Málfríður - 15.12.1994, Qupperneq 32
Nýjar bækur til tungumálakennslu 4*
Panorama
Kennsluefni fyrir framhaldsskóla eftir Hafdísi Ingvars-
dóttur og Kirsten Friðriksdóttur. Bókinni er ætlað að
þjálfa bæði talmál og ritmál. Fjölbreytt verkefni, mismun-
andi að lengd og þyngd, fylgja hverjum kafla.
♦ A propos 2
Lesbók og Vinnubók
Fyrri hluti þessa kennsluverks hlaut sérlega góðar viðtök-
ur. Hér er haldið áfram þar sem hinum sleppir og er þessi
hluti ætlaður 3. og 4. áfanga frönskunámsins. Jórunn
Tómasdóttir sá um íslenskun verksins.
♦ Whodunnit?
Safn af enskum og amerískum sakamálasögum eftir
helstu höfunda greinarinnar. Orðskýringar, verkefni og
ítarefni fylgir. Elísabet Gunnarsdóttir sá um íslensku út-
gáfuna.
Caminos
Alcorazón
Þetta eru textasöfn á spænsku sem geyma smásögur,
goðsögur, ljóð og aðra smátexta sem eru vel fallnir til
kennslu í fyrstu fjórum spænskuáföngunum. íslenskar
orðskýringar fylgja. Guðrún Jóhannsdóttir og Sigríður
Ragnarsdóttir sáu um Caminos sem hentar tveimur fyrri
áföngunum, og Guðrún Tulinius og Ida Semey önnuðust
útgáfu Al corazón.
♦ Faktor Fúnf
Þetta eru fjórar léttlestrarbækur í þýsku sem taka á brenn-
andi málefnum og höfða til ungs fólks: Das Lager e.
Robert Habeck, Die Liebe Familie e. Kirsten Boie, Anni-
kas Geschichte e. Karin Gúndisch og Gropstadtkúnstler
e. Gudrun Giese.
♦ Málfrœðilyklar
Franskur málfræðilykill.
Jórunn Tómasdóttir íslenskaði.
Enskur málfræðilykill.
Elísabet Gunnarsdóttir íslenskaði.
Þýskur málfræðilykill.
Eygló Eyjólfsdóttir íslenskaði.
Hér er grundvallaratriðum í málfræði þjappað saman eins
og kostur er og útkoman er afar handhæg hjálpargögn.
Dönsk-íslensk skólaorðabók
Hér er á ferðinni stytt útgáfa af Dansk-íslenskrí orðabók
sem kom út 1992. Bókin geymir um 30.000 uppflettiorð.
Halldóra Jónsdóttir hafði umsjón með skólaorðabókinm.