Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Side 6

Skólavarðan - 2019, Side 6
6 SKÓLAVARÐAN VOR 2019 KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir Mennta- og menningarmálaráðu- neytið skipuleggur kynningar- verkefni nú á vordögum sem miðar að því að fjölga kennurum og auka umfjöllun um mennta- mál. Verkefni þetta er hugsað sem framhald af nýkynntum aðgerð- um mennta- og menningarmála- ráðherra um launað starfsnám og námsstyrki til nemenda á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi. Kynningin er unnin í nánu samráði við helstu hagsmuna- aðila á menntasviðinu, þar með talið Kennarasamband Íslands, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga. Vonast er til þess að verkefnið stuðli að aukinni meðvitund um mikilvægi kennarastarfsins og hlutverk kennara í samfélaginu. Þá er markmið kynningarinnar að umsóknum í kennaranám fjölgi nú í vor og á næstu árum. Til grundvallar kynningunni hefur ráðuneytið tekið saman staðreyndablað, í samvinnu við hagaðila, um störf kennara í leik- og grunnskólum og þær áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir á næstu árum. Þar verður meðal annars að finna upplýsingar um námsframboð, kjaramál, starfsmöguleika og fleira. Úr því efni verður jafn- framt gert stutt myndband sem dreift verður á samfélagsmiðla á næstu vikum og munu kennara- menntunarstofnanir einnig nýta sér efnið til að kynna námsleiðir sínar og áherslur í kennaranámi. Staðreyndablaðið og annað kynningarefni verður aðgengilegt á vefnum www.komduadkenna. is. Þá verða einnig skipulagðar reglulegar innkomur talsmanna í fjölmiðlum og skólum. „Við finnum mikinn meðbyr með menntamálum nú um stundir og viðbrögðin við aðgerðunum sem við kynntum í vetur hafa farið fram úr björtustu vonum. Þennan meðbyr viljum við nýta, ekki síst til þess að viðhalda umræðu um menntamál og kynna kennara- námið og kennarastarfið. Það er enda mikilvægasta starfið í okkar samfélagi því á sinn hátt leggja kennarar grunninn að fagmennsku og árangri annarra starfstétta,“ segir Lilja Alfreðs- dóttir mennta- og menningar- málaráðherra. Það er von ráðuneytisins að þetta verkefni geti orðið upphaf að frekara samstarfi meðal hags- munaaðila í menntamálum þar sem aðilar setji sér sameiginleg markmið og vinni að þeim með jákvæðni og áræðni. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur kennara og skólafólk til að leggja verkefninu lið. Það er til dæmis hægt að gera með því að deila efni um menntamál og/ eða senda ábendingar um fréttir og viðmælendur til ráðuneytisins (kristrun.heida.hauksdottir@ mrn.is) eða til Kennarasambands Íslands. Fjölgum kennurum Lilja Alfreðsdóttir mennamálaráðherra kynnir tillögur um hvernig fjölga megi kennurum í síðasta mánuði. Með hvernig fólki vilt þú starfa? XX Sem kennari hefur þú áhrif á skólastarf og kennara framtíðarinnar. XX Hvað einkennir góðan kennara? Ef þú sérð þá eiginleika í þínum eigin nemendum eða fólki í þínu nærumhverfi er mikilvægt að þú sáir fræi hjá viðkomandi og hvetjir þau/þá/ þær til að íhuga kennaranám. XX Leggjumst öll á eitt og eflum stéttina enn frekar. Kjaraviðræður fyrirferðamiklar í sumar Eitt aðildarfélag KÍ er þegar með lausa samninga og önnur fylgja í sumar. Félögin hafa verið að funda með félagsmönnum um land allt síðustu vikur til að undirbúa kröfu- gerð. Kjaramál verða fyrirferðamik- il í umræðunni næstu mánuði enda telja kennarar og skólastjórnendur sig eiga inni töluverða leiðréttingu í samræmi við menntun. Staða kjarasamninga aðildafé- laga Kennarasambandsins eru eftirfarandi: XX Félag framhaldskólakennara – lausir samningar frá 31. mars sl. XX Félag leikskólakennara – samningar losna 30. júní 2019 XX Félag stjórnenda leikskóla – samningar losna 31. júlí 2019 XX Félag grunnskólakennara – samningar losna 30. júní 2019 XX Skólastjórafélag Íslands – samningar losna 31. júlí 2019 XX Félag tónlistarkennara – samningar losna 30. júní 2019 Nýr rannsóknar- sjóður stofnaður Stofnaður hefur verið Rannsóknar- sjóður Kennarasambands Íslands. Tekin var ákvörðun um stofnun sjóðsins á 7. Þingi KÍ í apríl 2018. Markmið sjóðsins er að veita styrki til rannsókna sem styðja við skólastarf og dagleg störf félagsmanna Kennarasambands Íslands (KÍ) í skólum, þróa nýja fræðiþekkingu sem félagsmenn KÍ hafa þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í skólastarfi. Rétt til að sækja um styrk hafa virkir félagsmenn KÍ. Nánari upplýsingar eru á vef KÍ. Samkomulag um launaupplýsingar Kennarasamband Íslands og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um að borgin láti KÍ í té launaupplýsingar um félagsmenn sambandsins. Tilgangur samkomulagsins er að gera aðilum þess kleift að fylgj- ast með launaþróun og framgangi kjarasamninga. KÍ hefur leitað til fleiri sveitarfélaga um gerð samkomu- lags á sömu nótum. Þeirri málaleitan hefur þegar verið vel tekið í nokkrum sveitarfélögum.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.