Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Qupperneq 7

Skólavarðan - 2019, Qupperneq 7
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 7 Fréttir / KENNARASAMBANDIÐ Ársfundur Kennarasambands Íslands var haldinn 8. apríl sl. Á fundinum fór Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, yfir sviðið í kjaramálum. Hann ávarpaði stóru málin og kom inn á það að til að árangur næðist og lífskjara- samningur gæti staðist yrði að ríkja traust á milli aðila. „Það á eftir að svara stórum spurningum í kjaramálum opinberra starfsmanna. Vonandi verður hér til þjóðarsátt. Það er þó býsna langt í land með það. Við þurfum að taka stóru málin til umræðu á stóra sviðinu og horfast í augu við það að þau sitja öll pikkföst vegna þess að í samfélag okkar vantar grunn- forsenduna, traust,“ sagði Ragnar Þór Pétursson og sagði hann hinn svokallaða „lífskjarasamning“ ekki vera nægan grundvöll nýrrar þjóðarsáttar. Um lífeyrismálin sagði Ragn- ar Þór: „Mér þykir leitt að þurfa að segja það en síðustu mánuði hef ég orðið áþreifanlega var við að leikreglur lífeyrissjóðakerfisins eru algjörlega í lausu lofti“. „Stóra málið er varðar almanna tryggingar er sú stað- reynd að veikinda- og örorkuhug- takið er ekki lengur í samræmi við veruleikann. Samfélagið skiptist ekki lengur í veika og heilbrigða; fatlaða og ófatlaða. Starfsþrek okkar getur verið mikið eða lítið, allt eftir tímabilum. Fólk sem áður var nánast afskrifað getur lagt heilmikið af mörkum. Maður skyldi ætla að búið væri að endurspegla þetta í almanna- tryggingakerfinu. En þar sitja málin föst. Það, af hverju þau eru föst, er grundvallaratriði,“ sagði Ragnar Þór. Ragnar Þór ræddi vinnumarkaðsmál og sagði: „Vanalegt er að einn hópur sé í gapastokknum hverju sinni sem fulltrúi þeirra sem fengið hafa of mikið. Þetta geta verið læknar, hjúkrunarfræðingar, þingmenn eða kennarar. Yfirleitt eru þetta opinberir starfsmenn því hækkanir þeirra eru sveiflu- kenndari. Ein afleiðing hinna miklu sveiflna er að útilokað er að skoða launaþróun út frá hækkunum yfir tímabil. Val á viðmiðunartímabili er um leið val á niðurstöðu. SALEK tilraunin svokallaða miðaðist til dæmis við ákveðinn upphafspunkt sem kom valdamestu aðilunum á vinnu- markaði best. Slík vinnubrögð sjá til þess að allt sem á því er byggt standi á brauðfótum.“ Undir lok ræðu sinnar sagði Ragnar að í þeim samningum sem nú þegar lægju fyrir hefði verið stigið skref til lóðréttrar launajöfnunar á almennum markaði. „Munur hæstu og lægstu launa á almennum markaði er enda töluverður – og til að mynda miklu meiri en á opinberum markaði. Eftir stendur láréttur launaójöfnuður – það er, á milli markaða. Loforð um jöfnun launa milli markaða á sér tvær hliðar. Til að byrja með eru lægstu launin yfirleitt hærri á opinberum markaði en á almennum. Það má því segja að „lífskjarasamningur- inn“ sé fyrsta skref til uppfyll- ingar samkomulags um jöfnun launa á milli markaðanna. En þá er eftir allur þorri launamanna – sem ranglega fær lægri laun á opinberum markaði en almenn- um,“ sagði Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ. Ársfundur Kennarasambandsins 2019 Formaður KÍ segir lífskjarasamninginn ekki standast án trausts milli aðila Mér þykir leitt að þurfa að segja það en síðustu mánuði hef ég orðið áþreif- anlega var við að leikreglur lífeyris- sjóðakerfisins eru algjörlega í lausu lofti.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.