Víðförli - 15.10.1992, Qupperneq 4

Víðförli - 15.10.1992, Qupperneq 4
Þjóðkirkja og þjóóarsól. Svipmyndir af Prestastefnu 1992 Þjóðkirkja og þjóðarsál” var yfirskrift prestastefnunnar 1992 sem var haldin í Neskirkju í Reykjavík. Flutt voru erindi utn fjöl- hyggjusamfélagið, hlutverk safnaðarins í samfélaginu, þjóðfélag og kirkju og nýjar starfsaðferðir við boðun kirkjunnar, aðferðir sem mótast af þjóðfélaginu en ekki eingöngu af boðskapnum. Fram kom að íslenskt samfélag einkennist af stvaxandi fjölbreytni hvað varðar líf- skoðanir og trúarhugmyndir. Það er því mikilvœgt fyrir kirkjuna að takast á við kirkjulegt starf og boðun í samfélagi sem í œ rtkari tnœli einkennist af fjöl- hyggju og afsteeðishyggju. í ályktun Prestastefnu 1992 kemur meðal annars fram að til þess að mæta þessum breyttu að stæðum verði aðefla safnaðarvitund innan kirkjunnar m.a. með markvissri skímarfræðslu sem nái til einstaklinga á öllum aldri. “Kirkjan vill efla sam- starf við stofanir samfélagsins. Hún vill styðja við bakið á fjölskyldunni í samfélagi nútímans, efla tengslin við grundvallarstofnanir þjóðfélagsins eins og skóla kerfí, heilbrigðisþjónustu, atvinnulíf og stjómsýslu og hafa áhrif, án þess að krefjast forræðis á þessum sviðum.’’ Lokaorð ályktunarinnar snúa að umræðu um kenningargrunn Þjóðkirkjunnar. Þar segir: Þjóðkirkjunni ber að vera opin en jafhffamt föst og ákveðin hvað varðar gmndvölf sinn. Hún verður að leyfa gagnrýna skoðun og umræðu um kenningu sína og boðun. Henni ber jafnframt að treysta rætur sínar og halda fast við játningu og leitast við með lífi sínu og tilbeiðslu að „vaxa upp til hans sem er höfuðið, Kristur." Séra Súpermann Umræður spunnust um hlutverk prestsins sem oft á erfítt með að standa undir þeint væntingum sem gerðar em til hans sem hálfgerðs “súpermanns" er ekki einasta sinnir kennimannlegu starfi heldur er alltaf í góðu skapi, flytur skemmtilegar tækifæris- ræður, er sérffæðingur í að fjármagna kirkju- byggingar, halda þeim við, halda þeim hreinum og jafnvel sjá um kirkjugarðinn. Eins og sjá má af svipmyndum voru menn hugsandi og niður- sokknir í umræður á prestastefhunni en þó ekki of djúpt þenkjandi til að kasta fram stöku kviðlingi: Sóknarprestsins skírn er skær hann skúrar eftir mætti. Kennimaður klár - og fær í kirkjugarðaslætti. Október 1 992 VÍÐFÖRLI 4

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.