Málfríður - 15.05.1998, Blaðsíða 17
Fyrir hverja er IB-nám?
Fyrstu IB-nemendur í MH
hófu undirbúningsár haustið
1997. Haustið 1998 mun hið
eiginlega IB-nám hefjast og
fyrstu IB-lokapróf verða í maí
árið 2000. Þótt endanleg stað-
festing á aðild MH að IBO hafi
ekki komið fyrr en í maí þannig
að tími til kynningar var naum-
ur, sóttu fleiri um að skrá sig í
IB-nám en skólinn gat tekið við.
í hópnum núna eru 24 nem-
endur. Af þeim eru 14 „venju-
legir" nemendur sem hafa
stundað nám í íslenskum grunn-
skólum, 9 eru íslenskir en hafa
dvalið langdvölum erlendis og
einn er nýbúi sem flutti hingað
með fjölskyldu sinni í ágúst
1997. Móðurmálsskyldu munu
14 nemendur uppfylla með
íslensku, 7 með ensku, tveir
með þýsku og einn með sænsku.
Haustið 1998 kemur til okkar
norskur strákur sem á ættir að
rekja til íslands. Hann ætlar að
ljúka IB-prófi í sínum heima-
skóla en langar að vera eitt ár á
íslandi til að kynnast rótum
sínum.
Við val á IB-nemendum er
litið til þess hvort nemandinn
og IB-námið eru líkleg til að eiga
vel saman. Vinnuálagið er mikið,
nemendur verða að vita hvaða
sex greinar (aðeins) þeir vilja
stunda og IB-námið gerir kröfur
á fleiri sviðum en hefðbundið
bóknám. Námið hentar sérstak-
lega vel þeim sem:
• hafa einlægan vilja til að
stunda nám af kappi,
• hafa tileinkað sér góðar náms-
venjur,
• hafa gott vald á ensku miðað
við jafnaldra sína,
• hafa góða námsgetu. Áhugi,
félagsþroski, mótuð framtíð-
aráform og skilvirkt vinnulag
eru þó ekki síður mikilvæg en
góðar einkunnir.
Nemendur, sem sækja um
þurfa ekki einungis að skila ein-
kunnum úr grunnskóla heldur
einnig umsögn kennara, auk
þess, að koma í viðtal, einir eða
með forráðamönnum.
Hví höfðar IB-nám
til okkar í MH?
IB-nám er nýr kostur. Ýmsir
hópar unglinga hafa ekki átt
marga valkosti á framhalds-
skólastigi hingað til. Má þar
sérstaklega nefna tvo hópa:
Annars vegar eru íslenskir
unglingar sem vegna langdvala
erlendis eiga í miklu basli með
að skrifa sitt móðurmál þótt
þeir séu ágætlega læsir og tal-
andi. Líklega þekkja allir kenn-
arar á framhaldsskólastigi dæmi
um ágætis námsmenn sem koma
fyrst í íslenskan skóla sem ung-
lingar, ná ekki þeirri ritfærni í
íslensku sem krafist er til stú-
dentsprófs (þrátt fyrir mikinn
dugnað á stundum) og hrökklast
úr skóla jafnvel eftir að hafa
uppfyllt öll önnur skilyrði. IB-
námið gefur slíkum nemendum
kost á að ljúka undirbúningi
undir háskólanám hér heima og
styrkja þannig sjálfsmynd þeirra
sem íslendinga. Margir af IB-
nemendum okkar úr þessum
hópi velja áfanga í íslenskum
bókmenntum meðfram IB-námi
sínu einmitt í þessum tilgangi.
Hins vegar eru þeir sem eiga
hvað best með að læra. Vissu-
lega gefa áfangaskólar mögu-
leika á að dýpka þekkingu á
völdum sviðum og hraða námi.
Skólarnir eru aftur á móti ekki
nógu stórir til að hægt sé að
halda úti mörgum valáföngum
eða hraðferðum á efri stigum.
IB-námið krefst mikillar dýpkun-
ar í a.m.k. þrem greinum og á
tveimur árum er umfang náms-
ins samkvæmt námskrá hverrar
greinar slíkt að segja má að um
hraðferðir sé að ræða. Með IB-
náminu gefst sterkum náms-
mönnum kostur á að Ijúka á
þremur árum námi sem undir-
býr þá undir háskólanám.
Nýbúar og börn sendiráðs-
manna eða erlendra kaupsýslu-
manna hafa hingað til orðið að
sækja framhaldsnám utan ís-
lenska skólakerfisins enda er
ekki algengt að erlendar fjöl-
skyldur, sem starfa tímabundið
hér, hafi unglinga sína hjá sér.
Þótt það takmarkist að vísu af
enskukunnáttu gefur IB-námið
fleirum kost á að hafa unglinga
sína á heimilinu, svo ekki sé
minnst á þjónustu við nýbúa.
Samanburður við það besta
sem gerist í framhaldsskólum
um heim allan teljum við til
tekna fyrir skólann allan. IBO
gefur út vandaðar námskrár í
öllum greinum þar sem ítarlega
er fjallað um markmið og inntak
námsins og æskilegar kennslu-
aðferðir. Skólanum er þó í sjálfs-
vald sett hvaða kennsluefni
hann velur til að ná markmiðum
námskrárinnar á sama hátt og
íslensk Námskrá handa fram-
haldsskólum skilgreinir markmið
en ekki kennsluefni. Einnig er
reiknað með að náttúrulegt og
menningarlegt umhverfi hvers
skóla hafi afgerandi áhrif á
námsefni og námstilhögun.
Þannig eru samræmdu prófin
miðuð við aðferðafræði greina,
ekki síður en grundvallarþekk-
ingu.
Námskrár IBO eru í stöðugri
endurskoðun þar sem m.a. er
leitað eftir gagnrýni og hug-
myndum allra IB-kennara í
greininni. Endurskoðuð nám-
skrá kemur út á fimm ára fresti.
IB-nemendur í MH sitja sam-
ræmd próf í námsefni sem við
höfum verið að kenna samhliða
og í samvinnu við okkar stúd-
entsprófsáfanga. Hátt í 30.000
nemendur þreyta þessi sam-
ræmdu próf. Með því fáum við
mælikvarða sem við getum bor-
ið okkur við á hverju ári. Það má
telja slíkan áframhaldandi sam-
anburð raunhæfari en könnun
sem gerð er einu sinni eða á
margra ára fresti.
17