Málfríður - 15.05.1998, Qupperneq 10

Málfríður - 15.05.1998, Qupperneq 10
til baka til tungumálsins. Ein uppfinning leiðir til annarrar og síðan hefur það áhrif á menn- inguna, sem leiðir til breytinga á tungumálinu og svo koll af kolli. Hvernig menningin hefur svo haft áhrif á þróun mannsins get- um við séð á dæmigerðri mynd sem víða sást á tímabili og sum- ir muna kannski enn, þar sem loðinn api breytist stig af stigi í frummanninn og svo í uppréttan mann eins og við erum í dag. Á þennan hátt er einnig hægt að færa rök fyrir því, að þróun mannsins hafi tekið breytingum og að nú sé andlegur þroski nútímamannsins allt annar en á tímum hins munnlega menning- ararfs. Færni heilans í bók sinni „The Educated Mind“, fjallar Egan að miklum hluta um þá vitsmunalegu færni heilans sem hann vill meina að sé grundvöllurinn fyrir gáfum mannsins og ekki síst að þessi færni nýtist honum við að læra mál. Færni þessi eða skilnings- form verður til í heilanum fyrir áhrif uppeldis í því samfélagi, sem við ölumst upp í. Aðalhvöt- in er þó ímyndunaraflið. Hér er átt við t.d. lestrarfærni, hlutlæga hugsun, og þegar málfærnin verður mest, kaldhæðni (ironi). Þessi kenning kemur heim og saman við kenningu rússneska sálfræðingsins Vygotsky, sem flestir tungumálakennarar þekkja til, en þar kemur fram að til að greina vitsmunalega þróun gæti maður ekki notað vísindalegt sjónarhorn sem einblíndi á flokkun og fjölda og ekki heldur sálfræðilegt sjónarhorn þar sem horft væri eingöngu á sálræna starfsemi í þróunarferli manns- ins. Heldur, eins og Egan segir einnig, að vitsmunaþroskinn sé rétt eins og tungumálið, þ.e. við lærum það jafnhliða því að vaxa upp í samfélaginu sem miðlar okkur ákveðnum skilningi, sem við svo umbreytum og þróum áfram sem einstaklingar um leið og við siðmenntumst. Við nánari skoðun á því hvernig við notum þessa færni heilans við að læra að nota tungumálið, gæti maður fyrst hugsað sér goðsögulegan (mytisk) skilning, sem er grunnur þess að barnið skilji heiminn, síðan tæki við rómantískur (rom- antisk) skilningur, þar sem þró- aðist lestrarfærni, svo kæmi heimspekilegur (filosofisk) skiln- ingur, sem gerir einstaklinginn hæfan til samfélags sem notar afstæð hugtök. Að lokum er það svo kaldhæðnislegur (ironisk) skilningur, sem leiðir til skiln- ings á tvíræðninni í eigin tungu. Það sem virkar síðan sem aðal- hvötin á alla aðra þætti þrosk- ans er ímyndunaraflið en þetta hugtak er í raun jafnerfitt að útskýra og hugtakið þroski eða þróun. ímyndunaraflið gefur okk- ur hæfileikann til að hugsa um hluti sem geta orðið, þó þeir hafi aldrei gerst, eins og t.d. að hugsa sér manneskjur sem gætu flogið en það hlýtur að hafa verið mjög óraunverulegt áður en menn öðluðust hæfileika til að gera sér tæki til að fljúga með. Því skyldi þá þáttur ímyndun- araflsins og allra hinna skiln- ingsforma heilans hafa verið svo lítils metnir í sögu siðmenning- arinnar? Bæði í grískum og hebreskum sögum segir að það trufli samband mannanna við guðina og Plato mun einnig hafa fundist þessir þættir vera frekar lítilsverðir. Það er fyrst á 18. öld að heimspekingarnir Kant og Hume telja að ímyndunaraflið spili stórt hlutverk í hæfni okkar til að fá samhengi í sýn okkar á heiminn. Fyrrnefndur Piaget ein- blínir heldur ekki bara á það röklega í rannsókn sinni á börn- um heldur skoðar líka leiki þeirra og drauma, þ.e. ímyndun- araflið. Nútímamaðurinn gerir sér sífellt betur grein fyrir því hversu mikill hvati ímyndunar- aflið er í þróun menningar, þar sem það gefur okkur hugmyndir um hvað er mögulegt og virkar síðan hvetjandi fyrir langanir, vonir og ótta og hvetur einnig til uppfinninga og uppgötvana. (Egan 1997) Við getum kannski ekki vænst þess að ímyndunar- aflið fái jafnræði á við rökhyggj- una en þetta hugtak skipar samt stærri sess í okkar samfélagi en fyrr og er mjög mikilsvert til athugunar fyrir kennara, sér- staklega þá tungumálakennara. Breyttir einstaklingar Það er of mikið sagt að skól- inn í dag sé hataður en þar ríkir óendanlegur leiði. (Ziehe 1996) í sama streng tekur Per S. Jprgen- sen sem ritaði grein sem heitir „Skal skolen rives ned?“. Þar er vitnað í hollenska rannsókn sem gerð var á börnum í 9. bekk, á áhuga þeirra á að ganga í skóla. Aðeins um 20% þeirra segja að skólalífið sé gott, þannig að um 80% nemenda eru ekki ánægðir í skóla þar af voru um 15% þeirra verulega óánægðir með skóla- lífið. Við vitum reyndar að rann- sóknir hafa sínar takmarkanir og tökum við því tillit til þess en ég leyfi mér að ætla að svipaðar tölur fengjust hér á landi við nánari athugun. Við leitum auð- vitað skýringa víða á þessu en kannski er einmitt skýringanna að leita í siðmenningu og félags- mótun okkar og hvernig per- sónuleiki mannsins hefur þróast eins og talað er um hér að framan. Ef við gefum okkur þær for- sendur að það ríki svipuð félags- mótun í Evrópu og hér á landi þá er hún enn líkari innan Skandinavíu en oft verðum við að leita fanga hjá þessum nær- liggjandi þjóðum, í rannsóknir þeirra og athuganir. Hjá Jprgen- sen og Ziehe er fjallað um breyttan persónuleika m.a. hjá börnum og unglingum sem nú- tímaþjóðfélagið elur af sér. Ziehe segir að við upplifum „sjálf“ okkar sem sífellt meiri raunveru- leika. Þetta sér maður m.a. í breyttum samskiptaformum ung- 10

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.