Víðförli - 15.10.1992, Síða 11

Víðförli - 15.10.1992, Síða 11
LJÓSABURÐUR í KIRKJUM LEKAVARNIR Ljósaburður í kirkjura hefur færst mjög í vöxt á seinustu árum, ekki síst á aðventunni og kringum hátíðar, en líka við önnur tækifæri. Lifandi ljós skapa viðhafnar- og helgiblæ, en bráðið vax getur orðið til óþrifa og jafiivel valdið nokkrum skemmdum, ef illa tekst til. Trekkur veldur oft önint bruna, svo að bráðið vaxið vill renna og hafna á fötum, bekkjum og gólfum. Nær útilokað er að halda kerti svo beinu, að ekki halhst eitthvað í hendi svo af drjúpi. Vaxbletti er ekki auðvelt að ijarlægja, jafnvel ekki af steingólfum. Fyrirbyggjandi aðgerðir eru hér sem annars staðar raunhæfur kostur. Víðförli kynnir því tvo kosti sem nota má til að draga úr vaxlekanum. Báðar hugmyndimar gera ráð fyrir að notuð séu kerti af algengustu stærðum. VARANLEGA LAUSNIN Skálholtsstjakinn er hannaður af sr. Axel Árnasyni í Tröð, Gnúpverjahreppi, til að nota við ljósaburð í helgistundum á ferntingar- námskeiðum í Skálholti. Efiii: Ryðfrítt stál, lakkað í lit. Skaft: Rör þvermál:l,5, lengd:15 cnt. Þvermál skálar: 10 cm. Kónískur stjaki í skálinni: 3 cm. hár. Hentar vel fyrir kirkjur, þar sem ljósaburður er fastur liður í helgihaldinu. FLJÓTLEGA LAUSNIN Gosbrúsi (helst glær) skorinn urn axlir. Tappinn þarf að vera á, til að mynda botn stjakans. Hægt er að skorða kertið enn betur í stjakanum t.d. með „plíseruðum” álþynnum (fysmanchetter uppá dönsku) en þær fást í flestum blómaverslunum og víðar. Afgangurinn af brúsanum er eftir sem áður hæfur til endurvinnslu. Viltu semja barnaefni? Fallegt bænakver Yngribarnanefnd hefur ákveðið að láta frumsem- ja fræðsluefni fyrir næstu þrjú ár. Ætlunin er að það komi út á árunum 1993-1995. Yngribarnanefnd starfar á vegum Fræðslu- og þjónustudeildar kirkjunnar og vinnur að efnis- gerð fyrir fjögurra til tíu ára börn. Oskað er eftir starfskrafti til að vinna að gerð barnaefnis í nánu samstarfi við nefndina. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af ritstör- fum og kristilegu starfi. Nánari upplýsingar veita Ragnheiður Sverrisdóttir s. 621500 og Guðrún Ebba Ólafsdóttir s. 624080. Lítið fallega myndskreytt bænakver er komið út hjá Skálholtsútgáfunni. Sr. Karl Sigurbjörnsson tók saman efni í kverið. Kverið ber nafnið:„Bænirnar mínar.".ÞÍ þessari litlu bók er að finna morgunvers, kvöldvers og barnavers auk leiðbeininga um bænir og bæna- líf, til dæmis um fyrstu bænir barnsins og dag- lega bænagjörð. I bókarbyrjun segir m.a.: „Þetta kver er hjálp og hvatning til bænar og trúarlífs. Trúin býr í sér- hverri mannssál. En hana þarf að rækta og hana þarf að tjá. Foreldrar og uppalendur gegna þar ómissandi lykilhlutverki. Þessu kveri er ætlað að hjálpa þeim til að rækja það hlutverk og leggja grunn að bænalífi sínu og barna sinna." BÆNIRNAR « MÍNAR * 11 VÍÐFÖRLI Október 1 992

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.