Málfríður - 15.12.1994, Qupperneq 28
Bókarkynning:
Tungumálakennsla í
tækni- og starfsnámi
Á árinu 1993 kom út bókin
“Sproget pá arbejde - Om und-
ervisning i teknisk fremmed-
sprog“ hjá Erhvervsskolernes
Forlag í Danmörku. Höfundar
bókarinnar eru Karen Sonne
Jakobsen, lektor í kennslufræði
erlendra mála við Hróarskeldu-
háskóla, og Michael Svendsen
Pedersen, sem kennt hefur
ensku í iðn- og tækniskólum.
Eins og titill bókarinnar gefur
til kynna fjallar hún um kennslu
erlendra mála í starfs- og tækni-
námi og er sú fyrsta sinnar teg-
undar þar í landi. í inngangi bók-
arinnar er skýrt frá því að mála-
kennsla í starfstengdu námi hafi
víða tekið miklum stakkaskipt-
um í Danmörku á undanförnum
árum. Bent er á að stöðugt fleiri
þurfi á sérhæfðri kunnáttu í er-
lendum málum að halda bæði
vegna starfs og náms. Breyttar
þarfir kalli á nýja kennsluhætti
og málakennarinn verði að við-
hafa önnur vinnubrögð og
kennsluaðferðir en áður hafa
tíðkast. Nemendur þurfi hvort
tveggja í senn að verða færir um
að nota málið til tjáskipta og til
að sinna atvinnu sinni, sem oft
og tíðum krefst allmikillar sér-
hæfingar, ekki síst hvað varðar
sértækan orðaforða.
Efni bókarinnar tengist m.a.
rannsókn á starfsmiðaðri mála-
kennslu í iðn- og tækniskólum,
sem höfundar unnu að á árunum
1988-90. Markmiðið með útgáfu
bókarinnar er að miðla mála-
kennurum af þeirri reynslu sem
höfundar öfluðu sér við rann-
sóknina og kynna hugmyndir og
aðferðir, sem gætu orðið til að
bæta málakennslu á þessu sviði.
Bókin skiptist í 6 kafla auk inn-
gangs og er innihald hennar
bæði hagnýtt og fræðilegt. Höf-
undar gera sér far um að kynna
efnið á aðgengilegan hátt, m.a.
með því að taka dæmi úr
kennslu, sem varpa ljósi á að-
ferðir og efnistök.
Ekki þarf að fjölyrða um að
efni bókarinnar á erindi til ís-
lenskra málakennara, enda lítil
umræða farið fram hérlendis um
þetta efni.
Auður Hauksdóttir.
O Þýska bókasafnið
Goethe Institut
Tryggvagötu 26 101 Reykjavík
Sími 91-16061
Stærsta safn þýskra bóka á Islandi
Menningarmiðstöð Sambandslýðveldisins Þýskalands
Myndbönd, tónbönd, kennsluefni fyrir þýskukennslu
Dagblöð og tímarit
Safnið er öllum opið og útlán endurgjaldslaus
Opið mánudaga til fimmtudaga frá 14.00-18.00
28