Málfríður - 15.12.1994, Síða 31
Elísabet Magnúsdóttir formað-
ur,
Sigríður Ragnarsdóttir gjald-
keri,
Unnur María Figved ritari,
Eva Jónasson, Matthías Frí-
mannsson og Ragnhildur Páls-
dóttir.
Frá því síðasta tölublað Mál-
fríðar kom út er þetta helst að
frétta af starfi félagsins: I ágúst
var haldið tveggja daga nám-
skeið þar sem kynnt var tölvu-
forritið TEXTBAUMEISTER og
námsefni fyrir það, samið af
þýskukennurum. Um 20 kenn-
arar tóku þátt í námskeiðinu.
Fagráðgjafinn dr. Ulrich Frost
frá Goethestofnun í Stokkhólmi
dvaldist hér fáeina daga í sept-
ember, heimsótti skóla og miðl-
aði bæði nemendum og kenn-
urum af þekkingu sinni. Styrkir til
kennara á sumarnámskeið 1995
verða að venju fimm; tveir frá
Goethestofnun og þrír til Lúbeck
frá Deutsche Auslandsgesellschaft.
Nefnd sem vinnur að námskrá
í þýsku, lauk á síðastliðnu vori 1.
verkefni námskrárinnar, þ.e.
könnun á þýskukennslu í fram-
haldsskólum.
Önnur nefnd hefur verið
ráðin til undirbúningsstarfa fyrir
„Þýskuþraut" á vori komanda,
en keppni sú er nú að verða
árviss viðburður. Þeir tveir nem-
endur, sem urðu hlutskarpastir í
síðastliðnum vetri, dvöldust
mánaðartíma í þýskalandi í sum-
ar. Þeir létu mjög vel af dvölinni
og má það vera hvatning til
nemenda að taka þátt í „Þýsku-
þraut".
Unnur M. Figved.
Frá félagi
frönskukennara
Félag Frönskukennara er 20
ára á þessu ári og af því tilefni
hélt félagið upp á það með sam-
eiginlegri skemmtidagskrá og
hátíðarkvöldverði þann 19. nóv-
ember s.l. að Hótel Borg þar
sem forseti íslands Vigdís Finn-
bogadóttir var gerð að heiðurs-
félaga. En Vigdís er menntuð í
frönskum leikbókmenntum og
stundaði m.a. frönskukennslu
áður en hún varð forseti, og sem
slík stóð hún fyrir ýmsum
nýjungum í kennslu s.s. frönsku-
kennslu í sjónvarpi. Vigdís hefur
verið ötull talsmaður frönsku-
kennslu og einnig einn af stuðn-
ingsmönnum og málsvörum
fransk-íslenskrar orðabókar. Orða-
bókin er unnin í samvinnu við
félag frönskukennara og íslenska
og franska ríkið. Stefnt er að
vinna við hana ljúki næsta vor.
Afmælishátíðin tókst mjög vel
og var skemmtidagskránni sem
samanstóð af stuttum leikþátt-
um ákaft fagnað. f framhaldi af
þessum hátíðarhöldum stendur
til að félagið ásamt Háskólabíói
og Franska sendiráðinu muni
standa fyrir sýningu á franskri
kvikmynd á næstunni. Félagið
hyggst síðan gangast fyrir rit-
gerðarsamkeppni meðal fram-
haldsskólanemenda um franskar
kvikmyndir í tilefni 100 ára af-
mælis kvikmyndalistarinnar á
næsta ári, skýrt verður frá því
síðar. Af öðrum fyrirhuguðum
störfum félagsins er námskeiða-
haldi í samvinnu við Montpellier
háskólann í undirbúningi.
Petrína Rós Karlsdóttir.
Frá félagi dönskukennara
Dagana 8.-12. mars verður
haldið samnorrænt námskeið fyr-
ir grunnskólakennara að Flúðum.
Námskeiðið verður tvískipt þ.e.
fyrir móðurmálskennara annars
vegar og kennara sem kenna norð-
urlandamál sem erlent tungumál
hins vegar.
Á námskeiðinu fyrir tungu-
málakennarana verður fjallað
um skriflega færni og verður fyr-
irlesarinn Inge Lykkegaard frá
Danmörku. Einnig verður tekið
fyrir munnleg próf og verður fyr-
irlesarinn frá Finnlandi.
Hjá móðurmálskennurunum
verður tekin fyrir bókmennta-
kennsla. Einn fyrirlestur verður
sameiginlegur fyrir báða hópa.
Námskeiðið er styrkt af Norr-
ænu ráðherranefndinni og kost-
ar aðeins 640 dkr. (allt innifalið).
Kennurum er bent á að sækja
um styrki hjá Kennarasamband-
inu og HÍk.
Umsóknarfrestur er til 15. des-
ember.
Þátttaka tilkynnist hjá Ernu
Jessen í síma 876747.
Hún veitir einnig allar nánari
upplýsingar.
NORRÆNA HÚSIÐ
menningarmiðstöð við Sæmundargötu
f bókasafninu eru lánaðar út bækur, tímarit, plötur, myndbönd og
grafíkmyndir frá öllum Norðurlöndunum. Lestraraðstaða.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 13-19, sunnudaga kl. 14-17.
í kaffistofunni er heitt á könnunni allan daginn. Heimabakaðar kökur,
heitir og kaldir réttir.
Opið virka daga kl. 9-17, laugardaga kl. 9-19, sunnudaga kl. 12-19.
í anddyri og sýningarsölum eru sýningar á norrænni list og listiðnaði
m.a.
Sýningarsalur opinn alla daga kl. 14-19.
Við tökum á móti hópum sem vilja kynnast starfsemi hússins og
norrænni samvinnu.
Norrænn skólaráðgjafi sér um
tengsl við skóla innanlands og
annars staðar á Norðurlöndum.
Verið velkomin í
NORRÆNA HÚSIÐ
31