Málfríður - 15.12.1994, Síða 7

Málfríður - 15.12.1994, Síða 7
ar.11 Er þetta ekki eitt af því sem vert væri að skoða? Seinna verk- efnið er lenging æfingatíma- bilsins. Ég bar áðan fram þá spurningu hvort hægt væri að læra að kenna í háskóla? Mínar rannsóknarniðurstöður benda til þess. En nemar munu ekki ná tökurn á fræðunum, nema þeim sé gert kleift að reyna í fram- kvæmd það sem þar er fjallað um. Þetta má annars vegar gera með verklegum tímum og hins vegar með vandaðri æfinga- kennslu úti í skólum. Hvort- tveggja virðist vera nauðsynlegt, hvort styður annað. Kennarar hafa stundum gælt við hug- myndina um að taka upp gamla meistarakerfið, þar sem kenn- araneminn lærir eingöngu af reyndum kennara. Athuganir sýna hins vegar að slíkt kerfi leiðir til stöðnunar og því meg- um við tungumálakennarar síst við.12 Ég tel að stefna beri að því að æfingakennslan standi í misseri sem verði um miðbik námsins. Námið verði þá skipulagt á eftir- farandi hátt: Nauðsynlegt er að ráða sér- staka æfingakennara enda hljóti þeir þjálfun sem slíkir og verði fastráðnir æfingakennarar með tilteknar skyldur um endur- menntun og tilraunakennslu. Há- skólarnir, STÍL og stéttarfélög kennara þurfa að vinna náið saman að framgangi þessa máls. 4) Kennaraháskólinn þarf að sinna menntun fagkennara betur. Það verður aðeins gert með því að gefa faginu aukið vægi. Huga þarf að dýpt ekki síður en breidd í menntun grunnskóla- kennara. Einnig þarf að auka hlut kennslufræði tungumála og væri t.d. hugsanlegt að samnýta einingar í báðum tungumálum. Gera verður þá kröfu að vænt- anlegur grunnskólakennari í tungumálum hafi dvalist hluta námstímans erlendis. 5) Efla þarf mjög rannsóknir á tungumálanámi, máltöku og öðr- um skyldum þáttum. Miklar vonir eru bundnar við stofnun í erlen- dum málum um að hafa forystu á því sviði. Auka þarf einnig rannsóknir á kennsluháttum í tungumálum og á starfi tungu- málakennarans. Hér gæti verið kjörið samvinnuverkefni milli Háskóla íslands og Kennarahá- skóla íslands. Hugum aftur að upphafsspurn- ingum mínum um fagmennsku tungumálakennarans. Niðurstöð- ur þeirra vangaveltna eru að fag- mennska tungumálakennarans sé sérfræðiþekking sem sé í megin- dráttum fjórþætt: Færni eða leikni í að beita tungumálinu í ræðu og riti. Þekking og skilningur á men- ningu þeirra þjóða sem tala málið. Vitneskja og færni í að tala um tungumálið. Þekking og leikni í hvernig best sé að miðla málinu til annarra. Slík þekking verður aðeins byggð upp með samvinnu margra aðila, og markvissri nám- stilhögun sem grundvallast á traustum rannsóknum á tungu- málanámi og kennslu. Hafdís Ingvarsdóttir kennir kennslufræði erlendra mála við H.í. Heimildir: 1 Sjá t.d. Hopkins D., and Reid K. (1985) Rethinking Teacher Educa- ion. Croom Helm. 2 Sjá t.d. Bernhardt E.B. Hammadou J. (1987) A Decade of Research in For- eign Language Teacher Education. Modern Language Journal :71. 3 Sjá t.d. Brown H.D. (1980) Principles of Language Learning and Teaching. Prentice Hall Inc. 4 Kennslufræði er hér notað í víð- tækustu merkingu og tekur því einn- ig til þekkingar kennara á nemend- um. 5 Sbr. lög nr. 48/1986, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn- skólakennara, framhaldsskólakenn- ara og skólastjóra. 6 Ágúst Einarsson (1994). Tungumál í breyttum heimi. Flutt á ráðstefnu 9. apríl í Rúgbrauðsgerðinni. Alda Möll- er (1993). Fiskurinn, viljinn og skiln- ingurinn. Málfríður 1. tbl. 9. árg. 7 Hafdís Ingvarsdóttir (1993). Langu- age Teachers under Construction. Handrit. 8 Lortie D.C. (1975) School Teacher. A Sociological Study. UCP. 9 Hafdís Ingvarsdóttir (1993). Langu- age Teachers under Construction. Handrit. 10 Sjá t.d. Feiman-Nemser S., Buch- mann M. (1987) Teaching and Teach- er Education, Vol. 3 No 4. Hollings- worth S. (1988) making Field-Based Programs Work. Journal of Teacher Education Vol. 34 No 4. 11 Sjá t.d. Reynolds A. (1992) What is Competent Beginning Teaching. Review of Educational Research, Vol. 62 No. 1 12 Sjá t.d. Wallace M.J. Training For- eign Language Teachers. CUP. 7

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.