Málfríður - 15.12.1994, Qupperneq 10

Málfríður - 15.12.1994, Qupperneq 10
eða töluvert meira en nam öllum fjárlögum ríkisins. Ef hægt er að bæta þetta, t.d. með hærra verði vegna þess að við þekkjum markaðssvæðið betur, þá er hægt að hækka þessa tölu á skjótan hátt. Við fluttum inn vör- ur og þjónustu fyrir álíka fjár- hæð. Við gætum e.t.v. með betri þekkingu náð hagkvæmari inn- kaupum. 1% af inn- og útflutningi eru 2,8 milljarðar á ári en það kostar 1,9 milljarða að reka Háskóla íslands ár hvert. Þannig eru einfaldlega miklir hagsmunir fólgnir í því að efla tungumála- kennslu á íslandi. Menntakerfið er gott hér og hundruð íslendinga starfa er- lendis hjá fyrirtækjum og stofn- unum. Það er vaxandi þörf hjá fjölmörgum alþjóðlegum stofn- unum að hafa vel menntað starfsfólk í sinni þjónustu, m.a. á sviði tungumála. Við eigum mikla möguleika á að mennta erlent fólk til starfa á sérsviðum okkar eins og í sjávarútvegi, en til þess að geta gert það að gagni verðum við að vita meira um menningu og tungumál ann- arra þjóða. Samvinna milli vís- indagreina er vaxandi í heim- inum. Þannig eru tæknifræði, viðskiptafræði og tungumál í víðum skilningi þessa orðs nátengd og verða hluti af sam- keppnisskilyrðum einstakra þjóða. Ef það er rétt að tungumál skipta sköpum í viðskiptum framtíðarinnar og þessi viðskipti margfaldast á næstu áratugum og verða undirstaða fyrir lífskjör þjóðanna í kringum okkur, þá verðum við að taka þátt í þessu af myndarbrag. Af hverju ekki að fjárfesta í hagkvæmari menntun? Það er varla til nokkur náms- grein eða vísindagrein sem er meira lifandi en tungumál. Aukin tungumálakennsla er einfaldlega aðgöngumiði að bættum lífs- kjörum framtíðarinnar. Málið er ekki flóknara en það. Ágúst Einarsson, prófessor við viðskiptadeild H.í. Þór Vigfússon: STAÐA OG FRAMTÍÐ TUNGUMÁLAKENNSLU Á ÍSLANDI Erindi flutt á ráðstefnunni 9. apríl 1994 Forseti vor, virðulegi ráð- herra, góðir hálsar. Mikinn heiður ber að mínum garði af hálfu frumkvöðla þess- arar samkundu að láta mig standa hér með leyfi til að tala um framtíðina og það í tengslum við mannskepnunnar kórónu, sjálft tungumálið. Heillandi er framtíðin í sjálfu sér og fátt um hana vitað, þannig að segja má það sem manni sýnist og verður þó ekki hrakið. „Þa alveg sama hvernig mað- ur segja, bara það skiljast", sagði maður einn, mér kunn- ugur, einhverju sinni, þegar talið á hans vinnustað barst að réttu eða röngu máli. Þessi maður naut almennrar virðingar, vegna fagkunnáttu sinnar og félags- anda, gæfuríks fjölskyldulífs og víðtæks velfarnaðar. Málhelti hans, sem fólst í því, að honum var lífsins ómögulegt að hnoða orðum í mismunandi föll eða tíðir, dró honum nokkurn að- hlátur lengi vel fyrst. En menn gleymdu þessari helti eftir sem mannkostir hans birtust betur. Það kom enda í ljós, að hollt var að taka mark á framlagi hans til umræðunnar, því að þetta var vitur maður. Og honum skeikaði ekki um málvísindin, fremur en endra- nær. Ekki þarf mikla málfræði til að gera sig skiljanlegan. Iðulega þarf ekkert að segja til að sinna þurftum sínum. Svo er fyrir að þakka hinni praktísku staðal- hönnun nútíma samfélags: Hvar sem ég þvælist um á hinum iðnvæddu Vesturlöndum fer ég í Vöruhús KÁ á Selfossi til þess að kaupa í matinn. Það vöruhús er alls staðar. Hillurnar sýna mér hvað ég vil, kassavélin sýnir mér hvað fjár ég skal inna af hendi. Ég þarf ekki að hlusta á eitt orð, þarf ekkert að segja sjálfur. Enda missi ég jafnan máls og heyrnar í slíkum búðum. Og það er í sam- ræmi við tíðarandann, því að samtöl eru nánast aflögð við þá viðskiptaathöfn sem þarna fer fram. 10

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.