Víðförli - 15.10.1992, Page 9

Víðförli - 15.10.1992, Page 9
Framhald af bls 8 starfsmaður ellimálaráðs Reykjavíkurprófasts- dæmis fyrir tveimur árum. Síðan hafa verið stofnaðir stuðningshópar fyrir þær konur sem vinna við heimsóknarþjónustu sem sjálfboðalið- ar og haldin námskeið. Starfsmenn öldrunar- þjónustu kirkjunnar, launaðir og sjálfboðaliðar, hittast hka mánaðarlega með Sigrúnu til að ræða starfið og fá stuðning við vinnu sína. “Það er nauðsynlegt að byggja starfsemina markvisst upp með menntuðum starfsmönnum,” segir Sigríður. “Mér fyndist kirkjan mín bregðast mér ef hún léti mig afskiptalausa þegar ég get ekki lengur borið rnig eftir því samfélagi sent hún býður.” STIKLHÐ fl STORU UM ELLIMRLflRHÐ þættir úr sögu Ellimálaráös Reykjavíkurprófastsdæma. Unnið upp úr samantekt Sigríðar Jóhannsdóttur, fv. formanns E.R. lhmálaráð Reykjavíkur hefur starfað í tíu ár. Tildrög stofn- unar voru þau að 1981 var öllum sóknarnefndum í Reykjavíkurprófasts- dæmum sent bréf og gert að tilnefna einn fulltrúa úr hverjum söfnuði í elhmálaráð. Ellimálaráð var síðan stofnað í janúar 1982 á ári aldraðra og naut þar áhuga og atorku þáverandi dómprófasts, sr. Ólafs Skúlasonar og Gísla Sigurbjörnssonar for- stjóra á Grund. Dómprófastur skipaði fyrstu stjórnina. í henni sátu Dómhildur Jónsdóttir frá Hallgrímssókn, Skúh Möller frá Árhæjarsókn og Sigríður Jóhannsdóttir frá Langholtssókn sem var vahn formaður. Áii síðar baðst Skúh lausnar og Áslaug Gísladóttir úr Bústaðasókn kom í hans stað. Þessar þrjár konur skipuðu stjórn Ellimála- ráðs en nú skipa fimm manns stjórn. GísU Sigurbjörnsson forstjóri á Grund gaf í upp- hafl fjárhæð til öldrunarstarfs og var það meðal annars nýtt til kennslu. í október 1982 var haldin fyrsta námsstefnan urn öldrun og safnað- arþjónustu í Reykjavíkurprófastsdæmi og sóttu hana um hundrað manns. í kjölfarið fylgdu fræðslufundir og fleiri námsstefnur þar. Fimm ára átak í öldrunarþjónustu f umræðum á fræðslufundum kom m.a. fram mikilvægi fræðslu - jafnvel skóla - fyrir þá sem sinna öldruðum, þörf fyrir launaðan starfsmann í hverjum söfnuði sem m.a. gæti skipulagt starf sjálfboðaliða og þörf á bilaþjónustu fyrir aldraða. Launuðum starfsmönnum sem sinntu öldrunar- starfi fór fjölgandi. 1984 samþykkti kirkjuþing að gera fimm ára átak í öldrunarþjónustu kirkjunnar. Öidrunar- starf fór sífellt vaxandi og er nú margþætt. Þar rná nefna guðsþjónustur, bænastundir, Biblíu- lestra, kirkjukaffi, matarfundi, snyrtiþjónustu, húsvitjanir, aðstoð við að komast í kirkju og að- hlynningu. Hjálpa öldruöum að rækta trúarlíf sitt Árið 1987 var gerð könnun meðal safnaða um það hvaða áherslur ættu að vera í starfi meðal aldraðra og voru sóknarnefndir beðnar að svara því hvað þær teldu brýnast. Flestir töldu brýn- ast fy'rir kirkjuna að stuðla að því að aldraðir gætu ræktoð trúarlíf sitt. Því bæri að vinna að með því að hjálpa öldruð- um við að komast í guðsþjónustu og með húsvitjunum. Annað meginmarkmið öldr- unarþjónustunnar er að aldraðir fái haldið fullri reisn. Að því skal stefnt með því að stuðla að andlegri og hkamlegri velferð aldraðra með samver- um og snyrtiþjón- ustu, nteð því að leita einangrað og gleymt fólk uppi og með því Glæsilegar konur í Gerðubergi að vera rödd þess til dæmis gagnvart stofnunum og opinberu kerfi. Þá var lögð áliersla á að leita samstarfs við þá aðila í samfélaginu sem veita öldruðum þjónustu. 1989 samþykkti Elhmálaráð að beina því til dómprófasts að ráðinn yrði leiðbeinandi fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða við öldrunarþjónustu safnaðanna. Verkefni leiðbeinanda yrði m.a.: Að standa fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk, senda út fréttabréf, vera ráðgefandi fyrir söfnuði og sókn- Rýnt í orðið amefndir, gera skrá yflr starfsfólk í kirkjulegri heimaþjónustu og síðast en ekki síst vinna að heildarmótun öldrunarþjónustu safnaðanna. Sigrún Gísladóttir hjúkrunarfræðingur var ráðin í þetta starf í september 1990.Hún hefur meðal annars staðið fyrir námskeiðum, fræðslufundum og samverum fyrir starfsfólk, launað og sjálf- boðaliða. Elflmálaráð er tíu ára í ár. Tugaafmæh marka ævinlega tímamót. Kirkjustarf aldraðra hefur vaxið og dafnað á þessum tíma. Þeir sem lagt hafa starflnu lið eru of margir til að hægt sé að telja þá hér en rétt er að nefna kvenfélög kirkn- anna sem unnið ltafa ómælt starf og halda víðast hvar uppi öldrunarstarfinu. Aðrir sjálfboðaliðar eru fjölmargir og án þeirra væri kirkjustarf aldr- aðra ekki svo ríkt sem það er. VÍÐFÖRLI Október 1 992 9

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.