundir til að samræma og fá heildarmynd af þeirri
þjónustu sem veitt er og algengustu greiningum skjólstæðingshópa. Íhlutun iðjuþjálfa á legu- og
göngudeildum voru greind út frá lykilhugtökum til að fá yfirsýn yfir hvort veitt þjónusta
samræmdist hugmyndafræði MOHO.
Niðurstöður og ályktanir: Vegna íhlutunar sem iðjuþjálfar á Kleppi veita lá beinast við að
styðjast við hugmyndafræði MOHO til að stýra þjónustunni, efla fagímynd og mynda skýra
stefnu iðjuþjálfunar í geðendurhæfingu. Hugmyndafræði MOHO notar einungis sálfélagslega
líkanið til að stýra þjónustuferlinu en íhlutun iðjuþjálfa í geðendurhæfingu kemur inn á tengingu
við fleiri líkön. Til stuðnings var því ákveðið að bæta fleiri líkönum inn í yfirlitstöflu sem tilheyra
þjónustuferli Fishers þar sem þjónustuferli MOHO takmarkast af einu líkani.