Málfríður - 15.05.1998, Síða 15
Wincie Jóhannsdóttir:
International Baccalaureate
Alþjóðleg námsbraut f MH
í janúar 1996 kom Monica
Flodman nokkur, fulltrúi IBO-sam-
takanna International Baccalau-
reate Organisation (IBO), í heim-
sókn til íslands. Tilgangurinn
var að kynna IBO-samtökin fyrir
skólafólki á íslandi, sem eitt
Vestur-Evrópulanda hafði engan
IB-skóla. Starfsmenn mennta-
málaráðuneytisins báðu MH að
taka á móti Monicu og leyfa
henni að vera með kynningu
fyrir okkar kennara og af kurt-
eisis sökum urðum við við þeirri
beiðni. Ekki gerðum við ráð fyrir
miklum áhuga, enda allir mjög
uppteknir við upphaf kennslu og
óljóst hvað væri eiginlega um að
ræða eða hví það ætti að höfða
til okkar í MH.
Nú, tveimur árum seinna, er
MH orðinn IB-skóli með 24 IB-
nemendur, 16 IB-kennara og sér-
staka fjárveitingu vegna IB-
námsins, sem er skilgreind í
starfssamningi skólans og mennta-
málaráðuneytisins. Nemendurn-
ir nota þennan fyrsta vetur sinn
í framhaldsskóla til að búa sig
undir að takast á við krefjandi
tveggja ára nám í 7-8 greinum
þar sem námsbækur, kennsla og
vinna nemenda verður mest-
megnis á ensku. Nokkrir kennar-
anna hafa þegar farið á viku-
langt námskeið í IB-kennslu í
sinni grein, aðrir munu fara á
komandi sumri. Allir IB-kenn-
arar vinna nú baki brotnu við að
velja námsbækur og skipuleggja
tveggja ára nám í sínum grein-
um. Stjórnendur og kennarar
sitja með sveittan skallann að
reyna að skilgreina IB-námið í
samhengi við áfanga sem kennd-
ir eru til stúdentsprófs í MH.
Námsráðgjafar hafa bætt IB-
námi við í sínum kynningum
fyrir 10. bekkinga. Hvað er eigin-
lega á seyði?
Hvað er IB-nám?
International Baccalaureate
Organisation (IBO) eru alþjóða-
samtök skóla. I fyrstu var ein-
ungis um framhaldsskóla að
ræða en á síðari árum hafa skól-
ar á grunnskólastigi einnig haft
möguleika á IB-námsbrautum.
Aðildarskólar IBO á framhalds-
skólastigi eru um 740 í yfir 90
þjóðlöndum og bjóða þeir nem-
endum sérstaka tveggja ára
námsbraut sem er undirbúning-
ur undir háskólanám. IB-námið
hefst oftast eftir eins árs nám á
framhaldsskólastigi og lýkur að
jafnaði tveimur árum seinna
með samræmdu IB-prófi, IB Dip-
loma, sem er viðurkennt af há-
skólum um allan heim. Einnig
býðst nemendum að stunda IB-
nám í stökum greinum og öðlast
þá 1B Certificate í viðkomandi
grein að loknu samræmdu prófi.
Markmið IB-samtakanna, sem
voru stofnuð á 7. áratugnum af
nokkrum alþjóðlegum skólum,
var upphaflega tvíþætt:
• að samræma skólakerfi til að
gera börnum sendiráðsmanna
og annarra, sem þurfa að
flytjast á milli landa, kleift að
fylgja samræmdri námsbraut.
• að þróa námskrá og kennslu-
aðferðir sem gerðu miklar
kröfur til nemenda og stuðl-
uðu jafnframt að skilningi
milli þjóða og aukinni ábyrgð
einstaklinga.
Með árunum hafa sífellt fleiri
ríkis- og einkaskólar sótt um
aðild að IBO vegna þessarar
hugmyndafræði og strangra
námskrafna þótt nemendur
þeirra tilheyri fæstir þeim hópi
sem flyst milli landa.
Menntunarstefna IBO endur-
speglast í námskrá og kröfum
um kennsluaðferðir. Lögð er
áhersla á að nemendur læri að
tengja námið umheiminum og
verði þannig upplýstir og ábyrg-
ir þátttakendur í samfélagi síns
heimalands og heimsins alls,
meðvitaðir um það sem mann-
kynið á sameiginlegt um leið og
þeir bera fulla virðingu fyrir
margvíslegri menningu og ólík-
um viðhorfum. Skólar skulu hlúa
að sérstökum hæfileikum ein-
staklinga, þjálfa gagnrýna og
sjálfstæða hugsun og búa nem-
endur undir að halda áfram að
læra ævilangt. Lykilatriði í að ná
þessum markmiðum eru sér-
stakir námsþættir eins og nám-
skeið í þekkingarfræði og sú
krafa að nemendur stundi sköp-
un, líkamsþjálfun og starf í þágu
annarra (SLS) og vinni úr
reynslu sinni undir handleiðslu
kennara. Auk þess auðvelda IBO-
samtökin samstarf og upplýs-
ingamiðlun milli nemenda, kenn-
ara og skóla víða um heim.
Gerðar eru miklar kröfur til skól-
anna og nemenda, bæði í hefð-
bundnum námsgreinum og í
þeim námsþáttum sem sérstak-
lega einkenna IB-nám.
IB-nám / íslenskt
stúdentspróf
IB-nám í MH er strangt bók-
legt nám, undirbúningur frekara
náms. Það er ólíkt venjulegu,
íslensku stúdentsprófsnámi í
nokkrum atriðum:
• IB-prófi er lokið eftir samtals
þrjú ár í framhaldsskóla í stað
fjögurra.
• Nemendur velja aðeins 6 hefð-
bundnar námsgreinar til IB-
prófs.
• Nemendur ljúka einnig rann-
sóknarritgerð og námskeiði í
þekkingarfræði auk þess að
stunda sköpun, líkamsþjálfun
og störf í þágu annarra (SLS)
og vinna úr þeirri reynslu
15