Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Qupperneq 8

Skólavarðan - 2019, Qupperneq 8
8 SKÓLAVARÐAN VOR 2019 KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir Jafnréttis- nefnd segir XX ... að formleg og óformleg jafnréttisumræða verði að vera virk meðal nemenda og kennara á öllum skólastigum. Dæg- urmálaumræða, útgáfa bóka o.m.fl. getur verið góð kveikja að umræðu. XX ... að mikilvægt sé að skipa jafnréttisfulltrúa í öllum skólum til að koma jafnréttismálum í ákveðinn farveg. Grunnþátturinn er mikilvægur og verður illa unninn í hjáverkum. Jafnréttisnefnd hefur stofnað fésbókarsíðu fyrir jafnréttisteymi og jafnréttisfulltrúa allra skólastiga. Síðan heitir Jafnréttisfulltrúar og jafnréttisteymi í skólum og á að létta þeim vinnu sem hafa grunnþáttinn á sinni könnu. Þar inni verður hægt að deila hugmyndum og námsefni, viðhafa faglega umræðu og veita stuðning í starfi, að auki verður þar hugmyndabanki að námsefni og jafnréttis- gátlistar fyrir hvert skóla- stig frá jafnréttisnefnd. XX ... að Kynjabókhald KÍ hafi litið dagsins ljós. Í Kynjabókhaldi koma fram kynjahlutföll félagsfólks innan KÍ bæði eftir að- ildarfélögum og þeirra sem vinna í nefndum, ráðum og trúnaðarstörfum, að auki er farið yfir kynjahlutföll starfsfólks KÍ. Áhugasamir geta rýnt í bókhaldið inni á heimasíðu KÍ. Starfsemi Kennarasambands Íslands flyst í ný húsakynni í Borgartúni 30, sjöttu hæð, í sumar. Aðdragandinn hefur verið langur en um þessar mundir eru fimmtán ár síðan markvisst var farið að leita leiða við að leysa úr húsnæðisvanda Kennarasambandsins. Húsnæð- ismál KÍ hafa verið viðfangsefni allra þinga sambandsins síðan árið 2005. Hið nýja húsnæði mætir nútímakröfum félagsmanna en aðgengismál fyrir fatlaða og hreyfihamlaða hafa aldrei verið í lagi í Kennarahúsinu. Þá verður aðstaða til funda afar góð í hinu nýja húsnæði sem og vinnuaðstaða starfsfólks. Samræður við forsætis- ráðherra um framtíð Kennara- hússins standa yfir og mun Kennarasambandið leita allra leiða til að halda húsinu í sinni vörslu áfram. „Það verður verkefni til framtíðar að marka Kennarahúsinu hlutverk við hæfi þótt ljóst sé orðið fyrir löngu að húsið sé ófullnægjandi sem höfuðstöðvar stéttarfélags,“ sagði Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ, í bréfi til félags- manna KÍ þegar kaupin voru kunngjörð. „Það er býsna stór stund í sögu KÍ að færa starfsemina úr Kennarahúsinu. Þetta er þó nauðsynleg breyting svo byggja megi upp starfsemi sambandsins til framtíðar enda var ályktun frá síðasta KÍ þingi alveg skýr í þessu máli og þar með vilji félagsmanna,“ segir Ragnar Þór. Á annað hundrað manns mætti á forystufræðslu KÍ sem fór fram þann 20. febrúar sl. í Reykjavík. Því miður féll sami viðburður sem átti að vera á Akureyri niður vegna veðurs. Markmið fræðslunnar var að efla stéttarvit- und, virkni, þátttöku og ábyrgð forystufólks sambandsins. Dagurinn var virkilega vel heppnaður í alla staði en farið var vel yfir starfsemi KÍ og ímynd, bæði almennt og ímynd KÍ sérstaklega. Það verður að segjast að öll umræða um menntamál er áberandi í samfélaginu og það ber að nýta til góðs. Farið var yfir jafnréttismál, kjaramál og horfur í komandi kjarasamningum og fulltrúar frá Virk sögðu frá starfseminni og greindu mörk einkalífs og vinnu. Að lokum sagði kennari í FB frá sinni reynslu af bráðnun, ekki kulnun, og hvernig kennarar geta stutt hvern annan. Nesti til nýrra tíma – forystufræðsla KÍ KÍ flytur í Borgartún Nýtt húsnæði Kennarasambandsins verður á sjöttu hæð í Borgartúni 30.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.